23.12.10
Jólakveðja frá Hestamiðsöðinni

![]()
14.12.10
Folaldasýning
Jæja þó að þessi blessaða pest sé búin að vera ansi langdregin og töluvert hafi verið um veik folöld núna í haust, þá virðist þetta allt vera á réttri leið. Öll okkar folöld eru orðin hress og eru vonandi bara komin yfir þetta (7-9-13) og höfum heyrt það sama hjá þeim sem við höfum talað við. Svo við höfum ákveðið að stefna að folaldasýningu núna í febrúar/mars, en munum að sjálfsögðu skoða það þegar nær dregur, með heilsufar folaldanna að leiðarljósi...

![]()
08.12.10
Tvær efnilegar
Tamningar ganga vel og eru hrossin að trimmast upp í rólegheitunum, drifum í því í dag að mynda tvær mjög efnilegar merar , en ætlum að reyna að vera dugleg í vetur að taka myndir af hrossunum sem eru í hesthúsinu. Það var að vísu byrjað að dimma þegar við vorum að taka myndirnar, en það verður bara að hafa það.
Fyrri merin heitir Kólga frá Skarði 1.


Kólga er 4. Vetra undan Straum frá Innri-Skeljabrekku og Röskvu frá Skarði 1. Mjög efnileg meri og alltaf gaman þegar fallegur litur og gæði fara saman. Eigandi Kólgu er Hrossaræktabúið Eyri.
Hin merin Kvika frá Grundarfirði, er í miklu uppáhaldi hjá okkur, bætir sig á hverjum degi og verður gaman að sjá hvað hún gerir í vor.

Kvika er 5.vetra undan Illing frá Tóftum og Kveikju frá Söðulsholti, eigandi Herdís Tómasdóttir.
![]()
05.12.10
Nýr fjölskyldumeðlimur
Það fjölgaði hjá okkur í síðustu viku þegar þessi gullfallega border collie tík kom. Sú stutta er auðvitað háættuð, fædd á Syðra-Skörðugili og heitir að sjálfsögðu Fjóla í höfuðið á húsfreyjunni þar.


![]()
22.11.10
Ný frétt ;0)
Það var ótrúlega fallegt úti í dag og ekki hægt annað en að taka nokkrar myndir. Hef ekki hugmynd um hvað þetta kallast en það var allt hrímað og mætti kannski helst líkja þessu við einhverskonar töfraveröld.

Kolbrún gamla sem er elsta merinn okkar virtist vera orðinn ansi grá svona í morgunsárinu, en hún var eins og allt annað þakin hrími.

En annars gengur lífið bara sinn vangang hérna í Söðulsholti, hross koma og fara og mörg skemmtileg trippi inni. Erum með 35 hross inni og erum ný búin að taka inn nokkrar merar sem stefnt er með í dóm í vor.
Óli sonur Einars sem býr í Ameríku er í heimsókn og skruppu afastelpurnar Ella og Bryndís á hestbak í dag, ekki amalegt að eiga afa sem á svona mikið að hestum og örugglega stutt í að þær fari að skottast með í reiðtúra.

![]()
03.11.10
Fyrsti snjórinn
Það var jólalegt í morgun þegar maður leit um gluggann, hvítt yfir öllu og enn snjóaði stórum hvítum flygsum. Vantaði bara jólalögin í útvarpið til að fullkomna þetta;0).

Tókum myndavélina með í dag þegar við fórum að kíkja á folöldin og merarnar en samkvæmt ráðum frá dýralækni var okkur sagt að hafa þau ekki öll heimavið í rúllu, heldur að dreyfa úr hópnum og reyna að koma þeim á hreint land, þar sem ekki hafa verið veik hross. Gerðum við það fyrir 3 vikum og eru þau nú á 4 stöðum, sum eru komin með rúllu en önnur eru hafa það bara gott á hánni á túnunum. Virðist þetta hafa virkað mjög vel og líta þau vel út, sáum aðeins hor í einu folaldi í dag, henni Gyðju undan Sigur og Sunnur frá Akri, en hún var hitalaus og virkaði mjög spræk. Hér má sjá mynd af henni en fleiri myndir koma á facebook síðuna okkar seinna í kvöld.

![]()
31.10.10
Smá haustfréttir
Námskeiðin í knapamerkjunum er byrjuð aftur eftir smá sumarfrí en núna er verið að taka knapamerki 3. Var aðalega farið í bóklegt um helgina en einnig var sýnkennsla með vinnu í tvöföldum taum og eins var farið í mismunandi hestgerðir, byggingu/ganglag. Þátttakendur eru 8 talsins og kennari er sem fyrr Birna Tryggvadóttir.

3 folöld eru inni núna á pensilín kúr, eitt þeirra í 3 skipti, hin á sínum fyrsta. Þau sem eru úti núna virðast vera orðin mun betri en þau voru fyrir mánuði þrátt fyrir kólnandi veður. Svo hver veit kannski er þau bara að komast yfir þetta, allavegna vonaður maður það.
Tamningar hafa gengið vel núna í haust og aldrei þessu vant er búið að vera frábært veður. Megnið af 3 vetra hrossunum verða sett aftur út aftur eftir helgi og ný hross koma inn í staðinn. Linda frá Þýsklandi er búin að vera að aðstoða okkur núna í mánuð en fer heim á morgun, 10 nóv kemur svo Linnéa frá Svíðþjóð.
![]()
19.10.10
Verðandi stjarna????
Þá eru 3 vetra trippin komin á ágætis ról, auðvitað eru þau komin mis langt en öll eru þau á réttri leið og sum hver ansi efnileg.

Hrossið á myndinni heitir Fjöður frá Ólafsvík, 3 vetra undan Mars frá Ragnheiðarstöðum og Perlu frá Einifelli. Eigandi hennar er Sölvi Konráðsson, en erum nokkuð viss um að það væri margir til í eiga þessa í hesthúsinu hjá sér.

![]()
11.10.10
Sól og logn!!!
Veðurblíðan síðustu daga er búin að vera hreint ótrúleg, búið er að vera blanka logn, sól og yfir 15 stiga hiti. Hrossin hafa það ekkert smá gott í blíðunni og liggja bara í sólbaði og nenna voða lítið að hreyfa sig. Tókum myndavélina með þegar við fórum á sunnudaginn á kíkja á folöldin, en þið getið skoðað þær inn á facbook síðunni okkar. En það geta allir skoðað hana algjör óþarfi að skrá sig inn eða vera notandi af facebook, opinn öllum;0)
Smellið hér til að komast á facbook síðu Söðulsholt

![]()
04.10.10
Allt komið á fullt
Jæja þá er allt komið á fullt aftur eftir gott haustfrí. Á miðvikudaginn rákum við inn allt stóðið og sorteruðum. Tókum m.a. inn Krókstrippi sem voru keypt fyrir rúmu ári, en það var ekkert hægt að sinna þeim í sumar vegna veikinda. Einnig tókum við inn öll 3 vetra trippin okkar, og svo eru við með slatta fyrir aðra líka. Als eru þetta um 30 stykki og mörg hver mjög efnileg. T.d. erum við með hross undan Baug frá Víðinesi, Hágang frá Narfastöðum, Gígjari frá Auðsholtshjáleigu, Dyn frá Hvammi, Mars frá Ragnheiðarstöðum, Smára frá Skagaströnd, Hrym frá Hofi og mörgum fleiri sem ég man bara ekki alveg í augnablikinu.

