Eldri fréttir

24.12.08

Jólakveðja frá hestamiðstöðinni

Við hjá hestamiðstöðinni í Söðulsholti viljum óska öllum hestamönnum, viðskiptavinum, vinum og ættingjum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir öll samskipti á árinu sem er að líða

gleðileg jól

23.12.08

Skötuveisla hjá hestamannafélaginu Skugga

Fórum í gær í skötuveislu í félagsheimilið hjá Skugga. Frábært framtak hjá þeim
Magga og Sigga en þetta var frábær veisla og margir réttir í boði. Aðalrétturinn, skatan
var vel kæst og reif vel í hálsinn. Skelli hér með nokkrum myndum.

14.12.08

Myndir frá reiðnámskeiði

Setti inn nokkrar myndir af reiðnámskeiðinu sem var núna um helgina.

Lesa Meira...

11.12.08

Námskeið í unghrossamati

Laugardaginn 24. Janúar ætlar Magnús Lárusson að koma og vera með námskeið í unghrossamati. Námskeiðin hafa notið mikilla vinsælda og eru kjörinn fyrir alla þá sem eru að rækta hross.
Markmiðið með námskeiðinu er að kenna fólki hvernig það getur metið geðslag, byggingu og hreyfingar unghrossa með því augnamiði að spá fyrir hvers konar reiðhestsefni það er með í höndunum og tekið síðan ákvarðanir um framtíð viðkomandi unghrossa út frá því. Námskeiðið er einn dagur og er í bland fyrirlestur, sýnikennsla og verklegar æfingar. Fyrirlestrarnir eru m.a. til að útskýra hvað þarf að gera, hvernig staðið er að hlutunum og hvers vegna virkar það sem gert er. Sýnikennslan er hvernig ferlið fer fram frá því að unghrossið er mýlt, kennt að teymast, stilla því upp og þar til það er látið hlaupa til að geta metið geðslagið, útlit og hreyfingar þess. Verklegi hlutinn fer í að æfa fólk í ferlinu. Unghrossin eru á aldrinum 1-3 vetra og getur hver þáttakandi tekið með sér eitt trippi á námskeiðið ef hann vill.

Námskeiðið kostar 10.000 og inní í verðinu er hádegismatur og kaffi/veitingar.
Skráning og nánari uplýsingar gefur Dóri í síma 8995625, eða þið getið sent okkur tölvupóst.

11.12.08

10. sæti í ljósmyndakeppni Eiðfaxa

Sóley

Þessi mynd Iðunnar af henni Sóley frá Söðulsholti var í 10. Sæti í ljósmyndakeppni
Eiðfaxa, en rúmlega 400 myndir tóku þátt i keppninni svo 10 sæti er bara ágætisárangur;)
Sóley er undan Sólon frá Skáney og Pyngju frá Syðra-Skörðugili

09.12.08

Moksturinn mikli!!

Í gær var loksins drífið í því að moka út en það er búið að slá því á frest allt
of lengi því að stíurnar voru ornar ansi vel fullar.

Þó að það séu að verða komin 2 ár síðan fyrstu hestarnir komu inn í hesthúsið var þetta einungis
í þriðja skipti sem er mokað, þó hefur hesthúsið samt yfirleitt verið troðfullt af hrossum.
Stíurnar eru 40 cm djúpar og 9 fermetrar af stærð og því ansi rúmgóðar. Við notum hálm sem
undirburð en nóg er af honum hérna þar sem Einar stundar mikla kornræk. Við bætum daglega í
stíurnar yfir vetratímann og erum þá að nota um 8-10 rúllur á mánuði en yfir sumartíman haldast
þær nánast alveg þurrar og notum við þá mjög lítið að hálmi.

Þó að hrossin breytist á einum degi í algjöra smáhesta sem rétt grillir í kollinn á eftir moksturinn,
þá sparar þetta samt mikinn tíma og vinnu að hafa stíurnar svona djúpar.

Fyrir Eftir

Á myndunum fyrir ofan má sjá muninn á hrossunum fyrir og eftir mokstur.

Rúmlega 1 fullann sturtuvagn þurfti fyrir hverja stíu. það var því bakkað út nokkuð oft með kjaftfulla klóna.

07.12.08

Folaldasýning í Söðulsholti

Stórskemmtileg og vel heppnuð folaldasýning lauk núna seinni partinn þar sem hvorki meira né minna en 75 folöld mættu til leiks.
Lesa Meira...

Sjá myndir af sýningunni: SMELLIÐ HÉR.

02.12.08

Námskeið og folaldasýning !!!

Enn er laust á reiðnámskeiðið með Sigga Sig sem verður helgina 13-14 Des.

Einnig viljum við minna ykkur á folaldasýninguna sem verður næstkomandi sunnudag.
Enn er hægt að skrá og svo er auðvitað um að gera að drífa sig og koma og horfa á.
Kaffi og meðlæti innifalið í miðaverðinu. Þar sem við erum nú ekki með áhorfendastúkur
væri sniðugt fyrir fólk að kippa með sér t.d. tjaldstólum eða garðstólum til að tilla sér
meðan á sýningunni stendur.

Sóley Glasi

16.11.08

Myndasyrpa með folölum 2008

Var að setja inn myndir í myndaalbúmið af folöldunum sem sem fæddust
þetta sumarið alls 8 talsins.

