Fréttir 2009

24.12.09

Jólakveðja

21.12.09

Hvít jól???

Það er búið að vera ótrúlega kalt síðustu dagana, þó það sé kannski ekki mikið frost þá fer lognið frekar hratt yfir. Þannig að nú er búið að draga upp kuldagallana, síðbrókina og stóra trefilinn frá ömmu en það verður nú að viðurkennast að reiðhöllinn heillar ótrúlega mikið í svona veðri. Eins og er enginn snjór en auðvitað vonar maður og snjói eitthvað á næstu dögum svo maður fá nú hvít jól.
Tókum nokkrar myndir af útiganginum í kvöldsólinni sem er búin að vera virkilega falleg síðustu daga.

16.12.09

Verðlaun í ljósmyndasamkeppni

Mynd sem Iðunn tók af þeim mæðgun Pyngju frá Syðra-Skörðugili og Gígju litlu að kúra saman í sólbaði varð í öðru sæti í ljósmyndasamkeppni Eiðfaxa.

Við vorum einmitt að spá í því hvort sumar merar ættu myndvænni folöld en aðrar;), því þessi mynd af Sóleyju undan Pyngju var líka í verðlaunasæti í ljósmyndasamkeppni eiðfaxa í fyrra.

Sóley frá Söðulsholti

15.12.09

Loksins komið logn

Það er mikið að gera þessa dagana en við erum með 35 hross inni og 2 folöld, en restin af folöldunum fær að vera undir merunum fram í mars/apríl. Tamningar ganga vel og mikið af efnilegum og skemmtilegum hrossum eru komin inn. Einnig verður margt skemmtilegt um að vera hjá okkur í vetur t.d verður folaldasýning hérna 9. Janúar, 27/28 febrúar verður reiðnámskeið með Magnúsi Lárussyni og einnig ætlar Sölvi Sigurðsson að koma og vera með tveggja helga raðnámskeið en hann kennir í einkatímum. Ekki er alveg komin dagsetning á námskeiðin hjá Sölva, væntanlega í febrúar og mars, en það skýrist betur eftir áramót. Endilega setjið ykkur í samband við okkur ef þið hafið áhuga á þessum námskeiðum.

Smellti af nokkrum myndum í dag í blíðunni, á fyrri myndinni eru Dóri og Arnar að koma úr teymitúr með tvær Parkersdætur í taumi. Á seinni myndinni er Iðunn að koma úr reiðtúr á honum Molda litla frá Höll en það er ekki á hverjum degi sem maður fær 9 vetra hesta í frumtamningu.

Hérna eru svo Arnar og Dóri eitthvað að dunda sér inn í höll en það er ótrúlega þægilegt þegar það er komið myrkur úti um 5 leytið að geta bara skellt sér inn í höll og haldið áfram að vinna. Tryppið sem Dóri er á er hún Lukka frá Söðulsholti, þriggja vetra undan Hrym frá Hofi, en hún er að koma skemmtilega á óvart og er farin að verða í pínu uppáhaldi.

06.12.09

Úrslit ungfolasýningarinnar

Ungfolasýningin sem var hjá okkur í gær heppnaðist með ágætum en þrátt fyrir vonsku veður í vikunni á undan og tvísýnum veðurspám um helgina mættu 22 folar til leiks. Virkilega gaman var að sjá marga hesta frá folaldasýningum síðustu ára komna aftur til að spreyta sig. Ekki var mikill munur á efstu hestunum en veitt voru verðlaun fyrir efsta hest í hverjum aldursflokki og svo fyrir þá 3 sem voru stigahæstir yfir heildina. Dómari var sem fyrr Þorvaldur Kristjánsson.

Funi frá Dalsmynni

Í 1.sæti varð Funi frá Dalsmynni, 3. vetra undan Parker frá Sólheimum og Von frá Söðulsholti
eigandi er Svanur Guðmundsson.

Ábóti frá Söðulsholti

Í 2. sæti varð Ábóti frá Söðulsholti, veturgamall undan Álf frá Selfossi og Sunnu frá Akri,
eigandi er Söðulsholt ehf.

Illugi frá Þorkelshóli 2

Í 3. sæti var Illugi frá Þorkelshóli 2, 3. vetra undan Platon frá Þorkelshóli 2 og Ísold frá Neðra Vatnshorni,
eigendur hans eru Kolbrún Grétarsdóttir og Ulla Kristin Lundberg.

Þetta er nú ekki í fyrsta skipti sem Funi vinnur til verðlauna því hann vann Ungfolasýningu á Miðfossum 2007 og á folaldsýningu á Bergi var hann kosinn flottasta folaldið af áhorfendum.

Áhorfendur völdu sér síðan áhugaverðasta gripinnn og sigraði þar hann Dynkur frá Borgarlandi, 2. vetra undan Dyn frá Hvammi en næstur í röðinni varð Sparisjóður frá Hallkelsstaðarhlíð, 3.vetra undan Gust frá Hóli.

Smellið hér að skoða fullt af myndum frá gærdeginum

Hérna koma svo efstu 3 í hverjum aldursflokki.

Veturgamlir folar

1. Ábóti frá Söðulsholti,
rauðhöttóttur blesóttur
M: Sunna frá Akri
F: Álfur frá Selfossi
Eig, Söðulsholt ehf

2. Hylur frá Miðhrauni,
rauðskjóttur
M: Fjöður frá Bjarnarnesi
F: Álfur frá Selfossi
Eig. Ólafur Ólafsson

3. Glasi frá Söðulsholti
Móálóttur glaseygður
M: Blæja frá Svignaskarði
F: Hrymur frá Hofi
Eig, Söðulsholt ehf

2. vetra folar

1. Dynkur frá Borgarlandi
Fífilbleikur
M: Freydís frá Borgarlandi
F: Dynur frá Hvammi
Eig, Ásta Sigurðardóttir og Kolbrún Grétarsdóttir

2. Skallagrímur frá Miðhrauni
rauður
M: Fjöður frá Bjarnanesi
F: Sær frá Bakkakoti
Eig. Ólafur Ólafsson

3. Egill frá Miðhrauni,
rauður
M: Spá frá Hafsteinsstöðum
F: Þóroddur frá Þóroddsstöðum
Eig. Ólafur Ólafsson

3. vetra folar

1. Funi frá Dalsmynni
rauðstjörnóttur
M: Von frá Söðulsholti
F: Parker frá Sólheimum
Eig, Svanur Guðmundsson

2. Illugi frá Þorkelshóli 2
Móbrúnn stjörnóttur
M: Ísold frá Neðra-Vatnshorni
F: Platon frá Þorkelshóli2
Eig. Kolbrún Grétarsdóttir og Ulla Kristin Lundberg

3. Sparisjóður frá Hallkelstaðarhlíð
brúnn
M: Karún frá Hallkelsstaðarhlíð
F: Gustur frá Hóli
Eig, Sigrún Ólafsdóttir

26.11.09

Ungfolasýning !!!!

