10.01.10

Metþátttaka á folaldasýningu

Það var metþátttaka á folaldasýningunni sem við héldum í gær en 78 folöld voru skráð til leiks 42 merar og 36 hestar. Dómarar voru Þorvaldur Kristjánsson og Hallgrímur Sveinsson og komust að því fullkeyptu að dæma þennan fjölda. Það gerði þeim enn erfiðar fyrir að þetta var mjög jafn og glæsilegur folalda hópur sem voru lang flest að stigast yfir 65 stig. Folald sýningarinnar var Dökkvi frá Dalsmynni, en hann vann hestaflokkinn og áhorfendaverðlaunin. Dökkvi er einmitt sammæðra honum Funa frá Dalsmynni sem vann ungfolasýninguna sem var hjá okkur í desember.

Viljum við þakka öllum fyrir frábæran dag en sérstaklega viljum við þakka dómurunum, Lárusi Hannessyni, sem stóð sig frábærlega sem þulur og svo Áslaugu á Þverá, sem sá um kaffiveitingar. Aðdáunarvert fannst okkur einnig hvað eigendur folaldanna voru passasamir að vera ekki að láta bíða eftir sér og var næsta folald sem átti að koma inná ávallt tilbúið í horninu við dyrnar. Enda þurfti sýningin að ganga ansi hratt til að ná að klárast á skikkanlegum tíma.

Úrslit voru svo eftirfarandi

Hryssur.

1. Jódís frá Borgarlandi

brúnstjörnótt
F: Jósteinn frá Votmúla
M. Freydís frá Borgarlandi
Eig/rækt, Ásta Sigurðardóttir


2. Harpa frá Hrísdal

rauðskjótt
F: Álfur frá Selfossi
M: Salka frá Vestra –Fíflholti
Eig/ræk. Hrísdalshestar sf


3. Kringla frá Stykkishólmi

brún
F: Jakob frá Árbæ
M: Stilling frá Skagaströnd
Eig/ræk, Eiríkur Helgason


4-7. Hlíð frá Miðhrauni

svört
F: Þeyr frá Akranesi
M: Valgrá frá Ketilsstöðum
Rækt/eig:Ólafur Ólafsson


4-7. Fjöður frá Söðulsholti

svört leistótt
F: Bruni frá Skjólbrekku
M: Fjóla frá Árbæ
Rækt/eig, Iðunn og Dóri


4-7. Kolbrún frá Borgarlandi

brún
F: Dynur frá Hvammi
M: Vigdís frá Borgarlandi
Eig/rækt Ásta Sigurðardóttir


4-7. Rjóð frá Hallkelsstaðahlíð

rauðstjörnótt
F: Feykir frá Háholti
M: Sunna frá Hallkelsstaðahlíð
Eig/rækt Sveinbjörn Hallsson og Sigrún Ólafsdóttir



Hestar

Dökkvi frá Dalsmynni

sótrauður
F: Eldjárn frá Tjaldhólum
M: Von frá Söðulsholti
Eig/rækt Svanur Guðmundsson


2. Kátur frá Hallkelsstaðahlíð

brúnn
F: Auður frá Lundum
M: Karún frá Hallkelsstaðahlíð
Eig/rækt Sigrún Ólafsdóttir


3. Snasi frá Miðhrauni

ljósjarpur
F: Þóroddur frá þóroddstöðum
M: Dagrenning frá Hvítanesi
Eig/rækt Ólafur Ólafsson


4-6. Seifur frá Hjarðarfelli

brúnn
F: Dynur frá Hvammi
M: Venus frá Hofi
Eig/rækt Sigríður Guðbjartsdóttir


4-6. Hamar frá Miðhrauni

jarpur
F: Sveipur frá Miðhrauni
M: Yrpa frá Baldurshaga
Eig/rækt Ólafur Ólafsson


4-6. Nökkvi frá Hrísdal

jarpur
F: Sær frá Bakkakoti
M: Þófta frá Hólum
Eig/rækt Hrísdalshestar sf

Aftur til frétta