Folöldin og veturgömul trippi hafa verið heimavið og eru undir daglegu eftirliti. Þrjú folöld fóru á pensilín kúr fyrir 3 vikum og fimm folöld voru inni í síðustu viku. Ófeigur litli var orðið ansi tæpur síðustu helgi, á föstudeginum var hann hættur að geta drukkið úr merinni svo hún var mjólkuð á 3-4 tíma fresti og hellt ofaní hann. Sem betur fer byrjaði hann að reyna að drekka úr henni aftur á sunnudagsmorguninn og er orðinn eldhress núna og komin út aftur. Á hann skilið stóran plús fyrir frábært geðslag, en hann var í annað skipti á 10 daga pensílin kúr, auk þess sem hann náði að slasa sig á fæti og var verið að skipta um umbúðir og vesenast í honum. Tók hann þessu öllu með mikilli ró og er eiginlega bara orðinn ennþá meira uppáhald eftir þetta allt saman.
![]()
15.09.10
Knapamerkin..
Nú styttist í að kennsla í knapmerkjunum hefist aftur, ef þið hafið áhuga á að bætast í hópinn og byrja á knapmerki 1 eru laus pláss. Hægt er að lesa meira um knapamerkin á http://knapi.holar.is/. Tilvalið fyrir byrjendur sem lengra komna. Kennari verður Birna Tryggvadóttir
![]()
15.09.10
Góð og slæm fyljun !!
Edda Dýralæknir kom til okkar í gær að sóna restina af merunum sem eru búnar að vera hjá Ábóta í sumar. Hann er búin að hafa það mjög gott í sumar með 12 merar og hefur sónast í þeim öllum fyrir utan eina, en þar sem hann var enn í gæti alveg leynst í henni. Bara nokkuð gott hjá þeim stutta og verður spennandi að sjá afkvæmi hans næsta sumar.

Meðan það var verið að sóna frá Ábóta fóru Einar og Dóri á Suðurlandið að sækja fjórar merar sem eru búnar að vera hjá graðhestum. Tvær fyrir okkur þær Gerplu frá Laugarsteini og Sunnu frá Akri og tvær fyrir nágranna okkar, þær reyndust allar tómar. Rebekka frá Króki er búin að vera hjá honum Sporð frá Bergi, það var líka sónað frá honum í dag og reyndist hún líka tóm. Það er auðvitað smá líkur að það sé folald í Rebekku og Gerplu þar sem hesturinn var enn í, ákváðum samt að setja þær báðar undir hann Ábóta og hafa þær hjá honum fram að mánaðarmótum. Sunna sem ætti að vera byrja aftur í látum var keyrð undir hann Abraham frá Lundum,tveggja vetra fola undan Auðnu frá Höfða og Vilmund frá Feti.

Folaldið á myndinni fyrir ofan er hann Hertogi frá Söðulsholti undna Sigur frá Hólabaki og Kolbrúnu frá Kjarnholtum.
![]()
04.09.10
Ófeigur komin heim.
Folaldsmerarnar tínast heim ein og ein eftir að hafa verið hjá stóðhesti. Að vísu á enn eftir að staðfesta fyl í 5 merum sem okkur finnst aðeins of mikið þegar það er komið fram í september, en vonandi á samt eftir að sónast fyl í þeim öllum. Fórum og sóttum 3 fengnar á Suðurlandi í gær, ein sem var hjá Arð frá Brautarholti, ein frá honum Fláka frá Blesastöðum og svo hana Blæju og Ófeig flotta en hún er fengin við Álf frá Selfossi. Ótrúlega gaman að sjá hann Ófeig aftur þar sem hann er nú pínu uppáhaldsfolald og auðvitað smelltum við nokkrum myndum af honum.


![]()
26.08.10
Lipurtá í kynbótadóm
Agnar á Stað sýndi hana Lipurtá frá Söðulsholti fyrir okkur á Miðfossum. Gekk það bara vel og fór í 7,96 í aðaleinkunn, fyrir byggingu fékk hún: 8.0-8.0-8,5-8,5-8,0-7,0-8,0-9,0= 8,09 og fyrir hæfileika: 8,0-8,0-7,0-8,0-8,0-8,0-8,5=7,87.

Lipurtá er undan honum Rökkva frá Hárlaugstöðum og Kötlu frá Neðstabæ. Lipurtá er fyfull við honum Ábóta frá Söðulsholti.


![]()
22.08.10
Í minningu
Það er búið að ríkja mikil sorg hérna í dag og í gær, en ein af aðal merunum okkar hún Arna frá Varmadal dó í gær,

Arna var 15 vetra og undan Mikka frá Tóftum og Brúnku frá Ármóti, hún var með 7.91 fyrir byggingu, 8.45 fyrir hæfileika og 8.23 í aðaleinkunn. Arna átti einnig að baki langan og farsælan feril á keppnisvellinum og hefur bæði verið í verðlauna sæti á Landsmóti í A flokki og sem kynbótahross. því miður er aðeins til eitt afkvæmi undan henni á lífi, veturgömul Klettsdóttir sem vonandi á eftir að gera það gott í framtíðinni.

![]()
18.08.10
Donna í 1. Verðlaun
Dóri fór með Donnu frá Króki aftur á kynbótadóm á Blönduósi, þar sem hún hækkaði fyrir hægt tölt, stökk og fet. Fyrir byggingu fékk hún 8.5-9-8.0-8.5-8.5-8.5-8.0=8.51 og fyrir hæfileika 8.0-8.0-5.0-8.5-8.5-8.5-7.5=7.66 og fyrir hægt tölt og stökk fékk hún 8.5. Í aðaleinkunn 8.00.

En samkvæmt worldfeng eru Donna frá Króki, Gletta frá þjóðhólfshaga og Birta frá Úlfsstöðum hæst dæmdur merarnar í ár (en sem komið ) fyrir byggingu, allar með 8.51.
Hérna er svo myndir af öllum hrossunum á kynbótasýningunni á Blönduósi.
![]()
08.08.10
Firmakeppni Faxa
Þar sem litla daman á heimilinu er orðin keppnisjúk og er búin að suða lengi um að fá að keppa, var ákveðið að rúnta með hana og Elísu vinkonu hennar á Miðfossa þar sem fór fram Firmakeppni á laugardaginn. Auðvitað fannst þeim þetta rosa spennandi og fengu allir að launum flottan verðlaunapening. Katla var samt alveg viss á því að það var hún sem vann þar sem pabbi hennar hljóp hraðast, og ekki skemmdi nú fyrir keppniskjólinn, sem var valin nokkrum dögum áður og geymdur á góðum stað, þar til stóri dagurinn rynni upp,,,,

Hérna er svo myndir af öllum keppendum í Firmakeppninni.
![]()
06.08.10
Kynbótasýning á Miðfossum
Dóri fór með þær Þyrlu frá Söðulsholti og Donnu frá Króki á kynbótasýningunni á Miðfossum sem var núna 5 og 6 ágúst. Gekk vel með Þyrlu en hún fór í fyrstu verðlaun fyrir hæfileika og fékk m.a. 9 fyrir skeið. Hún fékk 7.56 fyrir byggingu 8.03 fyrir hæfileika og 7.83 í aðaleinkunn. En svona til gamans má geta þess að Þyrla er fyrsta hrossið sem fæðist Einari hérna í Söðulsholti.

