Tamning og þjálfun
Við tamningastöðina starfa þau Halldór Sigurkarlsson og Iðunn Svansdóttir, FT félagi.
Lögð er rík áhersla á hestvænar taminga- og þjálfunaraðferðir, þ.e.a.s. hrossin séu óttalaus við manninn og viðurkenni hann sem leiðtoga og framkvæmi það sem þau eru beðin um sátt og slök. Reynt er að hafa þjáfunina fjölbreytta og skemmtilega og hesturinn byggður upp á jákvæðan hátt þar sem mýkt og rétt líkamsbeiting er höfð að leiðarljósi.
Vegna reiðhallarinnar skapast aðstæður sem gera vinnuna vandaðri og markvissari auk þess sem ekki falla út dagar vegna veðurs.
