Laugardaginn 5.Desember kl. 13.00 ætlum við í Söðulsholti í samstarfi við Snæfelling að vera með ungfolasýningu í Söðulsholti.
Sýningin er opinn öllum og er ætluð ógeltum folum 1-3 vetra. Hver skráning kostar 1000 kr, hægt er að skrá hjá Einari í síma 8993314 eða hafa samband á einar@sodulsholt.is.
Gefa þarf upp nafn, fæðingarnúmer,lit, föður og móðir. Skráningargjald greiðist inn á 0354-26-4027 og kt 540999-2019.
Síðasti skráningardagur er fimmtudaginn 3.Des

Aðgangseyrir er 1000 kr og innifalið í því eru kaffiveitingar, frítt fyrir 12 ára og yngri. Þar sem við erum ekki með áhorfendastúku væri sniðugt að kippa með sér t.d. tjaldstólum/garðstólum til að tilla sér á.
Einstakt tækifæri til að til sýna og sjá verðandi stóðhestaefni;) svo auðvitað vonumst við til að sjá sem flesta.

Ábóti frá Söðulsholti

23.11.09

Jólahreingerning!!

Loksins drifum við í því að byrja að skrúbba og bóna allt í hesthúsinu en við höfum gert það einu sinni á ári síðan það var byggt. Arnar fékk það skemmtilega hlutverk að smúla allt saman og þar sem það er nú frekar erfitt að ná hestafitunni af innréttingunum stálumst við til þess að nota heitavatnið og þá flaug allur skítur af og innréttingarnar voru eins og nýjar á eftir.

15.11.09

Knapamerkjanámskeið

Þá er öðru knapamerkjanámskeiðinu fyrir stig eitt lokið, fóru allir í 2 reiðtíma á Föstudeginum og svo var próf á laugardeginum, bæði bóklegt og verklegt. Í því verklega var m.a. farið yfir hvernig lagt var á hrossið, því kembt og hvernig fæturnir eru teknir upp, hvernig fara á rétt á bak og af baki, hrossin teymd við hlið á feti og brokki, lóðrétt áseta á feti og brokki og hálflétt og stígandi á brokki. Dómari í prófinu var Randi Holaker og gekk þetta allt eins og sögu þó pínu stress hafi verið í mannskapnum, en við vitum að allir náðu verklega hlutanum og þó við vitum ekki útkomuna úr þeim bóklega eru við samt alveg 90% viss um að allir hafi náð;).
Við tókum fullt af myndum sem við látum auðvitað fylgja með.

04.11.09

Sýnikennsla hjá Tóta Eym

Í gærkvöldi fórum við að sjá sýnikennslu hjá Þórarni Eymundssyni í nýju reiðhöllinni í Borgarnesi við Vindás. Reiðhöllin lítur frábærlega út og óskum við Borgnesingum innilega til hamingju með þetta glæsilega hús. Uppákoman í gær var sú fyrsta sem eitthvað var tengd hestum og var næstum því húsfyllir í höllinni svo greinilega er mikill áhugi hjá fólki á svæðinu. Sýnikennslan var bæði skemmtileg og fróðleg og lagði Tóti mikla áherslu á að nota ásetuna meira og tauminn minna til að stjórna hestinum. Hann lagði áherslu á samspil ábendinga og að vera þolinmóð við hestinn og umbuna honum fyrir minstu viðleitni í byrjun því eins og allir vita þá gerast góðir hlutir hægt;).

Þórarinn hafði með sér tvær hryssur að norðan sem hann notaði í sýnikenslunni. Sú rauða er hún Vanadís frá Holtsmúla, 4.vetra undan Orra frá Þúfu og Vöku frá Arnarhóli en jarpa hryssan er Þóra frá Prestsbæ, 7.vetra einnig undan Orra frá þúfu og Þoku frá Hólum.

25.10.09

Folaldaúttekt

Á föstudaginn rákum við heim stóðið, kláruðum að örmerkja nokkur folöld, tökum inn hesta og settum aðra út í staðinn. Gaman að sjá hvað hrossin breytast þegar þau fara að loðna, því miður ekki til batnaðar en uppáhalds hrossin eru nú alltaf jafn falleg;). Tókum dálítið af myndum af folöldunum sem eru mjög ólík í byggingu og ganglagi. Örnu og Klettstdóttir er rosa falleg, bollétt og fíngerð með flotta frambyggingu en mætti alveg lyfta meira,, fær maður einhvern tíman nóg af fótaburði!!;). En svo eru önnur folöld sem eru kannski ekki eins falleg en sprikla þeim mun meira með löppunum. Þetta getur nú samt verið fljótt að breytast og verður spennandi að sjá hvernig þau eiga eftir að koma undan vetrinum.

Þetta eru tvær dætur Kletts frá Hvammi sem báðar eiga sennilega eftir að verða gráar. Sú fyrri er undan Örnu frá Varmadal og hin undan Rökkvadótturinni Lipurtá frá Söðulsholti. Sú er ganggóð og lyftir vel löppunum og á líka örugglega eftir að verða mjög faxprúð

Sú svartsokkótta er Fjöður undan Fjólu frá Árbæ og Bruna frá Skjólbrekku, fíngerð og framfalleg, fer mest á tölti og skeiði. Rauðstjörnótta folaldið er hann Forseti undan Rebekku og Arð frá Brautarholti, fallegur hestur og mjög gangóður, fer aðalega um á mjúku tölti.

25.10.09

Tveir nýjir hestar til sölu

Komnir tveir nýjir hestar til sölu hjá okkur, þetta eru þeir Brútus frá söðulsholti og Doði frá Króki.

Brútus IS2005137855 er 4 vetra undan Vordísi frá Litlu-Ásgeirsbrekku og Arm frá Sveinatungu. Brútus er myndarlegur og mjög þægilegur foli. Klárhestur sem er farinn að tölta ágætlega. Brútus er að verða 3 mánaða taminn og á eftir að verða frábær reiðhestur/fjölskyldu hestur.
Hinn hesturinn sem heitir því skemmtilega nafni Doði 2003186631 er Brúnstjörnóttur stór og myndarlegur með mikið fax, þó hann sé 6 vetra er hann einnig bara að verða 3 mánaða taminn. Hann á eftir að verða frábær hestur, gangóður með ágætan fótburð. Doði er undan Júpiter frá stóru Hildisey og Stöku frá ytri-Skógum en hún er sýnd með 7.84 í aðaleinkunn og er m.a með 9 fyrir stökk og 8,5 fyrir vilja-fegurð í reið og háls og herðar.

Báðir þessir hestar eru þægir og traustir en þar sem þeir eru bara að verða 3 mánaða tamdir henta þeir kannski ekki fyrir byrjendur eða lítið vana.

Dóri á Doða Dóri á Doða

Dóri á Doða.

Arnar á Brútusi Arnar á Brútusi

Arnar á Brútusi.

19.10.09

Spennandi dagskrá í vetur

Fyrsta knapamerkjanámskeiðinu lauk núna um helgina og auðvitað gekk það frábærlega eins og öll önnur námskeið sem hafa verið hérna hjá okkur,;) Á námskeiðinu var mikið farið yfir ásetuna á feti og á brokki, farið í stígandi- og hálflétta ásetu, hvernig er lagt á, teymingar við hlið á feti og brokki. Allt gekk þetta eins og sögu og er því bara stefnt á stöðupróf á næsta námskeiði sem er eftir mánuð. Þó að sumir hafi reynt að forðast myndavélina sem heitan eld náði ég nú myndum af öllum sem voru á námskeiðinu og læt þær auðvitað fylgja með;). Það er líka frekar erfitt að hlaupa í felur þegar maður er í jafnvægisæfingum í hringtaum).