Donna frá Króki er algjör fegurðardrotting og fékk 8,51 fyrir byggingu, 7.59 fyrir hæfileika og 7.96 í aðeinkunn. En Donna fékk m.a. 9 fyrir háls og 8,5 fyrir haus, samræmi, fótagerð, réttleika, prúðleika, fegurð í reið og vilja/geðslag. Fannst okkur hún nú eiga alveg hærra skilið fyrir hæfileika, sérstaklega tölt og stökk. En þó Donna sé orðinn 7 vetra, var bara byrjað að temja hana í fyrravetur og á hún mikið inni fyrir hæfileika. Svo spennandi verður að sjá hvað gerist á næsta ári.

Hérna eru svo myndir af öllum hrossunum sem voru á yfirlitinu.
![]()
31.07.10
Haukur
Haukur frá Haukatungu Syðri1, 6 vetra undan Glampa frá Vatnsleysu og Kolfinnu frá Haukatungu Syðri1, Spennandi foli og svo skemmir nú liturinn ekki fyrir;) Eigandi Hauks er Ólafur Pálsson.

![]()
26.07.10
Bændareið
Fullt af myndum af hinni árlegu bændareið sem fór fram á laugardaginn....
![]()
22.07.10
Ábóti
Varð að setja inn nokkrar myndir af honum Ábóta okkar. Ótrúlega fallegur;)....

Ábóti er tveggja vetra rauðhöttóttur/blesóttur undan Álf frá Selfossi og Roða dótturinni Sunnu frá Akri. Hágengur og fer um á tölti og brokki og er eins og mörg Álfsafkvæmi ofsalegur mjúkur og lipur í skrokknum.
Ábóti er búinn að vera í merum núna í sumar niðri í Hrossholti en tókum hann heim í síðustu viku til að sinna einni dömu. Held að það séu ekki margir 2 vetrar gradda tittir sem maður getur bara rölt að úti í hólf, sett múl á þá og teymt í burt frá merum og upp á kerru, án nokkrar vandræða. Hann lítur allavegna vel út núna og það verður spennandi að sjá hvað verður úr honum í framtíðinni.



![]()
20.07.10
Sól og logn!
Úff það er búinn að vera þvílíkur hiti hérna á nesinu núna síðustu daga, næstum því bara of heitt, vel yfir 20 gráður og meira segja logn. Heyskapurinn kláraðist núna um helgina og er verið að keyra heim síðustu rúllurnar, verður spennandi að sjá hvernig byggið/hálmurinn á eftir að verða, en uppskeran lítur virkilega vel út núna. Spurning hvort það stefni bara ekki í metár ef allt gengur upp.

Folöldin eru nú ekki mikið að nenna að leika sér í þessum hita. Liggja bara og flatmaga í sólinni, rétt druslast á fætur til að fá sér sopa og henda sér svo niður aftur.
Það Bættist í folaldahópinn í gær þegar Gerpla frá Laugasteini kom með rauðstjörnóttu meri. Eru þá komin 12 folöld, 5 merar og 7 hestar. Flestar merarnar eru nú hjá stóðhestum og verður spennandi að sjá hvernig folöldin líta þegar þau koma heim aftur. Gerpla er svo á leiðinni undir Hákoni frá Ragnheiðarstöðum.

Erum aðeins að bæta inn á tenglalistann, svo ef þið vitið um einhverjar heimasíður sem við erum ekki með hjá okkur megið þið endilega senda okkur póst.
![]()
17.07.10
Ný myndavél
Veit ekki hvort þið hafið tekið eftir því hvað lítið hefur verið að myndum af hestum á ferð undanfarið. En gamla myndavélin gaf sig í byrjun apríl, að vísu hefur kannski ekki verið hægt að taka mikið af myndum af hestum á ferð þar sem allt er búið að vera veikt að undanförnun. Núna erum við komin með nýja vél og hægt að fara að taka smá „lyftu“ myndir aftur. Hefði að vísu verið gaman að fleiri hross væri komin í lag en ennþá er megnið af hrossinum hóstandi.
Donna frá króki er að komast í form aftur.



Hérna eru svo tveir sem eru til sölu. Báðir efni í góða reiðhesta.
Brútus frá Söðulsholti 5.vetra undan Arm frá Sveinatungu og Vordísi frá Litlu-Ásgeirsá

Erró frá Króki 6 vetra, undan Júpiter frá Stóru-Hildisey og Kvísl frá Lækjamóti

![]()
09.07.10
Merfolald;)
Nýtt folald kom í heiminn í nótt þegar Roðadóttirinn Sunna frá Akri kastaði, og kom með rauðstjörnótta meri, (sem var svona skemmtileg tilbreyting;) undan Sigur frá Hólabaki,hún er mjög myndarleg, enda kannski ekki skrítið þar sem foreldrarnir eru bæði há fyrir byggingu, Sigur með 8,44 fyrir byggingu og Sunna 8,38. Sunna er svo á leiðinni undir hann Borða frá Fellskoti. Eru þá tvær ókastaðar, Gerpla frá Laugarsteini sem kastar vonandi fljótlega og svo Arna frá Varmadal sem kastar trúlega ekki fyrr en seint í ágúst..


![]()
07.07.10
Jarpvindóttur eða ekki????

Rebekka frá Króki kastaði í morgun, vorum auðvitað rosa spennt að sjá hvort við myndum ekki fá einhvern flottan lit. Auðvitað kom hestur ;) og við fyrstu sýn virkaði hann nú bara rauðstjörnóttur, ótrúlega óspennandi, rauður hestur! undan Glym frá Innri-Skeljabrekku og Rebekku sem er rauðskjótt. En svo þegar hann fór að þorna fannst okkur hann ekki vera rauður og fórum þá spá hvort hann gæti kannski verið rauðvindóttur. Þar sem við erum nú engir litasérfræðingar hringdum við í nokkra sérfræðinga;) sem fræddu okkur um það að rauðvindótt væri ekki til og hlyti hann því að vera jarpvindóttur. Fórum svo og kíktum í valparanir á worldfeng þar sem kom í ljós að það voru 5,6% líkur á að fá jarpvindótt undan Glym og Rebekku. Auðvitað á liturinn ekki að skipta öllu en það er nú miklu skemmtilegra að fá einhvern flottan lit, svo þar til annað sannast segjum við að hann sé jarpvindóttur;). En hvort sem hann er rauður eða jarpvindóttur er hann rosa fallegur og erum við hæst ánægð með hann, búið er að nefna gripinn og fékk hann nafnið Biskup (og er með 116 í blupinu);). Rebekka fer svo undir hann Sporð frá Bergi.