15.11.08

Folaldasýning í Söðulsholti

Hin árlega folaldasýning Hrossaræktarsambands Vesturlands verður haldin 7. desember n.k.
í Söðulsholti og hefst kl. 13.oo

Kynjaskiptir flokkar folalda verða sýnd og dæmd. 3 efstu í hvorum flokki hljóta verðlaun.
Einnig velja áhorfendur grip sýningarinnar. Kosningarseðill fylgir hverjum aðgangsmiða.

Tekið er við skráningum á netfangið hrossvest@hrossvest.is Skrá skal nafn, lit, uppruna,
föður, móður, ræktanda og eiganda. Síðasti skráningardagur er 3. desember.
Skráningargjald er kr. 500.-pr folald, sem greiðist inn á reikn. 1103-26-2813-kt.640169 2739
Aðgangseyrir er kr. 1000.

EKKI TEKIN KORT.

Í hléi mun hestamannafélagið Snæfellingur afhenda árlegar viðurkenningar sínar
fyrir árangur í keppni og hrossarækt.

Uppboð á folaldi frá Hömluholti ehf til styrktar Hrossvest. vegna reiðhallarbyggingu í Borgarnesi.

Boðið verður upp á kaffi og meðlæti á staðnum. Allir velkomnir.
Malbik alla leið. !! ca 50 km fyrir vestan Borgarnes.
Haustkveðja frá Hrossaræktarsambandi Vesturlands.

13.11.08

Folaldsmerarnar komnar á gjöf

Í vikunni rákum við stóðið heim til þess að ná folaldsmerunum úr og koma þeim á gjöf áður
en þær færu að leggja af. Hrossin litu öll mjög vel út og hafa ekki fleiri hnjúskar komið
í ljós. Þriggja vetra trippin sem nú hafa verið í tamningu í mánuð voru útskrifuð í bili enda
öll orðin reiðfær og fengu þau því að slást í hópinn með stóðinu. Fórum daginn eftir og litum á
hryssurnar þar sem þær stóðu í kvosinni í kastalahólfinu og átu úr rúllunni. Fullkomið skjól fyrir
kaldri norðanáttinni sem blæs nú sem aldrei fyrr.

Píla og Sleipnir

11.11.08

Reiðnámskeiðið með Sigga Sig

Eins og fram hefur komið verður reiðnámskeið með Sigga Sig 13 og 14 des.
Aðeins komast 10 á námskeiðið svo fyrstir koma fyrstir fá, kennt verður í tveggja manna hópum.
Hentar námskeiðið öllum jafnt áhugamönnum sem atvinnumönnum. Námskeiðið kostar 20 þúsund og
inní verðinu er kaffi og hádegismatur báða dagana og geymlsa fyrir hrossið meðan námskeiðinu
stendur. Nánari upplýsingar hjá dóra í síma 8995625.

05.11.08

Námskeið í byggingardómum

Endurmenntunardeild Landbúnaðarháskóla Íslands og Hestamiðstöðin í Söðulsholti
bjóða upp á námskeið laugardaginn 29. nóvember í byggingu hrossa.

Markmið með námskeiðinu er að bjóða upp á ítarlega fræðslu um byggingu hrossa og hvaða atriði er
verið að meta þegar hver eiginleiki byggingar er dæmdur. Einnig verður farið yfir reglur kynbótasýninga
og það hvernig best er að stilla hrossi upp í byggingardómi. Námskeiðið byggir að hluta til á
fyrirlestrum en mikil áhersla verður lögð á verklegar æfingar.

Kennari er Þorvaldur Kristjánsson, kynbótadómari og starfsmaður LbhÍ.
Námskeiðið fer framm í reiðhöllinni í Söðulsholti Laugardaginn 29. nóv. kl. 10:00 –16:30
Verð: 14.000 kr

Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 3.000 kr (óafturkræft)
á reikninginn 1103-26-4237, kt. 411204-3590.

Skráning frer framm hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á endurmenntun@lbhi.is eða í síma
433 5000/843 5302 (fram komi nafn, kennitala, heimili og sími)
Skráningarfrestur til 24. nóvember!

Eyþór og Þorvaldur

03.11.08

Reiðnámskeið með Sigga Sig

Stefnt er að því að hafa reiðnámskeið með Sigga Sig helgina 13-14 Des.
Námskeiðið verður auglýst nánar síðar.

Sigurður og Freyðir

03.11.08

Glaður frá Stórhól

Hér koma nokkrar myndir fyrir hana Jasmin í Sviss af hestinum hennar honum Glað.
Fengum Glað í tamningu fyrir hálfum mánuði en þá var hann alveg ósnertur,
það er ekki hægt að segja annað en hann takið þessu öllu saman vel og það styttist
í það að það verði farið að skrölta á honum úti. Glaður er undan Tígli frá Gýgjarhóli
og Glettu frá Sauðárkróki.

