Hestamiðstöðin Söðulsholti

Söðulsholt er staðsett á sunnanverðu Snæfellsnesi, u.þ.b. 50 km akstur frá Borgarnesi. Byrjað var á byggingu hesthússins og reiðhallarinnar sumarið 2006 og verkinu lauk í janúar 2007. Var opnunarhátíð 20. janúar sama ár.
Í hesthúsinu er pláss fyrir 36 hross, allt í tveggja hesta stíum, en hver stía er 9 fermetrar.

Hesthúsið er allt hið glæsilegasta. Innréttingarnar koma frá Króm og Stál og gætu sómt sér í hvaða stofu sem er.

Hitalagnir eru í fóðurganginum og líka í stéttunum úti. Sambyggt hesthúsinu er stór og glæsileg reiðhöll 50x16m að stærð, tekið er smá pláss af reiðhöllinni undir hnakkageymslu og fóðurgeymslu. Kaffistofan er svo þar fyrir ofan.

Fyrir utan hesthúsið eru 4 samliggandi gerði, 2 mjög stór og 2 aðeins minni. Því er mjög auðvelt að skipta hrossunum niður.

Söðulsholt Séð yfir gerðin
Hesthúsið Reiðhöllin og hringgerðið
Rúmgott fyrir tvo Eitt hross í tveggja hesta stíju

Reiðleiðir eru góðar, og má meðal annars nefna að aðeins er 20 mín. reið niður á Löngufjörur. Góð reiðleið er með Núpá og tengileiðir frá henni að öllum bæjum sem liggja að ánni og síðan leiðir milli þeirra.

Með öðrum orðum eru reiðleiðir um allt næsta nágrenni án þess að fara þurfi þjóðveginn.