En annars verður margt spennandi á dagskrá í vetur og má m.a nefna ungfolasýningu í byrjun desember, folaldsýningu í janúar og svo stefnum við á að fá Sölva Sig og Magga Lár til að koma og vera með reiðnámskeið. Einnig er alltaf á dagskrá að fá einhvern til að koma og vera með járningarnámskeið, en þið megið líka endilega hafa samband við okkur ef þið eruð með einhvern kennara í huga sem þið viljið fá til að koma og kenna.

11.10.09

Haustfréttir

Það er ekki hægt að neita því að það styttist óðfluga í veturinn, kominn snjór í fjöllinn og alltaf styttist dagurinn meir og meir. Í síðustu viku færðum við hrossin milli hólfa og smelltum við af nokkrum myndum af þeim í leiðinni. Eru þau öll orðinn vel feit og farin að loðna mikið og sem betur fer hefur ekki rignt mikið í haust svo vonandi losnar maður við það að þau hnjóskist, en síðustu haust hafa verið frekar slæm.

Folöldin hafa stækkað helling og hafa breyst mikið síðan þau fæddust í sumar en þau eru öll róleg og frekar gæf og er gaman að fylgjast með þeim og bera þau saman og ekki eru allir alveg sammála um hvert þeirra er flottast;)

Rúsína frá Söðulsholti Ljóska frá Söðulsholti

Á fyrri myndinni er Örnu og Kletts dóttir og þá þeirri seinni er hún ljóska undan Hæringi og Kolbrúnu.

Fórum líka og kíktum á graddatittina sem eru geymdir upp í Dalsmynni og eru þeir líka orðnir vel og feitir og loðnir og verðum gaman að sjá hvernig þeir eiga eftir að koma undan vetrinum.

Glasi frá Söðulsholti Ábóti frá Söðulsholti

Á fyrri myndinni er hann Glasi undan Hrym frá Hofi og Blæju frá Svignaskarði en á þeir seinni er uppáhaldið okkar hann Ábóti undan Sunnu frá Akri og Álf frá Selfossi.

08.10.09

Góðu fyljun hjá Sigur

Í dag sónuðum við síðustu merarnar sem voru hjá honum Sigur frá Hólabaki en það kom bara mjög vel út. Það voru 2 merar geldar af 21 sem þýðir 90% fyljun sem er hreint frábær árangur. Svo nú eru allar merarnar komnar heim fengnar frá stóðhestum fyrir utan hana Örnu frá Varmadal sem var hjá honum Glym frá Ynnri-Skeljabrekku en hún var enn hjá honum þegar var sónað og þurfum við að láta kíkja á hana eftir hálfan mánuð. Þannig að ef allt gengur að óskum ættu að koma 14 folöld næsta sumar. Fyrir utan þá Sigur og Glym notuðum við Sólon frá Skáney og Hákon frá Ragnheiðarstöðum.

Sigur að stíga í vænginn við eina að merum sumarsins

29.09.09

Skemtileg vísa

Fengum inn þessa líka flottu vísu inn á gestabókina okkar frá Einari Sigfússyni
(Ljóð.is) og viljum við þakka kærlega fyrir þetta

27.09.09

Sá Stóri

Einir frá Króki er pottþétt stærsti hestur sem komið hefur inn í hesthúsið hér í Söðulsholti og við hugsum að þetta sé stærsti íslenski hestur sem við höfum séð. Við mældum hann um daginn og reyndist hann vera 1.60 á hæð, pínu skemmtileg tilviljun því hún Julía sem er að vinna hjá okkur er einmitt jafnstór, en það er hún sem heldur í hann á myndinni. Einir er undan Júpiter frá Stóru-Hildisey og Móu frá Búlandi.

Júlía og Einir

Annars ganga tamningar vel og sérstaklega er gaman að byrja á 3. vetra trippunum en þau eru öll orðin reiðfær og litur bara mjög vel út með þau, en við reiknum með að setja þau út núna í næstu viku og tökum þau svo aftur inn um áramót. Náði ágætis mynd af dóra þegar hann var að fara í reiðtúr á honum Bakkusi frá Söðulsholti, en hann er 3 vetra stóðhestur undan Borða frá Fellskoti

Dóri á Bakkus

15.09.09

Myndir af reiðnámskeiði

Hérna koma nokkrar myndir frá námskeiði helgarinnar sem Hanna var með, skemmtilegt og fræðandi námskeið, viljum einnig minna ykkur á knapamerkin sem Birna Tryggva ætlar að koma og vera með í haust og vetur.

10.09.09

Knapamerkin

Birna Tryggvadóttir ætlar að koma og vera með kennslu í knapamerkjunum núna í haust og vetur. Stefnum við að því að byrja á knapamerki 1 í haust ef nægt þátttaka næst. Knapamerin eru jafnt fyrir unga sem gamla sem vilja bæta meiri þekkingu við sína hestamennsku. Aldurstakmark er þó miðað við 12 ára aldur. Endilega hafið samband við okkur sem fyrst ef þið hafið áhuga.

Birna var búin að gera frábært kynningarmyndband með knapamerkjunum, sem við fáum lánað af heimasíðunni hennar. Sporthestar ehf

Einnig er hægt að fræðast meira um knapamerkin á vefsíðu Hólaskóla, www.holar.is/knapamerki

08.09.09

Hausttamningar

Þá er allt komið á fullt aftur eftir frábært sumarfrí. Erum með milli 30-40 hross inni á öllum stigum tamningar en mest er þetta frumtamningartrippi. Þar af er slatti af 3 vetra trippum sem við verðum með inni næsta mánuðinn. Það er alltaf jafn gaman að byrja að temja hrossin sem maður er búinn að fylgjast með frá fæðingu. Trippin sem við erum með núna er m.a. undan Borða frá Fellskoti, Asa frá Kálfholti, Hrym frá Hofi, Faxa frá Hóli, Júpiter frá Stóru-Hildisey, Fák frá Auðsholtshjáleigu og Parker frá Sólheimum.

Bakkus frá Söðulsholti Kolskeggur frá Snartartungu

Á myndunum fyrir ofan eru tveir 3.vetra Borðasynir,Bakkus sá rauðskjótti er undan Hrafnhildi frá Hoftúnum en sá brúnskjótti er undan Gloríu frá Snartartungu. Þeir eru báðir mjög ganggóðir og með flottan fótaburð.

Sú rauða á myndinni fyrir neðan er Tígla, 3.vetra meri undan Fák frá Auðsholtshjáleigu og Kolbrúnu frá Kjarnholtum. Það er fyrsta afkvæmið sem við fáum undan Kolbrúnu en hún er undan gæðingarmóðurinn Glókollu frá Kjarnholtum. Á hinni myndinni er svo fallega aðstoðarfólkið okkar, Arnar og hún Julía frá Þýskalandi en hún ætlar að vera hjá okkur í mánuð.

Tígla frá Söðulsholti Arnar og Júlía

05.09.09

Reiðnámskeið

Stefnum að því að hafa reiðnámskeið 12-13 september. Kennari verður Jóhanna Friðriksdóttir, fólk sem býr á lögbýli getur sótt um styrk til starfsmenntasjóðs bænda SMELLIÐ HÉR.
Námskeiðið kostar 15.000 og innifalið er geymsla á hrossunum/matur og kaffiveitingar, hver hópur er tekin 2 á dag og svo er einn bóklegur timi hvorn daginn.