Glaður Glaður Glaður

Glaður Glaður

02.11.08

Unghrossatamningar

þegar stóðið var rekið heim á miðvikudaginn voru veturgömlu- og tveggja vetra tryppunum haldið
eftir heima í nokkra daga til að meðhöndla þau aðeins. Það flýtir mikið fyrir tamningunni á þeim
seinna meir að læra að vera bundin, hlíða taumnum og teymast á eftir. Auk þess kynnist maður
skapferli trippana og getur skoðað hreyfingar og ganglag. Sérstaka hrifningu vakti hún Nótt frá Kommu
en hún er veturgömul, undan Sunnu frá Akri og Gígjari frá Auðsholtshjáleigu. Einstaklega mjúk
og léttstíg hryssa þar á ferð.

Iðunn og Spyrna frá Skáney Dóri og Tígla Nótt frá Kommu

29.10.08

Stóðið rekið heim

Stóðið að hlaupa heim Ábóti

Í dag var stóðið rekið heim til þes að láta sprauta það við orm og lús, örmerkja og snyrta hófa.
Hópurinn er að verða nokkuð stór þó hann eigi nú nokkuð í land með að ná kilómetra þegar þau lesta sig.
Skjótta folaldið á myndinni er hann Ábóti undan Sunnu frá Akri og Álf frá Selfossi.
Virkilega hreyfingafallegt folald sem minnir töluvert á föður sinn.

Einar heilsar upp á Abbadís Hrossin í gerðinu

Athuga þurfti holdafar á hrossunum og kíkja á hvort einhverjir hnjúskar séu komnir í feldinn.
Hér heilsar Einar upp á hana Abbadís sem ótrúlegt en satt hefur ekki komið sér neitt klandur
nýlega. Hrossin biðu róleg í gerðinu þess sem verða vildi í góða veðrinu í dag.

Þorbjörn Rúnar að sprauta

Á fyrri myndinni er hann Þorbjörn frá Söðulsholti undan Keili frá
Miðsitju og Kolbrún frá Kjarnholtum. Rúnar dýralæknir mætti á svæðið og gaf orma
og lúsameðalið undir húð.

23.10.08

Það læra börnin sem fyrir þeim er haft

Yngsti starfskrafturinn í hesthúsinu var í óða önn að fóðra pony gæðingana sýna núna
seinnipartinn og að því loknu þurfti að sjálfsögðu að brynna þeim líka. Alls eru þeir 11
á fóðrum og af öllum stærðum og gerðum. Þó vekur samt athygli mikil litafjölbreytni í hópnum
auk þess sem afar skrautlegur litur er á bæði faxi og tagli á þessum sérstaka stofni.
Það var ekki annað að sjá en það fari vel um skepnurnar, enda getur sú stutta verið tímunum saman að dunda sér með þá

Við stallinn Kolbrún að gefa vatn

21.10.08

Kíkið á tenglasafnið

Erum reglulega að svipast um eftir nýjum hestatengdum heimasíðum til að bæta í tenglasafnið
okkar. Endilega kíkið á listan með því að smella hér og sendið okkur
póst ef þið vitið um eithvað sem vantar á hann.

20.10.08

Fyrirhuguð folaldasýning!!!

Glasi

Stefnt er að því að hafa folaldasýningu í Söðulsholti
Laugardaginn 6. Desember, hún verður auglýst nánar síðar.

11.10.08

Laus pláss í tamningu

Tamningarnar í Söðulsholti eru komnar í gang aftur eftir smá frí hjá tamningafólkinu.
Við höfum verið að taka inn hross frá okkur, sem eru að fara á fjórða vetur og stefnum við að
temja þau í rúman mánuð og láta þau síðan út aftur. Haustin eru í raun frábær tími til að
frumtemja þar sem trippin eru með rólegra móti á þessum árstíma og sniðugt að koma þeim
aðeins af stað. Núna eru laus pláss í tamningu hjá okkur og viljum við benda áhugasömum á
að hringja í okkur eða að senda okkur línu í tölvupósti.
Hrossið á myndinni er hún Nasa frá Söðulsholti undan Hildi frá Sauðárkróki og Parker frá
Sólheimum. Hún er þriggja vetra og nýkomin inn til tamningar.

08.10.08

Hrossin í hausthaganum

Skruppum í hádeiginu í dag til að athuga hvort hrossin hefðu það ekki gott
í nýja hólfinu niður með ánni. Ekki var annað að sjá þar sem þau flatmöguðu
í góða veðrinu í dag enda nóg að bíta og brenna og vítt til allra átta.

03.10.08

Veturinn kominn??

Það er ekki hægt að neita því að maður var kominn pínu jólaskap í gærkvöldi,
en þá féll fyrsti snjórinn í byggð og þakti allt. Á myndunum sést hvernig Hafursfellið
og hesthúsið litu út í morgunsárið.
En því miður á þetta nú ekki að vara lengi því það á víst að fara að rigna um helgina.

Hafursfellið og Þverdalur til hægri Hesthúsið og Hafursfell í baksýn

29.09.08

Hætt að rigna, í bili:-)

Eftir langan og strangan rigningarkafla sem verið hefur nánast allan þennan mánuð stytti
loksins upp. Kornbændurnir í kringum okkur, sem hafa verið að reita hár sitt og skegg yfir öllum
ósköpunum spruttu af stað og reyna nú að ná því byggi upp sem ekki er þegar fokið eða orðið að
gæsafóðri. Annars er allt fínt að frétta héðan við erum komin til baka eftir smá frí og er
verið að klára girðingarvinnu og skjólveggi fyrir veturinn en eftir mánaðarmótin fer svo
allt á fullt aftur í tamnningunum.