Við reynum örugglega að ná fleiri myndum af Biskupi á morgun og setja þær inn.
![]()
04.07.10
Stóðhestanotkun
Það getur nú stundum verið ansi erfitt að velja stóðhesta á merarnar, og oftar en ekki breytist það fljótt og jafnvel oft hvaða hesta maður ætlar að nota, hver veit kannski væri bara best að segja sem minnst og bíða þangað til merarnar koma fylfullar heim með að segja hvaða hestar voru notaðir;).
En búið er að staðfesta fyl í 2 merum, Abbadís frá Söðulsholti er fengin við Glym frá Innri-Skeljabrekku og Hildur frá Sauðárkróki er fengin við Þrist frá Feti. Fyrir rúmri viku var keyrt með 5 folaldsmerar á suðurlandi undir hesta. Blæja frá Svignaskarði fór undir Álf frá Selfossi, Von frá Söðulsholti fór undir Arð frá Brautarholti og Pyngja frá Skörðugili, Píla frá Brún og Fjóla frá Árbæ fóru allar undir Fláka frá Blesastöðum. Svo verða nokkrar merar sónaðar á Þriðjudaginn, td. Kórína frá Akureyri sem var hjá Hákoni frá Ragnheiðarstöðum og svo á að sóna nokkrar merar sem hafa verið hjá honum Ábóta frá Söðulsholti Enn eiga eftir að kasta 5 merar sem drífa vonandi bara í því núna á næstu dögum....

![]()
30.06.10
Nýjar fréttir
Þá er heyskapur hafinn í Söðulsholti. Um helgina voru slegnir 4 hektarar og fengum við af því 65 rúllur sem rétt náðist upp fyrir rigninguna. Í fyrra voru eitthvað um 40 rúllur af þessum sömu túnum.

Bæst hefur í folaldahópinn en Kolbrún frá Kjarnholtum kastaði í nótt, rauðstjörnóttum hesti, að sjálfsögðu;)

Fuglalífið verið ansi fjörugt að undaförnu en þeir sem hafa fylgst með síðunni hjá okkur muna kannski eftir hvíta stelkinum sem var hjá okkur hérna í fyrrasumar. Hann er mættur aftur á svæðið og sjáum við hann á sveimi hérna fyrir neðan hesthúsið öðru hverju. Svo hafa þrastahjón gert sig heimakomin inn í litla hesthúsi og styttist nú í að ungarnir fari að yfirgefa hreiðrið en það hafa verið ansi tíðar ferðir hjá foreldunum með mat í gogginum til þeirra, enda hlýtur nú að vera töluvert mikil vinna að fæða fimm svanga unga.

![]()
21.06.10
Smá frétt og myndir!!!
Hugsa að við séum nú ekki ein um að það vera komin með algjört ógeð á þessari pest, en við ætluðum svo að fara á bak í morgun en eftir að vera búin að reka heim og annað hvert hross hóstandi og restin með þessa fallegu hor klessur í nösunum. Var nú bara farið að járna.

Hugsa að náunginn sem fann upp setninguna „allt er vænt sem vel er grænt“ hafi nú ekki verið að meina grænar horklessur;)

Hérna er svo mynd af henni Kolbrúnu frá Kjarnholtum sem er pottþétt sigurvegari í stærsta bumba sumarins, hún er alveg gjörsamlega að springa en hún ætti að fara að kasta núna fljótlega. Hver veit kannski geymir hún bara 2 folöld í þessar risa bumbu.

Og svo er hérna ein mynd í restina af Dóra og hinni hálslöngu Sigurrós. Barnabörn Einars þau Inga Dís og Róbert eru búin að vera mjög dugleg að heimsækja folöldin og á aðeins nokkrum skiptum eru þau orðin rosa gæf og ekkert smá skemmtileg.
![]()
17.06.10
Tvo folöld á dag koma skapinu í lag;)
Fengum tvo þjóðhátíðarfolöld í dag, bæði undan Sigur frá Hólabaki. Við fengum jarpan hest undan Pílu frá Brún

Síðan fengum við rauðblesótta meri undan Pyngju frá Syðra-Skörðugili.

Gaman að sjá hvað folöldin undan Sigur eru lík og er mjög áberandi hvað þau eru öll fíngerð, lofthá með flottan háls, værum samt alveg til í að fara að fá fleiri merfolöld en það eru aðeins komnar tvær merar meðan það eru komnir fjórir hestar.
![]()
15.06.10
Enn fleiri folöld
Fjóla frá Árbæ kastaði í gær rauðstjörnóttum hesti undan Sigur Hólabaki, þetta átti nú eiginlega að verða meri svo það voru nú pínu vonbrigði. En hann er mjög fallegur svo maður er byrjaður að brosa aftur.

Já og svo má ekki gleyma því að Söðulsholt er komin með facebook síðu,;) endilega kíkja á hana
![]()
13.06.10
Fleiri folöld
Von frá Söðulsholti kastaði í nótt rauðstjörnóttum hesti undan Sigur frá Hólabaki. Hann er fíngerður með snilldar háls. Spurning hvort sá stutti eigi eftir að feta í spor bræðra sinna og hrúga að sér verðlaunum í folalda og ungfola sýningum;)

Læt fylgja eina mynd af honum Ófeig litla sem var að sniglast í kringum mig í nótt meðan Von var að kasta. Yfirleitt er nýfædd folöld frekar gangsöm en hann fór bara strax að brokka, skrefmikill og gormandi og vá hvað verður erfitt að þurfa bíða í 3 ár eftir að byrja að temja hann;)

![]()
12.06.10
Ófeigur frá Söðulsholti
Við vorum nú orðin frekar óþreyjufull að bíða eftir öðru folaldi, erum búin að fylgjast vel með merunum síðustu daga og loksins fór að leka mjólk úr Blæju sem áttu samkvæmt sónun að kasta fyrir nokkrum dögum. Við vöktum yfir henni um nóttina en þetta gekk samt óvenju rólega hjá henni því venjulega er þær mjög fljótar af þessu, hún var samt greinilega óróleg og var alltaf að fá öðru hverjir hríðir en lagðist aldrei niður til að rembast og svo bara alltíeinu hætti allt saman og hún fór bara að bíta. Eftir að hafa talað við dýralækni sem komst ekki strax, fór dóri inn í hana og í staðinn fyrir að finna fyrir fótum og snoppu fann hann fyrir bakinu á folaldinu. Má kannski segja að sem betur fer hefur Dóri mikla reynslu af sauðburði og náði að rétta það af og ná löppunum, það verður nú alveg að viðurkennast að við vorum ekkert voða bjartsýn að það væri lifandi.

Enda vorum við ekkert smá glöð þegar við náðum því frá henni og það var lifandi og ekki nóg með það heldur var það geggjað á litinn. Rauðskjóttur hestur, glaseygður á báðum augum og mjög mikið hvítur, bara rauður á eyrunum og milli þeirra, með rauðan blett við sitthvort augað og svo rauðan blett í öðrum náranum. GEGGJAÐ Flottur;) á trúlega eftir að verða mikið baðaður í framtíðinni.;)
Sá stutti var ekki skriðinn á fætur þegar var búið að nefna hann Ófeig en hann er undan 1.verðlauna klárhryssunni Blæju frá Svignaskarði og Hákon frá Ragnheiðarstöðum.
![]()
02.06.10
Ekki fréttir
Það er nú allt voða rólegt að frétta héðan, merarnar eru ekkert að drífa sig við að fara að kasta en erum nú samt að vona að við fáum folald núna um helgina(má allavegna halda í vonina;). Megnið af hrossunum eru ennþá hóstandi en erum aðeins byrjuð að hreyfa nokkur hross í rólegheitunum. Búið er að moka út úr stóra hesthúsinu og spúla alltsaman, og þá á bara eftir að sótthreinsa.