02.09.09

Sætar systur

Þær ljómuðu svo sannarlega systurnar Bryndís, 2 og ½ árs og Ella, 4 og ½ árs, þegar þær fengu að fara á hestbak hjá afa sínum í sumar. Þær búa í Ameríku en koma samt reglulega í heimsókn og er alveg greinilegt að þær eru með hestabakteríuna í blóðinu því þær hafa brennandi áhuga á hestunum og vilja helst bara ríða einar,, hitt er nefnilega bara fyrir litla krakka;)

Ella á Blika Brindís á Blika

Ella á Blika Brindís á Blika

18.08.09

Misheppnuð kynni:)

Já það er margt hættulegt í þessum stóra heima;) en ég var að fara yfir myndir af folöldunum sem komu í sumar og fann þessa sniðugu myndasyrpu af tíkinni okkar henni Brellu og Gígju litlu (undan Gígjari frá Auðsholtshjáleigu og Pyngju frá Syðra-Skörðugili). En Gígja var eitthvað að snuðra í Brellu og þegar Brella fannst hún orðinn frekar ágeng, gelti hún og stökk að henni og Gígju litlu brá svona rosalega að hún endaði beint á trýninu;)

18.08.09

Kvennareið

Síðasta Laugardag var haldin kvennareið fyrir konurnar hérna á svæðinu. Byrjað var við Mýrdalsrétt og riðið yfir á Syðri-Rauðmel og svo þaðan út á Ytri Rauðamel en þar beið okkar kaffi og kökur. Ekki var hægt að kvarta yfir veðrinu, ekki nema þá að það hafi nánast verið orðið of heitt á köflum;) Riðum við svo frá Ytri-Rauðmel niður í Laugargerði og svo upp í Söðulsholt en þar var karlpeningurinn búinn að standa sveittur við að grilla fyrir okkur og vorum við allar sammála um það að dagurinn og maturinn hefði verið hrein snilld, svo að auðvitað verður stefnd á aðra kvennareið að ári og vonandi að við sjáum ennþá fleiri í hnakknum þá.

12.08.09

Verðandi tamningarmenn

Við ættum ekki að verða í vandræðum með að fá aðstoðarmanneskjur í hesthúsið á næstu árum. En barnabörn Einars þau Inga Dís og Róbert eru mjög áhugasöm og eru þau komin með sína eigin hesta, Skjóna og Birgittu sem þau ríða á eins og herforingjar út um allt. En einnig hafa þau mjög mikin áhuga á öllu öðru sem tengist hrossunum og er mjög dugleg að hjálpa til.

Inga Dís á Birgittu Róbert á Skjóna

Svo má auðvitað ekki gleyma henni Kötlu litlu sem var að taka þátt í sínu fyrsta móti núna síðustu helgi og stóð sig með stakri prýði og kom heim með flottan verðlaunapening, sem að vísu hefur gengið mjög erfiðlega að ná af henni og vill hún helst fá að sofa með hann;)

Kolbrún á Stíganda Kolbrún á Stíganda

30.07.09

2 efnilegar!!

Þar sem það er búið að vera svo mikið af folaldafréttum að undanförnu ákváðum við gera smá frétt um 2 efnilegar merar sem við erum búin að vera með í vetur.

Fyrri merin heitir Kolfreyja frá Snartartungu, undan Gloríu frá Snartartungu og Parker frá Sólheimum. Kolfreyja er 5 vetra klárhryssa sem er í miklu uppáhaldi hjá okkur en hún hefur að vísu verið fastur gestur í hnykkingu hjá Susí dýralækni í vetur. Síðasta haust þegar hún kom inn var hún mjög hnjóskuð og bólgnaði öll í baki útfrá því og hefur þessi vöðvabólga verið ansi þrálát í allan vetur. Höfum við því nánast ekkert geta riðið á henni síðustu mánuði og tókum við þá ákvörðun fyrir hálfum mánðuði að draga bara undan henni og vonum að hún nái að jafna sig almennilega.

Hin merin heitir Donna frá Króki undan Kastaníu frá Króki og Júpiter frá Stóru-Hildisey. Donna er orðin 6 vetra en það var fyrst byrjað að temja hana núna í vetur og ekki hægt að segja annað en hún líti vel út og ekki skemmir nú liturinn fyrir henni;)

27.07.09

Sveitareiðtúr 2009

Hin árlegi sveitareiðtúr var farinn á laugardaginn. Var lagt af stað frá Söðulsholti um 13:00 og þaðan riðið niður á Hótel Eldborg. Þar beið eftir okkur grafið hrossakjöt og eitthvað ljúfengt til að skola því niður með. Var svo riðið þaðan yfir Haffjarðará og niður að Stóra-Hrauni. Þaðan var svo ríðið út í Suðurey en þar beið okkur kaffi og dýrindis veitingar. Þegar allir voru svo búnir að troða sig út af brauði og kökum var riðið niður í fjöruna og hrossin tekin til kostanna. Fengum við frábært veður, sól og næstum logn;). Eftir að hafa hitt Jón í Kolviðarnesi upp á Núpunesi og fengið harðfisk og snafs, var riðið upp í Hrútsholt en þar beið okkar mikil veisla og gleði. Viljum við þakka öllum fyrir frábæran dag.

Við erum búin að setja inn fullt af myndum úr ferðinni og getið þið smellt hér til að sjá þær

23.07.09

Skemmtilegur reiðtúr

Á laugardagskvöldið fórum við í frábæran reiðtúr með nokkrum Grundfirðingum í kringum Kirkjufellið. Fengum við alveg geggjað veður en það var alveg blankalogn, sól og enginn fluga;).

Eftir reiðtúrinn var okkur svo boðið upp á dýrindis kjötsúpu og meðlæti og viljum þakka Gústa og félögum fyrir frábæra kvöldstund.
Næsta Laugardag er svo hin árlega bændareið en þá verður riðið smá hringur niðri í fjöru, með nokkrum stoppum hér og þar og verður svo endað í grilli í hesthúsinu í Hrústholti. Eigum við öruggulega eftir að setja inn fullt af myndum af þeim reiðtúr í næstu viku.

20.07.09

Sigur mættur!

Sigur frá Hólabaki kom í Söðulsholt í gær og var honum sleppt í merar í morgun. Tók hann þessu með stakri ró og eftir að hafa heilsað lítilega upp á dömurnar þá fór hann bara á beit og skannaði hólfið sitt. Við hér í Söðulsholti settum til hans 7 merar en als eru þær 20 hjá honum. Annars er það að frétta af ræktunarmálunum hér að ein meri er fengin við Sólon frá Skáney , ein er hjá Þrist frá Feti og ein hjá Hákoni frá Ragnheiðarstöðum. Tvær merar eiga svo eftir að fara undir hann Glym frá Innri-Skeljabrekku.