21.09.08

Göngur

Einn skemmtilegasti tími ársins er í gangi núna, göngur og réttir, en í gær fór allt tiltækt lið frá
Söðulsholti, Rauðkollsstöðum og Dalsmynni til að smala Rauðamelsfjallið og Svínafellið.
Veðrið var hreint ótrúlegt en það gekk á með svaka éljum og svo komu þrumur og eldingar reglulega.
Til að kóróna allt var hávaðarok beint upp í fangið á smalamönnum. Þó að alltaf sé gaman að vera uppi
á fjöllum að smala voru allir dauðfegnir að komast niður til byggða og fá rjúkandi heitt kakó og meðlæti
á Þverá. Þverárrétt er síðan í dag sunnudag klukkan eitt.

08.09.08

Abbadís hrakfallabálkur

Það er ekki laust við að hún Abbadís frá Söðulsholti, dóttir Blæju frá Svignaskarði
og Arðs frá Brautarholti, lendi í ýmsum hrakningum. Í vetur festi hún afturfót í rafgirðingu
og tók í sundur á sér réttisinina þannig að henni var vart hugað líf og var hún í gifsi í 4 mánuði.
Hún náði sér þokkalega af því en stingur að vísu alltaf við og verður sennilega aldrei nothæf í reið.
Á fimmtudaginn var fann Einar hana fyrir algjöra tilviljun þar sem hún hafði fallið ofan í skurð
og komst ekki upp með nokkru móti. Var því brugðið á það ráð að sækja traktor og hífa hana upp og
gekk það ágætlega og var hún að vonum frelsinu fegin og trítlaði í átt til hina hestanna.

04.09.08

Petra kveður:-(

Hjálparhellan okkar hún Petra frá Sviss sem kom til okkar um miðjan apríl var að fara heim til sín í dag. Petra er mikil áhugamanneskja um Ísland en hún var að koma hingað í sjötta skiptið. Hún er búin að skoða nánast hvern einasta stein hér í kringum Söðulsholt auk þess sem hún ferðaðist vítt og breitt um landið í hálfan mánuð í sumar. Þökkum Petru kærlega fyrir ánægjulegann tíma og vonumst til að sjá hana einhverntíman seinna.

03.09.08

Tenglalisti

Var að uppfæra Tenglalistann og bæta inn slatta af nýjum heimasíðum hestamanna auk þess sem
þar er að finna síður nokkura hestamannafélaga. Smellið á linkinn Tenglar til að skoða listann.

31.08.08

Konunámskeið!!!

Um helgina var haldið reiðnámskeið fyrir konur, kennari var Jóhanna Friðriksdóttir.
Tókst námskeiðið mjög vel og var fólk himinlifandi eftir helgina. Voru það helst karlarnir sem
voru fúlir að hafa ekki fengið að vera með og var því ákveðið að drífa í að hafa annað námskeið
dagana 13 og 14 september. Þeir sem hafa áhuga á því að vera með geta sent póst á
Sodulsholt@sodulsholt.is eða í sima 8995625. Einnig viljum við biðja þá sem voru á
síðasta námskeiði og ætla að vera með á þessu að staðfesta sem fyrst.

13.08.08

Myndir úr fjöruferðum sumarsins

Var að setja inn myndir frá fjöruferðum okkar í sumar þar sem meðal annars var farið
frá Skógarnesi og í Traðir og til baka í Söðulsholt. Svo fórum við líka með hótelhaldaranum
á Hótel Eldborg rúnt út fyrir eyjar og í Skógarnes. Daginn eftir var riðinn hringur
um Skógarnesfjöru. Vorum alltaf mjög heppin með veður og náði Iðunn mörgum skemmtilegum
ljósmyndum, (flestum úr hnakknum) í þessari ævintýraveröld þar sem reiðfærið og útsýnið verður
seint toppað. Með því að smella á linkinn Myndir og velja fjöruferðir 2008 er hægt að skoða myndirnar.

12.08.08

Stóðhestanotkun 2008

Nú eru allar merarnar kastaðar og farnar undir stóðhesta, nokkrar eru fengnar og
komnar aftur heim. Ef allt gengur að óskum ættu að fæðast 15 folöld á næsta ári.
Það er nú ekki hægt að segja að það hafi verið auðvelt val að finna hesta fyrir allar
merarnar því mikið er nú úrvalið. En hestarnir sem við hérna í Söðulsholti ákváðum að nota 2008 voru:

Sindri frá Keldudal

Klettur frá Hvammi

Kjarni frá Þjólfshaga

Hróður frá Refstöðum

Adam frá Ásmundarstöðum

Hæringur frá Litla-Kambi

Eldjárn frá Tjaldhólum

Gígjar frá Auðsholtshjáleigu

Hófur frá Varmalæk

Bruni frá Skjólbrekku

Sindri frá Keldudal

Funi frá Dalsmynni

Arður frá Brautarholti

Húmvar frá Hamrahóli

Hesturinn á myndinni er

Sindri frá Keldudal 3 vetra stóðhestur í eigu búsins.

21.07.08

Höttóttur Álfsonur!!!