Fyrst það er búið að fresta Landsmótinu um ár er þá ekki bara spurning um að nýta svæðið okkar á Kaldármelum sem er allt í tipp topp standi eftir Fjórðungsmótið síðasta sumar og stefna að svona hálfgerðu fjórðungsmóti á Kaldármelum núna Júli/ágúst, gæðingakeppni og töltkeppni. Jafnvel að blanda bara kynbótasýningu inn í mótið og svo auðvitað ball í Kvosini til að toppa þetta???

Ábóti frá Söðulsholti
![]()
21.05.10
Fyrsta folald ársins
Ótrúleg tilviljun en annað árið í röð gerðist það að fyrsta folald ársins fæddist 21. Mai sem er jafnframt líka afmælisdagurinn hennar Iðunnar. Í fyrra kom rauð Klettsdóttir sem fékk nafnið Iðunn.
Núna kom rauðtvístjörnótt meri undan Hildi frá Sauðárkróki og Sólon frá Skáney og auðvitað vildi Iðunn frá aðra nöfnu svo sú nýfædda var umsvifalaust nefnd Silja. Afkvæmi Sólons hafa verið að gera það gott að undanförnu en sýnd hafa verið 3 hross undan honum núna í vor. Öll fóru þau í 1.verðlaun og 2 þeirra eru búinn að ná einkunnarlágmörkum inn á LM.

![]()
14.05.10
Smá maí fréttir
Þó öll hrossin séu orðinn veik bæði inni og úti, höfum við haft meira en nóg að gera síðustu daga. Erum búin að reka allt heim gefa ormalyf og færa á milli hólfa, taka DNA og frostmerkja, búin að girða allveg helling, slóðadraga, ýta út skurðruðningum og fræsa.


Á fyrri myndinni er Háfeti frá Söðulsholti 3.vetra undan Baug frá Viðinesi og Hrafnhildi frá Hoftúnum, á hinni myndinni er hin faxprúða Sóley frá Söðulsholti 2.vetra undan Sólon frá Skáney og Pyngju frá Syðra-Skörðugili
Allt korn komið niður sem er óvenju snemmt í ár,svo það verður spennandi að sjá hvort það verði ekki met uppskera í haust, það má allavegna halda í vonina;). Fyrsta merinn er farinn undir stóðhest en við fórum með hana Abbadís frá Söðulsholti undir Glym frá Innri-Skeljabrekku svo ef allt gengur upp fáum við folald í apríl á næsta ári. Ekki má svo gleyma töffaranum honum Ábóta undan Álfi og Sunnu frá Akri, en hann var að fá sína fyrstu meri til sín í vikunni og er auðvitað hæst ánægur með það. Ábóti verður í girðingu hérna í Söðulsholti í sumar en ef einhverjir hafa áhuga á að koma með meri undir hann er bara að bjalla í Einar í síma899-3314. Hægt er að sjá fleiri myndir af Ábóta undir linkunum stóðhestar.

![]()
05.05.10
Folaldatamningar, síðasta holl!!
Gleymdum allveg að segja ykkur frá síðustu þremur folöldunum sem við vorum að taka, en þau eru öll komin út fyrir svolittlu síðan. En þessi folöld voru þau...

Forseti frá Söðulsholti undan Rebekku frá Króki og Arð frá Brautarholti. Forseti er algjör töffari og fer um á öllum gangi, hægt er að sjá video af honum

Kobba frá Söðulsholti undan Hrafnhildi frá Hoftúnum og Sindra frá Keldudal. Langstærsta folaldið í hópnum og hefur greinilega erft hið frábæra geðslag frá pabba sínum. Kobba er líka seld en verður samt eitthvað áfram hjá okkur í hagagöngu.

Að lokum er Svana frá Söðulsholti undan Hildi frá Sauðárkróki og Kjarna frá Þjóðhólfshaga. Svana er framfalleg og bollétt og fer um á skrefmiklu brokki.
![]()
01.05.10
Skroppið á Strandirnar
Jæja þá er þessi blessaða kvefpest komin í Söðulsholt, en er samt ennþá mjög væg bara nefrennsli og smá hósti í nokkrum hrossum. Ákváðum við samt að hætta við námskeiðið með Magga Lár sem átti að vera hjá okkur þessa helgi. Og þar sem þetta er þá eiginlega fyrsta helgin í langan tíma sem ekki er eitthvað ákveðið fyrir stafni var ákveðið að bruna á strandirnar í Snartartungu kíkja á hrossin okkar þar og sauðburðinn.

Gullin okkar þrjú, Gloría, Skuggadís og Kolbrá höfðu það greinilega mjög gott. Við klipptum á þeim hófa og gáfum þeim ormalyf. Gloría gamla sem er orðinn 23 vetra og lítur bara mjög vel miða við aldur en undir henni er merfolald undan Hóf frá Varmalæk og þar sem við erum búin að ákveða að halda henni ekki oftar fær því sú stutta, sem heitir Skuggadís að ganga undir eins lengi og sú gamla leyfir.

Svo er það Kolbrá, jarpblesótt undan Gloríu og Sólon frá Skáney. Hún er 2 vetra vetra og orðinn algjör risi og þvílíkt draumageðslag. Þurftum ekki einu sinni að mýla hana til að gefa henni ormalyf eða klippa á henni hófana, stóð bara eins og stytta.


Hundurinn okkar hún Mýra er mjög uppátækjasöm og alltaf til í smá sprell. Hér eru Dóri og Kolbrún að mana hana í að fara undir brúna á bæjarlæknum sem hún að sjálfsögðu gerði að lokum.
![]()
26.04.10
Skemmtilegur Laugardagur og reiðnámskeið
Á laugardaginn var firmakeppni Skugga og að þessu sinni var það yngsta daman sem var að fara að keppa og var mikil spenna í gangi. Í vikunni áður hafði verið miklar pælingar í hvaða kjól hún ætti nú að keppa í, því eins og allir vita verður maður að eiga keppniskjól;). Loksins fannst síðan rétti kjóllinn og svo varð hún að vera í rauðu stígvélunum, með bleiku vettlingana og þá var hún til í slaginn. Pabbinn fékk svo að trítla með dömuna nokkra hringi á vellinum og heyrðist alltaf reglulega í þeirri stuttu „ hlauptu hraðar pabbi þau eru að ná mér“ og auðvitað fengu svo allir flottan verðlaunapening að launum,,

Eftir firmakeppnina þurftum við svo að bruna í Ölfushöllina á Ræktun 2010 þar sem Dóri var með Donnu og Kolfreyju í sýningunni.

Næsta laugardag og sunnudag kemur svo Maggi lár og verður með námskeið hjá okkur,, áhugasamir endilega senda okkur póst eða hringja í 8995625

![]()
18.04.10
Íþróttamót í Búðardal
Um helgina fóru Dóri og Arnar að keppa í Búðardal. Veðrið var bara æði,, Sól og að vísu smá gola, en það var sól allan tíman og vorlykt í lofti. Dóri fór með Nösu frá Söðulsholti í fimmgang og var þetta í fyrsta skipti sem hún fer að heiman,, voru við bara mjög ánægð með hana þó hún hafi að vísu ekki skeiðað enda var hún kannski pínu utan við sig svona á nýjum stað en hún lofar samt mjög góðu og verður spennandi að sjá hvað hún gerir í sumar.

