Söðulsholt, Eyja- og Miklaholtshreppi
Jörðin er um það bil 1118 ha lands og var lengst af talin allgóð bújörð. Þegar Árni Magnússon og Páll Vídalín semja jarðabók sína árið 1714, er Söðulsholt konungseign (frá 1360) og heyrir undir Arnarstapaumboð. Í þessari ágætu bók er jörðinni fundið margt til foráttu eins og reyndar var um fleiri jarðir.

Í eldri heimildum, Landið og landnáma I, er munnmæla getið að Þórður landnámsmaður hafi búið í Stöðuholti og að þá hafi bærinn staðið ofar, gegnt Dalsmynni. Í eldri heimildum koma fyrir nöfnin Stöðuholt, Stöðulsholt og Söðulsholt en allt er þetta talin ein og sama jörðin.
Söðulsholt var venjuleg bújörð fram til ársins 1936, að hún var gerð að prestssetri, en aldrei hefur verið þar kirkjustaður svo vitað sé. Síðustu bændur þar, sem stunduðu eingöngu hefðbundinn búskap, voru Ólafur Ólafsson frá árinu 1910 til 1936 og sonur hans, Hannes frá 1936 til 1938.
Prestssetur hafði verið í ómunatíð á kirkjustaðnum Miklaholti og presturinn þar þjónaði að auki kirkjunum á Kolbeinsstöðum og Ytri-Rauðamel. Árið 1936 var kirkjan flutt frá Miklaholti að Fáskrúðarbakka í sömu sveit, eftir miklar og langvinnar deilur innan sóknar, en meiri hluti sóknarfólks taldi kirkjuna betur í sveit setta á síðarnefnda staðnum.
Tildrög þess að prestssetrið var flutt frá Miklaholti að Söðulsholti voru þau að séra Árni Þórarinsson, sem þjónaði Miklaholtsprestakalli frá 1886 til 1934 og landskunnur varð af hinni fjöllesnu ævisögu sinni í sex bindum, sem meistari Þorbergur færði í letur af sinni alkunnu snilld, sat fyrstu árin í Miklaholti, en flutti sig fljótlega að Syðra-Skógarnesi, síðan að Ytri-Rauðamel og loks á eignarjörð sína Stóra-Hraun. Á Stóra-Hrauni bjó séra Árni síðan með fjölskyldu sinni, þar til hann lét af embætti, sem þjónandi prestur, fyrir aldurssakir árið 1934.
Vegna þessa búferlaflutninga séra Árna, var prestssetrið í Miklaholti í fastri bændaábúð, þegar nýr prestur, séra Þorsteinn Lúther Jónsson var vígður til prestakallsins 1934 og hafði hann því ekki að neinu að hverfa. Fékk hann inni á efri hæð íbúðarhússins á Kolbeinsstöðum tvö fyrstu árin eða þar til jörðin Söðulsholt losnaði úr ábúð og ríkið keypti fyrir prestssetur árið 1936. Séra Þorsteinn sat í Söðulsholti fram til ársins 1961 en þá vígðist til prestakallsins séra Árni Pálsson, dóttursonur séra Árna Þórarinssonar. Sat séra Árni Pálsson í Söðulsholti til 1971. Þá tók við séra Einar Jónsson til 1982 og síðastur séra Hreinn S. Hákonarson. Árið 1994 var prestakallið stækkað samkvæmt lögum og prestssetrið flutt að Staðarstað og heitir síðan Staðarstaðarprestakall.
Hjónin Gústav Ívarsson og Herdís Gróa Tómasdóttir leigja jörðina af ríkinu árið 1985 og stunduðu hrossarækt á jörðinni og loðdýrabúskap en bregða búi 1996 og flytja til Grundarfjarðar. Árið 1998 kaupir svo núverandi eigandi, Einar Ólafsson, jörðina og hefur stundað þar hrossarækt, skógrækt, línrækt og nú síðast byggrækt.
Hestamiðstöðin Söðulsholt er aðskilin frá rekstri jarðarinnar Söðulsholt ehf, en Hestamiðstöðina reka þau Halldór Sigurkarlsson og Iðunn Silja Svansdóttir og búa þau í Hrossholti.