Síðasta merin kastaði í morgun en það var hún Sunna frá Akri og kom hún með rauðhöttóttan
blesóttan hest undan Álf frá Selfossi. Það var að vísu búið að panta meri en getum við ekki
verið annað en himinlifandi enda er hann algjör töffari. Fórum svo í hádeginu og kíktum hvort
merin væri ekki laus við hildirnar en var þá sá stutti horfinn og merin hljóp á harðastökki
fram og til baka við lítinn skurð sem er þar. Þegar við fórum að leita hafði folaldið dottið
ofaní djúpa holu alveg við skurðinn og rétt sást í hausinn á honum og aðra frammlöppina sem
stóð uppúr. Náðum að toga hann upp úr og var allt í fínasta lagi með þann stutta og eyddi hann
restinni af deginum í að flatmaga í sólinni enda þreyttur eftir viðburðaríkann dag.

Kolbrún að knúsa flottur Týndur

05.08.08

Reiðnámskeið í ágúst!!!

Stefnt er að því að halda 3 daga reiðnámskeið fyrir börn og unglinga 5-7 ágúst og einnig
ætlum við að reyna að hafa reiðnámskeið fyrir konur dagana 29-31 ágúst.
Kennari á námskeiðunum verður Jóhanna Friðriksdóttir, útskrifaður reiðkennari frá Hólum 2006
Nánari upplýsingar gefur dóri í síma 8995625.

15.07.08

Píla frá Brún köstuð!

Píla frá Brún kastaði í gær myndarlega jörpum hesti undan Roða frá Múla. Þar sem enn hafði ekki
náðst að festa á filmu neina af merunum kasta, var húkt út í bíl til að ganga fjögur um nótt til að
missa örugglega ekki af þessu!
Ein af merunum hans Einars er enn óköstuð og nú er á henni mikil pressa að koma með meri og ekki
myndi nú skemma fyrir ef hún yrði rauðskjótt.

09.07.08

Keilirsdóttir

Fórum í gærkveldi út í Breiðuvík að skoða móálótt merfolald sem við eigum undan Þernu frá Flugumýri
og Keili frá Miðsitju. Var hún öll hin sprækasta og fór af stað á fallegu brokki.

09.07.08

101 Border Collie

Hvolparnir okkar dafna mjög vel og eru að komast á þann aldur að verða alveg ómótstæðilegir,
þeir halda aðalega til inni í nýja hesthúsinu en bregða sér stundum út í góða veðrið og leika sér.
Þeir eru nú allir komnir með nýja eigendur og fara fljótlega að kíkja á nýju heimkynni sín.
Til að sjá myndir af krílunum smellið á meira..

Meira...

23.06.08

Kolbrún frá Kjarnholtum köstuð

Hún kom með myndarlegan bleikalóttan stjörnóttan hest undan Keili frá Miðsitju. En Kolbrún
er undan Pilt frá Sperli og gæðingamóðurinni Glókollu frá Kjarnholtum. Svo er bara að krossa fingur
og vona að þessar 2 sem ókastaðar eru komi með merar því aðeins eru komin 2 merfolöld en 4 hestar.

15.06.08

Sleppitúr 2008

Einar fór síðustu helgi í árlegan sleppitúr og að þessu sinni voru hrossin keyrð alla leið að
Stafafelli í Lóni og riðið þaðan um sveitina og endaði ferðin á Kirkjubæjarklaustri.
Hægt er að lesa ferðasöguna á blogginu hjá Dalsmynnisbóndanum Heimasíða Dalsmynnis.
Skelltum hér inn nokkrum myndum af vel heppnaðri ferð.

15.06.08

Hestur mánaðarins

Hestur mánaðarins að þessu sinni er hún Fjóla frá Árbæ. Fjóla er klárhryssa með 7.99
fyrir byggingu og 7.95 fyrir hæfileika, þar af 8,5 fyrir háls/herðar, prúðleika, tölt, brokk
og 9 fyrir vilja og geðslag. Hún er með frábært geðslag og hægt að setja nánast hvern sem er
á bak á hana. Fjóla stóð sig vel á opnu íþróttamóti hjá Faxa um helgina og var í úrslitum í tölti
og fjórgangi. Fjóla er komin inn á landsmót í B flokki og verður henni haldið undir Auð frá Lundum í sumar. Eigendur Fjólu eru Dóri, Iðunn og Svanur.

13.06.08

Móálóttur,hringeygður!!

Blæja frá Svignaskarði kastaði í nótt myndarlegum hesti, móálóttum og hringeygðum á öðru auga.
Faðirinn er grái klárhesturinn Hrymur frá Hofi. Blæja fer síðan undir Keili frá Miðsitju í sumar.
Eru þá eftir 3 merar ókastaðar.

11.06.08

Abbadís komin út

Abbadís litla sem festi sig í girðingu fyrir fyrr í vetur og tók í sundur á sér réttisinina á
afturfæti er nú komin úr gifsinu. Öllum til mikils léttis steig hún í fótinn og hefur því sininn
náð á gróa saman. Settum hana út í dag og stakk hún aðeins við en þetta leit samt allt vel út, og tók
sú stutta nokkrar góðar gusur þegar henni var sleppt, enda búin að fá að dúsa ein í stíunni
síðustu þrjá mánuðina.

