Hákon frá Ragnheiðarstöðum

IS2007182575

Hákon

Foreldrar:

F: Álfur frá Selfossi B: 8.11 - H: 8.69 – A: 8.46
FF:
FM:
Orri frá Þúfu
Álfadís frá Selfossi
B: 8.08 - H: 8.61 - A: 8.34
B: 7:78 - H: 8.66 - A:8.31
M: Hátíð frá Úlfsstöðum B: 8.02 - H: 8.62 - A: 8.38
MF:
MM:
Kolfinnur frá Kjarnholtum
Harka frá Úlfsstöðum
B: 8.05 - H: 8.84 - A: 8.45
B: 8.28 - H: 7.60 - A: 7.94


Umsögn

Rauðskjóttur
Kynbótamat 119

Ræktunarfélagið Hákon var stofnað árið 2007 eða sama á ár og Hákon fæddist.
Foreldrar Hákons voru og eru sjóðheitar stórstjörnur en á árið 2006 vann Hátíð það afrek að fá tvisvar sinnum 10,0 fyrir tölt og á landsmótinu varð hún í 4 sæti 5.vetra hrysna. Fékk hún þar einkunina 8,62 fyrir hæfileika(skeiðlaus). Fyrir utan hið fullkomna tölt hlaut hún 9,5 fyrir fegurð í reið og 9 fyrir brokk og vilja/geð. Hátíð hafði árið áður fengið 9,5 fyrir tölt 4.vetra.
Álfur faðir Hákons féll ekki síður í kramið hjá ræktendum undan hinni mjög svo eftirminnilegu Álfadísi frá Selfossi og Orra frá Þúfu. Þessi rauðhöttóti fótaburðarhestur vakti mikla athygli á LM 2006 þar sem hann endaði í 4 sæti 4.vetra stóðhesta. Þar fékk Álfur einkunina 8,44 fyrir hæfileika (skeiðlaus). Á landsmóti 2 árum síðar bætti Álfur svo um betur og fékk 8,69 fyrir hæfileika með þrjár 9,5 og tvær 9.0 og endaði í 5 sæti 6.v stóðhesta.

Á öðrum aðalfundi Ræktunarfélagssins Hákons síndi Hákon að hann er ekki bara vel ættaður. Lofthár með reistan og mjúkan háls, fer um á svifmiklu brokki með háum og framgripsmiklum framfótahreifingum. Alt lýsingar sem prýða þennan spenandi hest auk þess sem hann hann er eins á litin og faðir hans.

Söðulsholt ehf á þrjá hluti í hestinum

Aftur til stóðhesta