Já það er svo vonandi að sem flest afkvæmi hans erfi þennan magnaða lit og þennan mikla prúðleika svona sem bónus við alla hina kostina hans:))

13.07.09

Enn fjölgar folöldunum

Fjóla frá Árbæ kastaði í morgun brúnleistóttri meri undan Bruna frá Skjólbrekku, var þetta mikil hamingja því við vorum lengi búin að reyna að fá folald í hana. Auðvitað er sú stutta gullfalleg, háfætt, hálslöng og sveiflar löppunum í hæstu hæðir;)

13.07.09

Fallegasta folald sumarins

Gerpla frá Laugarsteini kastaði í nótt og kom hún með hálsfallegan og háfættan hest undan Hróð frá Refsstöðum. Ekki skemmdi nú liturinn fyrir því hann var brúnblesóttur/glaseygður, vorum við samt ekki alveg sammála um hvort hann væri brúnn eða jarpur því okkur fannst vera smá rauður blær á honum og svo eru hárin inn í eyrunum rauð. Þeir sem eru litafróðir mega endilega segja okkur hvort hann sé. Er þá kominn 12 folöld, 5 hestar og 7 merar. Eiga 2 merar eftir að kasta og vonum við nú að þær fari að drífa í þessu.

(ATH. að smella á myndina til að sjá hana stærri

13.07.09

Heyskapur

Það hefur svo sannarlega verið sumarsæla núna síðusta dagana en það er búið að vera glampandi sól og logn. Var því drífið í því að slá um helgina og var verið að rúlla í dag og klárast það trúlega í kvöld eða í fyrramálið en á morgun á víst að hvessa hressilega svo það verður kannski pínu léttir að vera komin með þessa hvítu hnoðra út um öll tún. Hafa Dalsmynnisfeðgarnir fengið að njóta þeirra ánægju að hjálpa okkur við heyskapinn og þökkum við þeim allveg kærlega fyrir það.

08.07.09

Söluhross

Vorum að bæta inn fleiri hrossum á sölulistann en þar er m.a. að finna stórann og myndarlegann rauðskjóttan reiðhest sem fer aðalega um á tölti og er þægur og meðfærilegur. Sá heitir
Djáknar frá Króki og er hann fyrsti hesturinn sem við kynnum til sögunar úr hópnum frá Króki. Hann er undan Kjarksyninum Júpíter frá Stóru-Hildisey og Jasmín frá Króki.

Þar er einnig að finna gráann Feykisson, Vin frá Syðra-Skörðugili sem er hágengur fjórgangshestur með fallega frambyggingu.

Vinur

05.07.09

Komin tvö ný folöld

2 ný folöld komu í heiminn núna um helgina þegar þær Píla frá Brún og Sunna frá Akri köstuðu. Píla kom með moldóttan hest undan Hæringi frá Litla-Kambi, skemtilegur litur það en þó eru nokkuð líklegt að hann breitist í gráan seinna meir. Sunna kom svo með brúnann hest undan rýmisboltanum honum Húmvari frá Hamrahóli.

28.06.09

Tvær nýjar merar

Pyngja og Gloría gamla köstuðu báðar í gær og vorum við ekkert smá heppin að fá merar úr þeim báðum. Pyngja kom með brúna meri undan Gígjari frá Auðsholtshjáleigu og hefur hún fengið nafnið Gígja. Gloría kom með tinnusvarta tvístjörnnótta (næstum því brúnblesótt::) leistótta meri undan honum Hóf frá Varmalæk og hefur hún verið nefnd Skuggadís.

Já það munaði nú ekki miklu þarna að Iðunn fengi draumalitinn sinn brúnblesótt en það vantar ekki nema nokkur hvít hár til að stjörnurnar nái saman.
Kolbrún Katla var nú ekki í vafa um hver ætti svo að eiga þessi folöld og dreif sig til hennar Gígju og knúsaði hana vel svona til að sanna hvað þeim kæmi nú vel saman.

21.06.09

Arna frá Varmadal köstuð

Í gærkveldi kastaði Arna rauðri(verður kannski grá) meri undan Klett frá Hvammi. Vorum við pínu á nálum eftir að folaldið hennar í fyrra drapst í fæðingu og þorðum því ekki anað en að fylgjast grant með henni en allt gekk fljótt og vel fyrir sig. Sú stutta er ofsa framfalleg og fíngerð en helst þótti okkur liturinn fátæklegur undan rauðblesótri/leistóttri meri og gráskjóttum hesti en við vonum bara að ganghæfileikarnir verði þeim mun ríkulegri fyrir vikið.

21.06.09

Myndir frá móti helgarinar

Fórum á hestaþing Glaðs um helgina sem haldið var í Búðardal. Iðunn fór með Stíganda í B flokk og gekk vel, hafnaði í þriðja sæti með 8,37 í úrslitum. Arnar varð 3. í ungmennaflokk á Brúnka og Dóri fór með Þyrlu í A flokk og 150 m skeið þar sem hann hafnaði í þriðja sæti en A flokkurinn gekk ekki sem skildi. Góð þátttaka var á þessu móti og viljum við þakka dalamönnum fyrir skemmtilegt mót.
Setjum hér með nokkrar myndir frá helginni.

Iðunn og Stígandi Iðunn og Stígandi

Dóri og Þyrla Arnar og Brúnki

18.06.09

Myndir af köstun

Von frá Söðulsholti kastaði í gærkvöldi og vorum við svo heppinn að vera viðstödd. Gekk þetta hratt og vel fyrir sig og kom kella með myndarlegan rauðan hest undan Eldjárn frá Tjaldhólum.
Eru nú komin 6 folöld 4 merar og 2 hestar en von er á 7 í viðbót.

17.06.09

2 þjóðhátíðarfolöld

Rebekka frá Króki og Kolbrún frá Kjarnholtum köstuðu báðar í nótt. Rebekka kom með rauðan stjörnóttan hest undan Arð frá Brautarholti og Kolbrún kom með með myndarlega meri undan honum Hæring frá Litla kambi.
Við erum ekki alveg viss hvernig sú stutta er á litinn en eftir að hafa kíkt á valparanir á worldfeng höldum við helst að hún sé leirljós eða þá að hún eigi eftir að verða grá. Ef þið hafið einhverjar aðrar hugmyndir um litinn á henni megið þið garnan benda okkur á það.

16.06.09

Sigur frá Hólabaki

Sigur frá Hólabaki hækkaði í kynbótadómi sem hann fór í núna um daginn en hann fór í 8.37 í aðaleinkunn. Er hann með 8.44 fyrir byggingu og 8.33 fyrir hæfileika. Sigur er einnig efstur inn í töltinu sem verður á FM í sumar með 7.93 í einkunn

Enn er laus nokkur pláss undir Sigur á seinna gangmáli og áhugasamir geta haft samband við Einar í síma 8993314 eða sent okkur tölvupóst.

Dómur:

Sköpulag: 8.5 - 8.5 - 8 - 9 - 8 - 8 - 8,5 - 8,5 = 8.44

Hæfileikar: 9 - 9 - 5 - 8.5 - 9 - 9 - 7,5 = 8.33

Aðaleinkunn = 8.37

16.06.09

Íþróttamót Snæfellings

Arnar stóð sig ansi vel á honum Brúnka sínum á opnu íþróttamóti Snæfellings sem var haldið á Kaldármelum um helgina. Hann var 2. í fjórgangi ungmenna, efstur í tölti ungmenna og svo var hann stigahæsta ungmennið. Glæsilegur árangur hjá þeim félögum. Iðunn var einnig með hann Stíganda í fjórgangi, en hann reif því miður undan sér í úrslitunum.