04.06.08

Gloría köstuð

Í morgun var Gloría frá Snartartungu búin að kasta og hafði sú gamla nú aldeilis vandað sig við litavalið
en við hlið hennar lá jarpblesótt meri undan Sólon frá Skáney.

04.06.08

Komnir Hvolpar:)

Um helgina gaut tíkin okkar hún Mýra 8 hvolpum, 4 hundum og 4 tíkum. Þeir eru allir mjög svipaðir á
litinn, mikið svartir, kjömmóttir, blesóttir, þrílitir og sokkóttir. Faðir hvolpana er Skrámur frá Dalsmynni
sem er undan tveimur margföldum Íslandsmeisturum í smalahundakeppni, Skessu frá Hæl og Tígli frá Eyrarlandi. Móðirin Mýra frá Setbergi er hins vegar undan Kát frá Bergi sem hefur verið að skila mjög öflugum smalahundum. Mýra fékk titilinn besta tíkin á landskeppni smalahunda nú í haust fyrir að vera sigahæsta tíkin á mótinu. Þeir sem áhuga hafa á því að kaupa sér vel ættaða hvolpa er bent á að tala við Dóra í síma 8995625.

30.05.08

Hestur mánaðarins

Hestur mánaðarins er Lipurtá frá Söðulsholti, Lipurtá er 6v undan Rökkva frá Hárlaugsstöðum
og Kötlu frá Neðstabæ. Lipurtá er stór og myndarleg meri, með frábært geðslag, hún fór í
byggingardóm í fyrra og hlaut 8.13 í einkunn, þar af 8,5 fyrir háls/ herðar og bak/lend
og 9 fyrir prúðleika. Stefnt var með Lipurtá í dóm í sumar, en hún var því miður slegin illa
og sködduðst liðirnir í hækilliðnum. Verður henni hugsanlega haldið í sumar og mynduð aftur
að rúmu ári, en það skýrist betur á næstu vikum.

29.05.08

Þriðja folaldið!!!

Í nótt kastaði Hrafnhildur frá Hoftúnum myndarlegu rauðstjörnóttu hestfolaldi undan
Hágangi frá Narfastöðum. Næstu dagar/vikur verða spennandi því enn eru 5 merar ókastaðar.
En það er alltaf jafn gaman að spá og spekúlera á þessum tíma. Kemur hestur eða hryssa,
hvernig litt og ekki minnkar svo áhuginn þegar gripurinn lítur dagsins ljós.

27.05.08

Pyngja köstuð

Í dag fæddist rauðblesótt meri undan Sólon frá Skáney og Pyngju frá Syðra-Skörðugili.
Ekki þurftu eigendurnir að velta nafnavalinu lengi fyrir sér og gáfu henni nafnið Sóley enda vel við hæfi
þar sem sumarið er á miklu skriði þessa dagana. Fleiri folöld eru svo væntanleg um og eftir
mánaðamótin.

Sóley frá Söðulsholti Dóri heilsar upp á Sóleyju

18.05.08

Tvö ný hross á söluskrá!!!

Til sölu er falleg og geðug tölthryssa Gleði frá Litla-Kambi og 2 vetra hrysan Eldborg frá Snartartungu
Sjá nánar inn á linknum söluhross

18.05.08

Hildur í góðan dóm

Hildur frá Sauðárkróki var sýnd í Víðidalnum í síðustu viku og fékk 8,00 fyrir byggingu,
7,87 fyrir hæfileika og 7,92 í aðaleinkun. Hildur er 9 vetra undan Stíganda frá Sauðárkróki
og Hind frá Laufhóli sem var vel byggð klárhryssa með 7,97 í aðaleinkunn undan Glað frá Sauðárkróki
og Murtu frá Laufhóli. Hægt er að smella á nafn til að fá frekari upplýsingar um dóminn.

09.05.08

Sindri frá Keldudal

Sindri frá Keldudal verður í Söðulsholti í sumar, Sindri er stór og myndarlegur með flotta
frambyggingu. Hann er með eindæmum geðgóður og fer jafnt um á tölti og brokki.
Sindri er undan heiðursverðlauna hryssunni Ísold frá Keldudal (B:7,98 H:8,67 A:8,32)
og Hágang frá Narfastöðum (B:8,41 H:8,25 A:8,31)hægt er að smella á nafn til að fá nánari upplýsingar um hann.
Pantanir taka Einar í síma 8993314 og Svanur í síma 6948020,
verð er 20.000 fyrir utan vsk og sónar

28.04.08

Fyrsta folaldið!!!

Fyrsta folald sumarsins fæddist í morgun, rauðstjörnóttur hestur undan
Hágang f. Narfastöðum og Von frá Söðulsholti. Tók heimurinn ansi kuldalega á móti
litla krílinu en mjög hvöss norðanátt var í allan dag og hitastigið rétt yfir frostmarki.
En sá stutti bar sig bara nokkuð vel og dvaldi hlémeginn við skjólvegginn hjá móður sinni.
Virðist þetta vera hinn fallegasti gripur með langan og grannan háls og eigandinn Halla Sif Svansdóttir
er hæstánægð.