Dóri fór með Kolfreyju í fjórgang og endaði annar eftir bráðabana um fyrsta sætið.

Þyrla frá Söðulsholti varð svo 4. í 100 metra skeiði og Arnar komst í úrslit í fjórgangi og tölti ungmenna, en hann ákvað að fara bara í tölt úrslitin og endaði efstur þar.

Hérna eru svo fullt af myndum frá mótinu af hinum og þessum keppendum.
![]()
09.04.10
Folaldatamningar, 2. holl
Næstu þrjú folöld sem við erum búin að vera að taka eru þau Gáski, Sörli og Dökkvi.

Sörli frá Söðulsholti undan Sunnu frá Akri og Húmvar frá Hamrahóli. Sörli er þriðja afkvæmi Sunnu og greinilegt að hún erfir vel frá sér 9 hálsinn því öll folöldin hennar hafa verið mjög framfalleg. Sörli fer um á brokki og tölti og ef hann líkist foreldrum sínum eitthvað verður hann örugglega algjör rýmisbolti.

Gáski frá Söðulsholti undan Hróð frá Refsstöðum og Gerplu frá Laugarsteini. Fíngerður og framfallegur, töltir og brokkar svo er þetta náttúrlega líka snilldar litur, brúnblesóttur glaseygður.

Dökkvi frá Dalsmynni undan Von frá Söðulsholti og Eldjárn frá Tjaldhólum, rólegur og yfirvegaður og með skemmtilega reistann og mjúkan háls, fer um á skrefmiklu tölti og brokki. Dökkvi náði að afreka það í haust að vinna folaldsýningu, nokkuð gott hjá þeim stutta;)
![]()
10.04.10
Myndir frá KB mótaröðinni
Nokkrar myndir úr forkeppninni í tölt og fimmgangi í KB mótaröðinni sem var dag.
![]()
09.04.10
Folaldatamningar..
Tókum fyrstu þrjú folöldin í gær og svo aftur í dag, gaman að sjá hvað þau eru fljót að læra og auðvitað voru miklar pælingar í gangi, hvert þeirra yrði nú best og þessháttar;). Stefnan er að taka þessi þrjú kannski 1-2 enn og svo næsta holl og svo öll kannski einu sinn enn áður en við setjum þau aftur út. En folöldin sem við tókum núna voru þau:

Moldi frá Söðulsholti undan Pílu frá Brún og Hæring frá Litla-kambi. Háfættur og bolléttur með fína frambygginu, virkilega geðgóður og fljótur að læra og fer á öllum gangi og lyftir vel.

Fjöður frá Söðulsholti undan Bruna frá Skjólbrekku og Fjólu frá Árbæ. Fíngerð og nett með hátt settan háls og mjúkan yfirlínu, var nú svoldið þrjósk fyrsta daginn sem við tókum hana en í dag var hún eins og hugur manns. Fer mest um á dillandi tölti.

Rúsina frá Söðulsholti undan Klett frá Hvammi og Örnu frá Varmadal. Ofsalega vinalegt og góðlegt tryppi þó það hafi kannski fokið svoldið í kellu í byrjun. Hún er fíngerð og nett með flottan háls og fer um á öllum gangi en mest þó á brokki.
![]()
06.04.10
Síðasti sopinn;)
Seinni partinn í dag rákum við heim folaldsmerarnar, gáfum þeim ormalyf og tókum folöldin undan þeim. Þau eru öll orðin stór og myndarleg og ætlum við að hafa þau inni í nokkrar daga til að kynnast þeim betur, kenna þeim að teymast, taka upp fætur og þessháttar. Auðvitað eigum við eftir að taka myndir af þeim og setja hérna inn næstu daga.

![]()
29.03.10
Fylfullar merar og stóðhestanotkun
Þær blása vel út fylfullu merarnar þessa dagana en nú styttist óðfluga í að sú fyrsta fari að kasta og er maður strax farin að hlakka mikið til að sjá hvað kemur. Auðvitað eru miklar pælingar í gangi hvaða hesta eigi að nota næsta sumar og er búið að snúast í marga hringi með suma merarnar og á eflaust eftir að gera það eitthvað áfram. En þeir hestar sem búið er að ákveða að nota og panta undir eru þeir Þristur frá Feti, Álfur frá Selfossi, Álffinnur frá Syðri-Gegnishólum, (albróðir Álfs), Hákon frá Ragnheiðarstöðum og svo reiknum við með að nota hann Ábóta frá Söðulsholti á nokkrar merar. Semsagt mjög skjótt þema;)

Á myndinni eru 3 folöld frá síðasta sumri, Rúsina undan Klett og Örnu frá Varmadal, Svana undan Hildi og Kjarna frá þjóðólfshaga og svo hann Moldi undan Pílu frá Brún og Hæring frá Litla-Kambi
![]()
21.03.10
Hákon frá Ragnheiðarstöðum
Skruppum á Suðurlandið á Laugardeginum á aðalfund Hákonsfélagsins. Hákon er rauðskjóttur, 2. Vetra foli, undan Hátíð frá Úlfsstöðum og Álf frá Selfossi sem búið á 3 hluti í. Byrjað var á því að hittast í Hólaborg sem er ný og glæsileg sjúkra og þrekþjálfunarstöð rétt við Stokkseyri. Þar var var byrjað að sýna okkur aðstöðuna en þar ræður hann Ingimar Baldvinsson ríkjum, stórglæsileg aðstaða og mart um flotta gripi í þjálfun hjá honum. Síðan var Hákon látin skokka um í höllinni og held að það sé óhætt að segja að hann standi fyllilega undir væntingum eiganda sinna þar sem hann hljóp hágengur og skrefmikill um höllina. Voru eigendurnir allir eitt stórt bros þegar haldið var á veitingastaðinn Kríuna til snæðingar en þar var aðalfundurinn svo haldinn þar sem var farið yfir ýmiss mál.
Einar á einmitt von á folaldi undan Hákoni og Blæju núna í lok Maí og verður spennandi að sjá hvað kemur,, kannski skjótt víga meri!!! ;)
![]()
16.03.10
Myndir frá KB Mótaröðinni
Tókum fullt af myndum af keppendum á KB mótaröðinni sem var síðustu helgi en aðalega vorum við þó að reyna að ná myndum af okkar liðsmönnum í Snæfelling sem stóðu sig frábærlega og verður spennandi að sjá í hvaða sæti liðið verður núna en það var í öðru sæti fyrir þetta mót. Arnar okkar og Brunki kepptu í ungmennaflokki og stóðu sig bara vel og enduðu í fjórða sæti.
![]()
15.03.10
Nýjar myndir af söluhestum
Jæja loksins var drifið í því að taka myndir af einhverjum hestum í reið, en þeir heppnu sem við mynduðum í dag voru þeir Bakkus og Sindri.
Bakkus frá Söðulsholti er hesturinn sem prýðir forsíðuna en hann er 4 vetra stóðhestur undan Borða frá Fellskoti og Hrafnhildi frá Hoftúnum. Hann er geðgóður og gangóður foli, faxmikill með reistann og mjúkann háls og ekki skemir nú liturinn fyrir honum.
Hinn hesturinn sem var myndaður var Sindri frá Keldudal. Sindri er á fimmta vetur undan Hágang frá Narfastöðum og Ísold frá Keldudal. Sindri er alhliðahestur með frábært geðslag, en fyrir áhugasama þá eru báðir þessir folar til sölu;)



![]()
08.03.10
Námskeið næstu helgi
Helgina 13-14 mars mun Hanna koma og vera með Reiðnámskeið fyrir börn og unglinga, nánari upplýsingar og skráningar í síma 8995625( dóri) eða á sodulsholt@sodulsholt.is Verð er 12.000 innifalið er matur/kaffi og geymsla á hrossunum yfir helgina Síðasti skráningardagur er á fimmtudaginn.

