Frábær þátttaka á folaldasýningu!!!

13.01.08

Folaldasýning var haldin í Hestamiðstöðinni Söðulsholti, Sunnudaginn 13.janúar.
Frábær þátttaka var,en 51 folald var skráð til leiks. Dómarar voru Eyþór Einarsson,
Þorvaldur Kristjánsson og þulur var Eysteinn Leifsson og stóðu þeir sig allir með glæsibrag.
Rúmlega 150 manns voru mættir til að horfa á. Baugur frá Víðinesi átti flest afkvæmi eða 10 stk,
en annars voru þau undan hinum ýmsu hestum.
Glæsilegasta folaldið að mati áhorfenda var hin litförótta Drottning frá Fáskrúðarbakka,
en heyrst hefur að hún hafi skipt um eiganda eftir sýningu.

Drottning frá Fáskrúðabakka Stjáni á Bakka

Á meðfylgandi myndum er Drottning f. Fáskrúðarbakka og stoltur ræktandi og eigandi
Kristján Sigurvinsson
Fleiri myndir af sýningunni er að finna inni á myndalinknum
Önnur úrslit voru eftirfarandi.

Hryssur.

1.Drottning frá Fáskrúðarbakka.
rauðlitförótt
M:Þota frá Fáskrúðarbakka
F:Flugar frá Efra-Seli
Eig/rækt: Kristján Þór Sigurvinsson

2.Sigríður frá Feti
brúnstjörnótt
M:Ísafold frá Sigríðarstöðum
F:Orri frá Þúfu
Rækt: Fet
Eig:Hrossaræktarbúið Fellsendi

3.Sjaldséð frá Magnússkógum
rauðskjótt
M:Venus frá Magnússkógum
F:Baugur frá Víðinesi
Rækt:Guðbjörn Guðmundsson og Sigrún Ólafsdóttir
Eig: Sigrún Ólafsdóttir og Skúli L. Skúlason

4-5.Hrafnkatla frá Hrossholti
Brún
M:Gloría frá Snartartungu
F: Dynur frá Hvammi
Rækt/eig: Dóri og Iðunn

4-5.Gæfa frá Mosfellsbæ
Móálótt
M:Esja frá Mosfellsbæ
F;Hrókur frá Flugumýri
Rækt:Leifur Kr. Jóhannesson
Eig;Eysteinn Leifsson ehf og Hrísdalshestar sf

Hestar

1.NN frá Miðhrauni
rauður
M;Fjöður frá Bjarnastöðum
F: Sær frá Bakkakoti
Eig/rækt: Ólafur Ólafsson

2.Háfeti frá Hrísdal 1
rauðblesóttur
M:Brák frá Miðfossum
F:Hnokki frá Fellskoti
Eig/rækt: Ásdís Ólöf Sigurðardóttir

3.Sporður frá Stakkhamri
rauðskjóttur
M:Gletta frá Stakkhamri
F:Baugur frá Víðinesi
Eig/rækt: Laufey Bjarnadóttir

4-6.Dynkur frá Borgarlandi
Fífilbleikur
M:Freydís frá Borgarlandi
F:Dynur frá Hvammi
Rækt/eig: Ásta Sigurðardóttir

4-6.NN frá Miðhrauni
Rauður
M:Spá frá Hafsteinstöðum
F:Þóroddur frá Þóroddstöðum
Rækt/eig;Ólafur Ólafsson

4-6.Hrynur frá Hrísdal 1.
Rauður
M:Sigurrós frá Srandarhjáleigu
F:Þóroddur frá Þóroddstöðum
Eig/ræk; Eysteinn Leifsson ehf og Hrísdalshestar sf.

Aftur til frétta