10.06.09

Hvítur stelkur

Sumarið er svo sannarlega komið, allt orðið fagurgrænt, folöldin farin að koma í heiminn og allt fullt af fuglum, litlum og stórum og oftar en ekki ná þeir að fæla hjá okkur hrossin þegar þeir skjótast undan fótum hrossanna eða upp úr skurðum. Sérstaka athygli okkar hefur þó vakið hvítur Stelkur sem er trúlega með hreiður hérna í flóanum fyrir neðan hesthúsið. Er hann á miklu varðbergi og hvert skipti sem við förum í reiðtúr fylgir hann okkur úr hlaði með miklum gargi. Það verður nú að viðurkennast að við höfum nú ekki mikið vit á fuglum en það telst víst frekar sjaldgjæft að þeir séu hvítir og ákváðum við því að skella inn myndum af honum grána okkar.

02.06.09

Myndir af námskeiði helgarinnar

Hér koma nokkrar myndir af vel heppnuðu námskeiði með Birnu Tryggvadóttur sem var síðustu helgi.

Smellið hér til að skoða myndir.

28.05.09

Fyrsta afkvæmi Sindra

Fyrsta afkvæmi Sindra frá Keldudal kom í heiminn í gær, en það var myndarleg jörp hryssa undan henni Hrafnhildi frá Hoftúnum

24.05.09

Úrtöku lokið fyrir FM

Úrtakan fyrir Fm fór fram núna á laugardaginn og gekk það ágætlegta. Iðunn var önnur í Bflokki á Stíganda frá Syðra Skörðugili, Dóri var þriðji á Blæju frá Svignaskarði og svo var Dóri með Þyrlu frá Söðulsholti í A flokki og lenti í öðru sæti þar. Þessi þrjú eru því öll kominn inn á Fjórðungsmót. Arnar er einnig kominn inn á mót með hann Brúnka sinn en hann var í fyrsta sæti í Ungmennaflokki.

Iðunn á Stíganda

Dóri á Þyrlu frá Söðulsholti

Blæja frá Svignaskarði

24.05.09

Hildur frá Sauðárkróki köstuð

Folald númer tvö kom í morgun en Hildur kastaði rauðblesóttri meri undan Kjarna frá Þjóðólfshaga. Báðir foreldrarnir eru mjög framfallegir og verðum við illa svikin ef þessi meri verður ekki með fíngerðan svanaháls:)

22.05.09

Flottir bræður

Aðstoðartamningamaðurinn okkar hann Arnar æfir sig grimt þessa dagana fyrir fjórðungsmótsúrtöku en hann hann ætlar með hann Brúnka sinn frá Haukatungu í ungmennaflokk. Brúnki er 11 vetra undan Kolfinnu frá Haukatungu Syðri 1 og Sprota frá Hæli. Svo erum við með bróðir Brúnka í tamningu hann Hauk frá Haukatungu,hann er undan fótaburðarhestinum Glampa frá Vatnsleysu, og er þetta rosalega ganggóður og efnilegur hestur sem á örugglega eftir á veita bróðir sínum harða samkeppni á komandi árum

21.05.09

Fyrsta folald ársins

Já loksins er fyrsta folaldið komið. Lipurtá Rökkvadóttir kastaði í nótt fallegri rauðri meri undan Klett frá Hvammi. Vorum við himinlifandi yfir því að fá meri, og auðvitað er sú stutta rosalega sæt;) Því miður rétt misstum við af því að vera viðstödd þegar hún kastaði en skellum hérna inn nokkrum myndum sem við tókum af þeim mæðgum um nóttina og svo nokkrar sem við tókum af þeim í hádeginu.

Smellið hér til að skoða myndir.

21.05.09

Reiðnámskeiðið með Birnu Tryggvadóttur

Viljum minna á að enn er laust á reiðnámskeiðið með Birnu Tryggva sem verður 30-31 mai. Námskeiðið kostar 15.000 og innifalið í námskeiðinu er geymsla fyrir hrossið, hádegismatur og kaffi/veitingar.

13.05.09

Þungar folaldsmerar

Það er farið að styttast í að fysta folaldið líti dagsins ljós, en merarnar eru orðnar ansi sverar og þungar á sér. Fyrsta merin sem á að kasta er Rökkva dóttirinn Lipurtá frá Söðulsholti og er hún fylfull við honum Klett frá Hvammi. Hestfolöldin voru í ansi miklum meirihluta í fyrra svo auðvitað vonum við að fyrsta folaldið verði skjótt meri:)

28.04.09

Reiðnámskeið 30-31 maí

Stefnum að því að hafa reiðnámskeið helgina 30-31 maí. Kennari á námskeiðinu verður Birna Tryggvadóttir útskrifaður reiðkennari frá Hólaskóla. Einnig stefnum við að því að fá Birnu til að vera með reglubundna kennslu í knapamerkjakerfinu og ef fólk hefur áhuga á að komast í það þá endilega hafið samband við okkur. Námskeiðið verður nánar auglýst síðar.

25.04.09

Ræktun 2009

Settum hérna inn 2 myndir af Dóra og Blæju frá Svignaskarði sem voru teknar á Ræktun 2009 í Ölfushöllinn í gærkvöldi.

19.04.09

Hákon frá Ragnheiðarstöðum

Fórum suður í gær á aðalfund ræktunarfélagsins Hákon sem haldin var í reiðhöll Sörla í Hafnarfirði. Hákon er 2 vetra foli rauðskjóttur undan Álf frá Selfossi og Hátið frá Úlfstöðum og á Einar þrjá hluti í honum. Fundurinn hófst með glæsilegu matarboði með öllu tilheyrandi og farið var yfir feril Hákons á árinu í máli og myndum.

Að loknum venjulegum aðalfundarstörfum var svo öllum hópnum boðið niður í sal að skoða gripinn og sjá hann hlaupa. Duldist engum sem á horfði að framtíðin brosir við þessu hestsefni en hann var gríðarlega stór og þroskaður og einstaklega glæsilega byggður, lofthár, með reistann og mjúkann háls. Ekki minnkaði svo aðdáun hluthafa þegar klárinn tók til fótanna og sveif um salinn á skrefmiklu brokki með háum og framgripsmiklum framfótahreyfingum.

Síðasti dagskrárliður fundarins var að draga út 10 hluthafa sem fá að halda undir Hákon í sumar og ríkti mikil eftirvænting í hópnum. Einar varð svo heppinn að verða dreginn úr pottinum og svo er bara spurning hvaða meri verður sú heppna;)

Smellið hér til að skoða myndir.

11.04.09

15 ný hross !!!

Fyrir stuttu verslaði Einar sér 15 tryppi frá Hrossaræktarbúinu Króki og fórum við austur í dag að sækja þau. Hrossin eru á aldrinum 3-6 vetra og flest undan Kjarksyninum Júpiter frá Stóru-Hildisey. Önnur eru svo undan Styrk frá Hafsteinsstöðum(Feykissyni), Faxa frá Hóli sem einnig er Feykissonur,Laxdal frá Efri-Rauðalæk, Galsasyni og Skjó frá Króki sem er undan Platon frá Sauðárkróki. Einn Þriggja vetra hestur er síðan undan henni Pílu okkar frá Brún og Asa frá Kálfholti.

Eru þetta allt stór og myndarleg hross og leist okkur bara mjög vel á hópinn. Þar sem er frekar mikið að gera hjá okkur í augnablikinu, tökum við þetta inn í smáskömmtum og munum við þá kynna þau betur til sögunnar.