21.04.08

Hestur mánaðrins

Hestur mánaðarins er litla hetjan okkar, hún Abbadís frá Söðulsholti.
Abbadís er veturgömul undan 1.verðlauna klárhryssunni Blæju f. Svignaskarði
og Arð f. Brautarholti. Abbadís slasaði sig illa á fæti fyrir rúmum mánuði þegar
hún var að velta sér við girðingu. Náði hún að vefja vír um vinstri afturfót með
þeim afleiðingum að réttisinin fór í sundur. Þetta leit virkilega illa út, en eftir að
hafa ráðfært sig við dýralækni var ákveðið að reyna lækningu. Var brunað með hana í
bæinn þar sem Björgvin dýralæknir tók við henni. Hún var saumuð og gifsuð og var
undir daglegu eftirliti Björgvins í 3 vikur. Hún er núna komin heim og þetta lítur
ótrúlega vel út og miklar líkur á að sinin nái að gróa saman aftur. Það kemur samt ekki
í ljós fyrr en eftir 2 mánuði þegar gifsið verður tekið af.

Abbadís Abbadís

Abbadís

27.03.08

Hjálparhellurnar í hesthúsinu

Það er margt sem þarf að gera í stóru hesthúsi og er löngu orðið tímabært að maður
fari að minnast á aðstoðarmanneskjurnar í hesthúsinu, en það eru þær Jessica frá Svíþjóð
og Katrín frá Þýskalandi, Jessica er búin að vera í nærri 2 mánuði og fer 5 Apríl.
15 Apríl kemur svo hún Petra frá Sviss.

Katrín að raka folald Jessica að þjálfa

21.03.08

Hestur mánaðarins

Hestur mánaðarins er Bliki frá Dalsmynni. Bliki er 9 vetra jarpskjóttur undan Þrym frá
Dalsmynni og Mön frá Gegnishólaparti. Bliki er einn af þessum draumahestum sem nauðsynlegt
er að eiga á öllum bæjum. Hestur sem allir geta riðið á, með frábært geðslag og gott tölt.
Á meðfylgjandi myndum er barnabarn Einars hún Inga Dís á Bliki inn í reiðhöll. Á hinni myndinni
er Dóri að fara með 16 mánaða gamla dóttir sina í fyrsta reiðtúrinn hennar úti.
Eigandi Blika er Söðulsholt ehf.

Inga Dís á reiðnámskeiði Dóri og Kolbrún Katla á útreiðum

21.03.08

Ný söluhross á síðunni!!!

16.03.08

Barna og unglinganámskeið

Um helgina var haldið reiðnámskeið í Söðulsholti fyrir börn og unglinga .
Kennari var Jóhanna Friðriksdóttir. Námskeiðið heppnaðist vel og var m.a.
farið í öndun, ásetuæfingar og fimiæfingar. Var sérstaklega gaman að fylgjast með
yngstu nemendunum sem stóðu sig frábærlega.

Jóhanna með yngri hópnum Eldri hópurinn

12.03.08

Hross vikunnar

Hestur vikunnar er Rebekka frá Króki. Rebekka er 10 vetra rauðskjótt undan
Núma frá Þóroddstöðum (A: 8,66) og Rakel frá Hárlaugstöðum (A: 8.04) Rebekka
er 1.verðlauna alhliða meri með 8.11 fyrir byggingu og 8.37 fyrir hæfileika.
Eigandi Rebekku er Söðulsholt ehf.

Rebekka frá Króki Rebekka frá Króki

09.03.08

Reiðnámskeið með Ragga Hinriks

Um helgina var haldið námskeið með Ragnari Hinrikssyni, námskeiðið var á vegum
Óla hótelstjóra og heppnaðist vel, bæði hestar og menn voru farnir að slaka vel á
og greinilegt að fróðleikurinn frá Ragga síaðist vel inn í mannskapinn.
Um næstu helgi verður haldið reiðnámskeið fyrir börn og unglinga, kennari verður
Jóhanna Friðriksdóttir, nánari upplýsingar í síma 8995625 eða 8610175

01.03.08

Nýja hesthúsið tilbúið

Loksins loksins er nýja hesthúsið til. Í því eru 13 eins hesta stíur.
Innréttingar koma frá Króm og Stál. Er húsið aðallega hugsað sem gestahesthús,
þegar haldin eru námskeið og eins ef mikið er af graðhestum eða óróaseggjum í tamningu.
Húsið er strax farið að koma sér vel því við erum strax farin að hafa nokkur hross í því.

Nýja hesthús Nýja hesthús

Nýja hesthús Nýja hesthús

26.02.08

Myndir frá reiðnámskeiði

Skellti inn nokkrum myndum frá velheppnuðu reiðnámskeiði
sem haldið var nú um helgina. Leiðbeinandi var Magnús Lárusson.

Meira...

17.02.08

Hross skotið við þjóðveginn

Það er alveg ótrúlegt hvað sumu fólki dettur í hug, en á þriðjudagsmorgun fannst
dauð fylfull meri frá Auðun á Rauðkollsstöðum. Þegar farið var að skoða hana nánar
kom í ljós að hún hafði verið skotin í hausinn. Merin var í hólfi ásamt fleiri hrossum
alveg við þjóðveginn og lá um 50 metra frá veginum. Eru menn að sjálfsögðu mjög slegnir
yfir þessum fréttum.
Það er ekki ólíklegt að hér hafi verið á ferðinni menn á ljósaveiðum,
þ.e. keyra með ljóskastara í leit að refum á ferð. Síðan er skotið á glampandi augað.
Þessar veiðar eru að sjálfsögðu kolólöglegar, í fyrsta lagi er bannað að skjóta úr bíl,
í öðru lagi má hvergi skjóta nema með leyfi landeiganda og svo er þetta stórhættulegt því
menn eru með öfluga riffla sem gætu drepið menn eða skepnur í nokkurra km fjarlægð.
Þarna eru menn að skjóta út í myrkrið án þess að hafa hugmynd um hvert kúlan gæti endurkastast.