![]()
07.03.10
Vígsla reiðhallarinnar í Borganesi
Reiðhöllin í Borganesi var vígð og skírð í dag en hún hlaut hið flotta nafn Faxaborg. Við vorum með í smá töltatriði ásamt Gunnari Halldórs og Benna Líndal, gekk það bara fínt en við vorum með þær Donnu frá Króki og Lipurtá frá Söðulsholti. Hérna koma nokkrar myndir af atriðinu.
Einnig er hægt að sjá fleiri myndir frá vígslunni inni á heimasíðu Skugga:
![]()
01.03.10
Myndir frá síðasta námsskeiði
Setjum hérna inn nokkrar myndir af námskeiðinu sem var um helgina með Magnúsi Lárussyni. Námskeiðið var mjög skemmtilegt og fræðandi og þar sem allir fóru heim með bros á vör var ákveðið að fá Magga til að koma og vera með annað námskeið hjá okkur 17-18 Apríl.
![]()
25.02.10
Katla í jafnvægisæfingum og reiðnámskeið fyrir börn!!!
Tókum myndavélin með í hesthúsið í dag og ætluðum að taka myndir af nokkrum af hestum í reið, en þar sem veðrið var frekar leiðinlegt endaði það bara með þvi að Katla litla, 3 ára, varð mynduð í staðinn. Henni finnst það reyndar ekkert leiðinlegt en yfirleitt þegar hún kemur heim úr leikskólanum heimtar sú stutta að fá að fara á hestbak. Hesturinn sem fær þann heiður að bera heimasætuna um höllina heitir Vonarneisti og er í eigu ömmu hennar Kötlu, en annars er hans aðal hlutverk reyndar að vera teymihesturinn okkar. Helgina 13 og 14 Mars mun hún Hanna okkar koma og vera með reiðnámskeið fyrir börn og unglinga en við munum auglýsa það betur þegar nær dregur.
![]()
25.02.10
Samkeppni um nafn á reiðhöllina í Borgarnesi
Ákveðið hefur verið að formleg vígslu Reiðhallarinnar við Vindás í Borgarnesi fari fram sunnudaginn 7. mars næstkomandi. Í aðdraganda vígslunnar hefur einnig verið ákveðið að fram fari samkeppni um nafn á húsið. Nafnanefndin er skipuð þeim Kristjáni Gíslasyni formanni, Sigurði Oddi Ragnarssyni og Magnúsi Magnússyni. Verðlaun verða veitt fyrir tillögu að nafni sem valið verður. Ef fleiri en ein tillaga berst um sama nafnið, verður dregið um vinningshafa. Hér með eru íbúar á svæðinu, hestamenn og Vestlendingar nær og fjær hvattir til að senda inn tillögur að nafni. Þær skulu annað hvort vera póstlagðar í lokuðu umslagi á formann dómnefndar: Kristján Gíslason, Súlukletti 3, 310 Borgarnesi eða sendar á tölvupósti á: kristgis@grunnborg.is (gott að merkja í efnislínu “Tillaga að nafni.”) Tillögur þurfa að hafa borist til formanns nafnanefndar fyrir nónbil þriðjudaginn 2. mars 2010.

![]()
20.02.10
Reiðnámskeið í Söðulsholti
Helgina 27-28 febrúar kemur Maggi Lár og verðu með reiðnámskeið hjá okkur. Námskeiðið kostar 20.000 og innifalið er geymsla fyrir hrossin, hádegismatur, kökur og kaffi báða dagana. Áhugasamir geta sent okkur póst eða haft samband í síma 8995625(dóri) og endilega hafa samband sem fyrst ef þið hafið áhuga.

![]()
15.02.10
Fljótt skipast veður í lofti
Það er ótrúlega fljótt að breytast veðrið hérna á nesinu. Eftir ótrúlegt blíðviðri síðustu daga byrjaði að hvessa í gær og jókst síðan vindurinn í morgun, það varð svo hvasst að þakglugginn á vélageymslunni fór af í heilu lagi og má teljast ótrúleg heppni að enginn hafi slasast. Glugginn fauk niður af þakinu og lenti á girðingu fyrir neðan húsið en aðeins nokkrum mínútum áður hafði Óli á Mýrum verið við girðinguna að ná í slöngur. Þaðan fauk svo þakglugginn niðri í svokallaða kvos þar sem folaldsmerunum er gefið en Arnar hafði verið þar hálftíma áður að gefa þeim og hafa merarnar og folöldin verið þarna í mestu rólegheitum að éta þegar þakglugginn hefur komið fljúgandi niður klettana og lent á annari gjafagrindinni. Sem betur fer virtust þau öll hafa verið nógu snögg að forða sér undan glugganum en ekki var laust við að maður hálf kviði fyrir því að kíkja fram af klettunum þegar við áttuðum okkur á því hvar glugginn hafði lent. Merarnar voru skiljanlega mjög hræddar og hvekktar eftir þetta og hættu sér ekki aftur upp í skjólið í kvosinni þannig að við gáfum þeim aðra rúllu neðar og gátum við með herkjum sannfært þær um að öllu væri nú óhætt og í lagi að fara í heyið.
![]()
14.02.10
KB Mótaröðin
KB mótaröðin hófst á Laugardaginn með fjórgangi en mótið var haldið í nýrri og glæsilegri reiðhöll í Borgarnesi. Mótið er liðakeppni og erum við í liði Snæfellinga sem stóð sig auðvitað glæsilega. Við fórum með 3 merar, þær Donnu, Kolfreyju og Lipurtá sem voru allar að keppa á sínu fyrsta móti og gekk það bara ágætlega. Rúmlega 90 skráningar voru á mótinu og skiptist mjög vel í alla flokka, mjög skemmtilegt mót og góð stemming. Næsta mót er svo tölt og er eftir mánuð, tókum nokkrar myndir af keppendum í liðinu okkar sem koma hérna fyrir neðan.
![]()
20.01.10
Myndbönd af sölufolöldum.
Vorum að búa til stutt myndbönd af Þeim Molda og Forseta frá Söðulsholti, sem eru báðir mjög vel ættuð hestfolöld á söluskrá hjá okkur.