31.03.09

Nasa frá Söðulsholti

Í Vestlensku veðurblíðunni sem var í dag náðum við nokkrum myndum af henni Nösu frá Söðulsholti.. Nasa er fædd 2005 og er undan Parker frá Sólheimum( 8.39) og Hildi frá Sauðárkróki(7.92). Eins og sjá má á myndunum er hún nú bara frekar efnileg, en þetta er fíngerð og nett alhliðameri sem stefnt er með í dóm í vor.

29.03.09

Gestkvæmur laugardagur

Já það er svo sannarlega hægt að segja að það hafi verið mikill gestagangur um helgina en 3 hópar komu að heimsækja okkur á Laugardeginum og voru þetta alls um 100 manns. Fyrsti hópurinn sem komu voru fjárbændur úr Húnavantssýslunni. Þar sem Dalsmynnisbændur voru nýbúnir að vera að ferðast um Vatnsnesið með fjárbændum af Snæfellsnesi ákváðu þau að launa þeim gestristnina og elda handa þeim kjötsúpu og vera með smá hundasýningu.

Næstu 2 hópur voru svo frá hestamannafélögunum Sörla í Hafnarfirði og Herði í Mosfellsbæ en þeir voru að heimsækja tamningarstöðvar og ræktunarbú á Vesturlandi. Var þetta allt saman hresst og skemmtileg fólk og viljum við þakka þeim öllum fyrir komuna.

16.03.09

Sindri frá Keldudal IS2005157023

Skelltum hérna inn myndum af honum Sindra frá Keldudal. Sindri er 4. Vetra stóðhestur undan Hágang frá Narfastöðum og heiðursverðlauna hryssunni Ísold frá Keldudal. Sindri er alhliðahestur með frábært tölt og einstaklega gott geðslag.

Sindri er til sölu (sjá undir söluhross)

05.03.09

Sigur frá Hólabaki

Já eins og kom fram í síðustu frétt verður töffarinn hann Sigur frá Hólabaki hérna seinna gangmál í sumar. Sigur heillaði marga upp úr skónum á síðasta Landsmóti með fasmikilli framkomu og miklum fótaburði en þar endaði hann í 11. sæti 5 vetra stóðhesta. Sigur hefur verið að standa sig frábærlega í keppnum í vetur, en hann var efstur á Bautatöltinu sem var núna fyrr í vetur. Hann vann síðan B-flokkinn og töltkeppnina sem var á Svínavatni núna um helgina sem er frábær árangur hjá 6 vetra hesti.

Verð fyrir fengna meri er 115 þúsund krónur með virðisaukaskatti, innifalið er ein sónarskoðun. Greiða þarf staðfestingargjald kr 20 þúsund til að pöntn sé tekin gild.

Þeir sem hafa áhuga á halda undir hann geta haft samband við eða Einar í síma 8993314 eða senda tölvupóst á einar@sodulsholt.is

Dómur 2008:

IS2003156270 Sigur frá Hólabaki
Litur: 1620 Rauður/dökk/dr. stjörnótt
Ræktandi: Björn Magnússon
Eigandi: Hans Friðrik Kjerúlf, Þorsteinn Kristjánsson
F: IS1998156539 Parker frá Sólheimum
Ff: IS1976157003 Hervar frá Sauðárkróki
Fm: IS1977258506 Penta frá Vatnsleysu
M: IS1996256277 Sigurdís frá Hólabaki
Mf: IS1991156276 Glaður frá Hólabaki
Mm: IS1990256276 Svala frá Hólabaki
Mál: 141 - 129 - 135 - 63 - 142 - 36 - 46 - 44 - 6,5 - 30,0 - 19,0
Hófamál: Vfr: 8,0 - Va: 7,7
Sköpulag: 8,5 - 8,5 - 8,0 - 8,5 - 7,5 - 8,0 - 8,5 - 8,0 = 8,26
Hæfileikar: 9,0 - 9,0 - 5,0 - 8,5 - 9,0 - 9,0 - 7,5 = 8,33
Aðaleinkunn: 8,30
Hægt tölt: 9,0 Hægt stökk: 8,5
Sýnandi: Hans Friðrik Kjerúlf.

05.03.09

Sigur frá Hólabaki í Söðulsholti

Sigur frá Hólabaki verður til afnota í Söðulsholti seinna gangmál í sumar. Sigur er 1. verðlauna klárhestur með 8.26 fyrir byggingu, 8.33 fyrir hæfileika og 8,30 í aðaleinkunn en hann er m.a. með 9 fyrir tölt , hægt tölt, brokk, vilja og geðslag og fegurð í reið. verð og nánari upplýsinga um hann koma eftir helgi.

23.02.09

Fréttir úr hesthúsinu

Já þá er kominn tími til að segja ykkur eitthvað frá því hvað við erum að aðhafast í hesthúsinu allan daginn en við erum núna með 38 hesta inni og eru þeir á öllum stigum tamningar og þjálfunar. Mörg þeirra eru mjög spennandi og skemmtileg og verður spennandi að sjá hvað þau gera með vorinu.

Hrossin sem við erum með eru m.a. undan Hágang frá Narfastöðum, Parker frá Sólheimum, Hróð frá Refsstöðum, Illing frá Tóftum, Júpíter frá Stóru-Hildisey, Jarl frá Búðardal, Sævari frá Stangarholti, Tímon frá Lýsuhóli og Topp frá Eyjólfsstöðum.

Núna eru inni 3 folöld og fá þau að leika sér í reiðhöllinni í hádeginu. Þetta eru þeir Ábóti(höttóttur undan Álf)sem er algjör töffari og fer helst um á skrefmiklu tölti, Glasi frá Söðulsholti(undan Hrym frá Hofi). Það þriðja er síðan hún Von frá Fáskrúðabakka undan Guðfinni Glymsyni frá Ynnri-Skeljabrekku og Flugu Geysisdóttur frá Fáskrúðabakka. Þessa brúnskjóttu hryssu keypti Einar eftir folaldasýninguna. Restin af folöldunum er enn undir merunum og stefnum við á að taka þau undan í mars/apríl.

Á myndunum hér að neðan má sjá Dóra koma heim úr reiðtúr á hryssunni Birgittu frá Söðulsholti í ísrignigunni sem var í dag, á hinni myndinni eru hrossin farin að bíða eftir aukamáltíðinni sem þau fá í hádeginu.

Hér eru síðan myndir af honum Jökli frá Brekku sem er graðhestur á fjórða vetur undan Hróð frá Refsstöðum og Birtu frá Lækjarmóti. Jökull er því sammæðra Silfurtoppi frá Lækjarmóti fyrrum heimsmeistara í fjórgangi.

23.02.09

Litlu ofvirku aðstoðarmennirnir:)

Skelli hérna inn smá myndum af hundinum okkar henni Lukku sem er aðeins of áhugasöm og þá sérstaklega þegar er verið að setja inn og út og einnig þegar er verið að vinna með hross inn í hringgerði. Þá getur stundum verið dálítið erfitt að vera lítil og sjá ekki yfir.

Svo er það yngsti fjölskyldumeðlimurinn hún Kolbrún Katla sem er stundum líka aðeins of áhugasöm og vill helst vera allveg eins og pabbi og mamma og vera alltaf á hestbaki. Þær stöllur Kolbrún og Lukka eru jafngamlar eða 2 og hálfs árs.