12.02.08

Ýmislegt brallað í reiðhöllinni

Um helgina var haldið tveggja daga námskeið í tamningu fjárhunda (Border Collie)
í reiðhöllinni. Kennarinn kom frá Wales, Colin Gordon þrautreyndur þjálfari og keppnismaður
í fjárhundakeppnum. Hann hafði á orði að hann hefði aldrei komist í aðra eins aðstöðu til þess
að halda námskeið og hér, upphituð höllin og hljómflutningsgræjurnar sáu til þess að nemendurnir
heyrðu til hans hvar sem þeir voru staddir í húsinu þegar hann lagði mönnum lífsreglurnar.
Þátttakendurnir voru mjög ánægðir með kennarann og aðstöðuna

Farðu svo hææægri kallinn Hringgerðið kom að góðum notum

Hluti af þáttakendum Colin Gordon

07.02.08

Brjálað veður!!!

Vetur konungur er enn og aftur búinn að minna á sig 20-30 cm jafn fallinn snjór var í morgun
og gekk á með dimmum éljum svo mikið er búið að vera um útafakstur og fasta bíla hérna í nágrenninu.
Brutumst út og gáfum vesalings útiganginum sem stendur bara í höm og bíður betri tíðar.

Nýji söðulsholtsbíllinn dregin upp Beðið eftir heyjinu

Gat á himninum Merar og folöld

Merar og folöld Svanur að moka gerðin

03.02.08

Mokstur

Það er búið að bíða lengi færis á að hreinsa hálminn undan hrossunum. Loks viðraði þannig
og þó það væri sunnudagur var ákveðið að taka þetta með trukki. Keyrt var á tveim sturtuvögnum
og mokað á með Sceffernum. Og á 5 tímum fór allt út úr þessum 18 tveggja hesta stíum.
Nú eru hrossin allt í einu komin 40 cm. neðar í húsið og virka mun minni en í morgun.
Næsta losun fer væntanlega fram í maí.

Scefferinn öflugi Búið að moka og setja inn hálm

28.01.08

Námskeið í byggingardómum

Laugardaginn 26. janúar var haldið námskeið í byggingardómum hrossa. 20 manns sóttu námskeiðið
og kennarar voru þeir Þorvaldur Kristjánsson og Eyþór Einarsson.
Byrjað var á að fara í bóklega kennslu uppi á kaffistofu en eftir hádegismat var farið niður
í reiðhöll þar sem slatti af hrossum var dæmdur.
Heppnaðist námskeiðið mjög vel og voru allir sammála um að dagurinn hafi verið fróðlegur.
Stefnt er að því að hafa annað svona námskeið fljótlega og geta þeir sem hafa áhuga á því
haft samband við Dóra í síma 8995625.

Fyrirlestur hjá Þorvaldi Spáð og spekulerað

Eyþór og Þorvaldur Réttleikinn skoðaður

22.01.08

Ný söluhross

Vorum að setja inn trippi á sölulistann svo endilega kíkið á linkinn "Söluhross"

21.01.08

vetrarstemming

Skellti inn nokkrum myndum frá síðustu dögum

vetrarstemming vetrarstemming

vetrarstemming vetrarstemming

vetrarstemming vetrarstemming

15.01.08

Allt brjálað að gera!!

Ekki er hægt að segja annað en árið byrji frábærlega hérna í Söðulsholti.
Allt brjálað að gera í tamningum, og mikið af virkilega góðum og spennandi hrossum.
Flaggskipið í hópnum er hin litfagra Rebekka frá Króki, en stefnt er með hana á Landsmót.
Einnig er stefnt með slatta af hrossum í dóm í vor, m.a. eru það hross undan Kolfinn frá Kjarnholtum,
Leikni frá Laugavöllum, Hróð frá Refstöðum, Rökkva frá Hárlaugstöðum og Parker frá Sólheimum.
Einnig er stefnan að vera duglega að halda námskeið í reiðhöllinni í vetur,og er höllin að verða
uppbókuð um helgar í febrúar. Viljum við benda á að það er ekkert mál að fá höllina leigða
um helgar, og væri sniðugt fyrir fólk að safna saman 10-15 manna hóp og fá reiðkennara til að koma
og kenna, hægt er að geyma hrossin yfir nótt. Ef áhugi er á því að leigja höllina er best að
hringja í Einar í síma 8993314

13.01.08

Frábær þátttaka á folaldasýningu!!!

Folaldasýning var haldin í Hestamiðstöðinni Söðulsholti, Sunnudaginn 13.janúar.
Frábær þátttaka var,en 51 folald var skráð til leiks. Dómarar voru Eyþór Einarsson,
Þorvaldur Kristjánsson og þulur var Eysteinn Leifsson....

Meira...

Aftur til frétta