Myndband af Molda frá Söðulsholti
Myndband af Forseta frá Söðulsholti
![]()
20.01.10
Hvolpahittingur og hálmbaggar
Þá er fyrsti hvolpahittingur búinn og gekk bara vel, voru mættir 9 hvolpar á ýmsum aldri. Ekki voru allir komnir með áhuga á kindunum en margir sýndu flotta takta. Það verður spennandi að sjá hvernig þeir eiga eftir að þróast en við stefnum á annan svona hittinginn einhverntíman fljótlega.
Einnig viljum við benda á við erum byrjuð að selja hálm í littlum böggum og er hægt að sjá meira um það á
![]()
20.01.10
Hvolpahittingur í Hestamiðstöðinni.
Það er stefnt að hvolpahittingi í Hestamiðstöðinni laugardaginn 30 jan. Þetta er ekki alvörunámskeið heldur á að reyna að ná saman B C hvolpum, ótömdum eða lítið tömdum 6 mán. eða eldri. Ekki verður um mikla kindavinnu að ræða en hvolparnir fá þó aðeins að sýna taktana ef áhuginn er kominn. Þarna verða vonandi einhverjir sérfræðingar á svæðinu og munu þeir ekki, ef að líkum lætur, liggja á skoðunum sínum um stöðu hvolpanna í námsferlinu og hvernig standa skuli að framhaldinu við tamninguna.
Húsnæðiskostnaði verður skipt niður á gesti og gangandi og þeir sem luma á köku í búrinu eða í kistunni eru sérstaklega velkomnir, grípi þeir hana með. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Skráning og upplýsingar á dalsmynn@ismennt.is eða Svanur í síma: 6948020

![]()
24.01.10
Mokstur
Helgin fór í það að moka út úr hesthúsinu en venjulega höfum við mokað út á einum degi en auðvitað má maður ekki missa af landsleik í handbolta svo við tókum 2 daga í þetta núna. Vorum að reyna að telja hversu oft það er búið að moka út frá upphafi og við höldum að þetta hafi verið í 5. skipti. Við hreinsum aldrei skít úr stíunum heldur bætum bara vel af hálmi í þær á hverjum degi og erum að fara með sirka 3 rúllur á viku en það munar rosalega um það hvað stíurnar eru djúpar og stórar.


![]()
20.01.10
Sýnishorn úr hesthúsinu
Héðan úr sveitinni er auðvitað allt gott að frétta, veðrið er að vísu mjög furðulegt en það er búið að vera mjög heitt síðustu daga og leiðinlega mikil rigning og núna seinnipartinn komu með reglulegu millibili þrumur og eldingar. Það verður nú allveg að viðurkennast að maður væri allveg til í smá snjó og frost, bara svona til að fá skemmtilegra reiðfæri;)

Hrossin á leik út í gerði, og á hinni myndinni eru hitalamparnir sem við vorum að setja upp í gær.
þar sem það er nú orðið löngu tímabært að sýna ykkur eitthvað af hrossunum sem við erum með í húsinu, smelltum við af nokkrum myndum í dag.


Fyrst koma myndir af honum Glað frá Stórhól, hann er undan Tígul frá Gýgjarhóli og er í eigu hennar Jasmínar í Sviss.


Svo koma hérna myndir af henni Kolfreyju okkar undan Parker frá Sólheimum, hún var mjög slæm í bakinu í fyrra og erum við að vona að þetta sé að verða komið í lag svo hægt verði að sýna hana í vor.

Hérna koma svo tvær myndir af henni Donnu frá Króki undan Júpiter frá Stóru-Hildisey, hún er í eigu Steinunnar á Króki.
Setjum svo bráðlega inn myndir af fleirum hrossum.
![]()
14.01.10
Doði frá Króki
Smelltum af nokkrum myndum af Doða frá Króki í veðurblíðunni í dag sem minnti nú helst í góðan dag í byrjun Maí, en ekki miðjan Janúar. En fyrir áhugasama þá er Doði til sölu, og er efni í frábæran reiðhest/ferðhest, stór, sterkur og fjallmyndarlegur,mjúkur á brokki og allur að rýmgast á töltinu. Doði er undan Júpiter frá Stóru-Hildisey og Stöku frá Ytri-skógum ( B. 7,93- H,7.76-A, 7.84)

![]()
13.01.10
Hestamyndir
Mynd sem Iðunn tók af honum Gáska frá Söðulsholti var valin fallegasta folaldamyndin á 847.is. Gáski er undan Hróð frá Refsstöðum og Gerplu frá Laugasteini.

Iðunn átti einnig myndina sem var í 5 sæti í keppninni en sú mynd var af Þöll frá Dalsmynni undan Sindra frá Keldudal og Dögg frá Kjarnholtum.

Fengum líka sendar í vikunni skemmtilegar myndir af honum Vin frá Syðra-Skörðugili og nýjum eiganda hans henni Mareike, við þjálfun í Þýskalandi.

![]()
10.01.10
Metþátttaka á folaldasýningu
Það var metþátttaka á folaldasýningunni sem við héldum í gær en 78 folöld voru skráð til leiks 42 merar og 36 hestar. Dómarar voru Þorvaldur Kristjánsson og Hallgrímur Sveinsson og komust að því fullkeyptu að dæma þennan fjölda. Það gerði þeim enn erfiðar fyrir að þetta var mjög jafn og glæsilegur folalda hópur sem voru lang flest að stigast yfir 65 stig. Folald sýningarinnar var Dökkvi frá Dalsmynni, en hann vann hestaflokkinn og áhorfendaverðlaunin. Dökkvi er einmitt sammæðra honum Funa frá Dalsmynni sem vann ungfolasýninguna sem var hjá okkur í desember.
Viljum við þakka öllum fyrir frábæran dag en sérstaklega viljum við þakka dómurunum, Lárusi Hannessyni, sem stóð sig frábærlega sem þulur og svo Áslaugu á Þverá, sem sá um kaffiveitingar. Aðdáunarvert fannst okkur einnig hvað eigendur folaldanna voru passasamir að vera ekki að láta bíða eftir sér og var næsta folald sem átti að koma inná ávallt tilbúið í horninu við dyrnar. Enda þurfti sýningin að ganga ansi hratt til að ná að klárast á skikkanlegum tíma.

Smellið hér til að sjá úrslit sýningarinnar
![]()
07.01.10
Góð skráning
Um 70 skráningar eru komnar á folaldasýninguna sem verður hjá okkur á laugardaginn sem er náttúrulega alveg frábær þátttaka. Hvetjum við sem flesta að mæta og líta gripina augum, en mikið verður um vel ættuð og spennandi folöld. Á folaldasýningum sem hafa verið undafarin ár hafa alltaf einhver folöld skipt um eigendur og erum við nokkuð viss að eins verði núna;) Sniðugt að kippa með sér tjaldstólum eða einhverju til að tilla sér á meðan á sýningunni stendur.

Já við vonumst til að sjá sem flesta koma og horfa á þessar vonarstjörnur framtíðarinnar
![]()
03.01.10
Folaldasýning í Söðulsholti
Laugardaginn 9.Janúar kl. 13.00 ætlum við í Söðulsholti í samstarfi við Snæfelling að vera með folaldasýningu í Söðulsholti.. Hver skráning kostar 1000 kr, hægt er að skrá hjá Einari í síma 8993314 eða hafa samband á einar@sodulsholt.is. Sýningin er opin öllum. Gefa þarf upp nafn,lit, fæðingarstað,föður, móðir, ræktanda og eiganda. Keppt verður í kynjaskiptum flokkum. Skráningargjald greiðist inn á 0354-26-4027 og kt 540999-2019. Síðasti skráningardagur er fimmtudaginn 7.janúar.
Aðgangseyrir er 1000 kr og innifalið í því eru kaffiveitingar, frítt fyrir 12 ára og yngri og auðvitað vonumst við til að sjá sem flesta;)