12.02.09

Söðulsholt.is komið á ensku og þýsku.

Þá er búið að koma síðunni yfir á þessi tvö tungumál og munum við reyna eins og við getum að uppfæra fréttirnar líka þar. Með því að smella á fánana er hægt að komast í aðalsíðu fyrir valið tungumál. Einnig viljum við minna á að okkur finst mjög gaman af því þegar kvittað er í gestabókina.

de en

08.02.09

Myndir af reiðnámskeiði helgarinnar

Þá er lokið námskeiði helgarinnar en það var fyrir börn og unglinga og tóku alls 18 krakkar þátt í námskeiðinu. Voru þetta krakkar á öllm stigum reiðmenskunnar, allt frá því að vera algjörir byrjendur upp í það að vera mikið vön. var rosalega gaman að fylgjast með hvað yngstu krakkarnir sem voru að stíga sín fyrstu spor í hestamennskunni voru fljót á ná jafnvægi og góðum tökum á hestunum. Eftir hefðbundna reiðkennslu var brugðið á leik í síðasta tímanum og útbúinn þrautabraut og kepptu krakkarnir sín á milli hver væri fljótastur að fara brautina. Það var ekki langt í keppniskapið hjá þeim og sáust mörg skemmtileg tilþrif sérstaklega hjá þeim eldri. Kennari á námskeiðinu var Jóhanna Friðriksdóttir.

Smellið hér til að skoða myndir frá námskeiðinu.

04.02.09

Hundanámskeið

Það eru ekki bara hestar sem eru þjálfaðir í reiðhöllinni, því um helgina var haldið námskeið fyrir unga Border collie hunda sem voru að stíga sín fyrstu spor með kindum. Var þetta mikil upplifun fyrir suma hundana og fóru kindurnar stundum ansi hratt yfir. En allt fór þetta nú vel að lokum og voru margir hundanna mjög efnilegir. Kennari á námskeiðinu var Svanur Guðmundsson.

02.02.09

Myndir úr hrossarekstri

Í lok hverrar viku fá hrossin yfirleitt að spretta duglega úr spori en þá eru þau rekin hring í stóra hólfinu niður í flóa. Þetta er ca. 4-5 km. leið og taka hrossin fyrstu kílómetrana alltaf á harða stökki með allskonar stungum og ausum. Já þau virðast bara hafa mjög gaman af þessu og í góða veðrinu á föstudaginn tillti Iðunn sér aftan á fjórhjólið vopnuð myndavélinni. Náði fullt af skemmtilegum myndum á þessum fallega degi. Settum myndasyrpuna inn í myndaalbúmið en hér að neðan er hægt að komast beint inn í myndasýninguna.

Hrossarekstur í janúar 2009

SMELLIÐ HÉR.

29.01.09

Námskeið fyrir hinn almenna reiðmann!!!

14-15 febrúar næstkomandi ætlar hún Jóhanna Friðriksdóttir að koma og halda annað reiðnámskeið ætlað fyrir hinn almenna reiðmann jafnt sem byrjendur. Fullt er orðið á barna- og unglinganámskeiðið sem vera á helgina á undan þessu þannig að þeir sem ekki komust á það geta jafnvel verið með á þessu. Námskeiðið kostar 15.000 þúsund en inni verðinu er geymsla fyrir hrossið meðan á námskeiðinu stendur, hádegismatur og kaffitími. Nánari upplýsingar gefur dóri/iðunn í síma 8995625 eða þið getið sent okkur tölvupóst á sodulsholt@sodulsholt.is

Hanna á hestinum Húna

26.01.09

Myndir frá unghrossamati

Hér koma nokkrar myndir frá námskeiðinu sem var núna á laugardaginn. Það voru skoðuð og metin 9 unghross og þátttakendur voru 12. Fróðlegur og skemmtilegur dagur og kom Magnús kennari efni sínu frá sér á skýran og greinargóðan hátt.

Maggnús og hryssan Lukka Öngull frá Leyrulæk Þátttakendurnir

19.01.09

Nýtt á söluskrá!!!!

Vorum að bæta inn tveimur nýjum trippum á sölulistann en það eru þeir Sleipnir frá Söðulsholti undan gæðingnum Pílu frá Brún og Roða frá Múla. Hinn er Hjörtur frá Söðulsholti undan Hamsdótturinni Hrafnhildi frá Hoftúnum og Hágangi frá Narfastöðum. Smellið hér til að skoða söluhross

Einnig erum við alltaf að bæta inn nýjum síðum inn á tenglasafnið okkar og eru nú heimasíðurnar komnar á þriðja hudrað. Þar er að finna heimasíður ræktenda, tamnigarmanna, hestamannafélaga, hestavöruverslana, stóðhesta, hrossaræktarsambandanna og fréttasíðurnar. Sem sagt allt sem hestamaðurinn skoðar þegar hann bregður sér á netið.

Nú er unnið að því hörðum höndum að koma heimasíðunni yfir á þýsku og ensku og verður því verki lokið vonandi á næstu dögum.

16.01.09

Blæja komin á járn

Tókum skeifnasprettinn á henni Blæju frá Svignaskarði í dag og leit kella bara
nokkuð vel út. Blæja kom því miður geld frá stóðhesti í haust en hún hefur átt 2
afkvæmi hér í Söðulsholti þau Abbadís og Glasa.

Blæja er 1.verðlauna klárhryssa með 8,5 fyrir alla þætti hæfileikanna nema fet
og stökk en fyrir stökk fékk hún 9,5. Blæja er undan Kolfinnsyninum Jarli frá Búðardal
og Hulu frá Deildartungu 2.

Fyrsta afkvæmi Blæju, Blíða frá Ragnheiðarstöðum, undan Adam frá Ásmundarstöðum
verður 4 vetra í vor og kemur hún mjög vel út í tamningu það sem af er að sögn eiganda
Blíðu Helga Jóns Harðarsonar.

15.01.09

Reiðnámskeið fyrir börn og unglinga

Reiðnámskeið fyrir börn og unglinga verður haldið 7-8 Feb. Kennari á námskeiðinu veður Jóhanna Friðriksdóttir (Hanna) . Námskeiðið kostar 15.000 þúsund en inni verðinu er geymsla fyrir hrossið meðan á námskeiðinu stendur, hádegismatur og kaffitími. Nánari upplýsingar gefur dóri/iðunn í síma 8995625 eða þið getið sent okkur tölvupóst á sodulsholt@sodulsholt.is

14.01.09

Enn laust á námskeið í unghrossamati!!!!

Enn eru nokkur pláss laus á námskeiðið í unghrossamati sem verður í Söðulsholti Laugardaginn 24 janúar n.k. Einstakt tækifæri fyrir alla þá sem eru að stunda ræktun og vilja læra að meta kosti og galla unghrossa. Kennari verður Magnús Lárusson, námskeiðið kostar 10.000 þúsund og er hádegismatur og kaffiveitingar inn í verðinu. Námskeiðið byrjar klukkan 10 og hver þátttakandi getur komið með sitt eigið trippi ef hann vill.

10.01.09

Nýr starfskraftur

Núna í síðustu viku fengum við aðstoðarmann í hesthúsið en það er hann
Arnar Ásbjörnsson. Mun hann aðstoða okkur í hesthúsinu við allt sem til fellur
varðandi hrossin. Viljum við bjóða hann velkominn til starfa.

Aftur til frétta