Fréttir

05.02.12

Hestur janúrarmánaðar

Hestur janúarmánaðar er Lukka frá Söðulsholti, Lukka er grá fædd 2006 undan Hrym frá Hofi og skeiðmerinni okkar Þyrlu frá Söðulsholti.

Vorum við svona næstum búin að gefast upp á þessari meri en það var byrjað að temja hana 4 vetra og fljótlega eftir það byrjaði hún að festast í hæklunum á afturfótum, fyrst öðru megin og svo fljótlega á hinum fætinum. Þegar hún var hvað verst var hún að festast 3-4 sinnum bara við það að rölta upp úr stíunni og út í gerði, oftast náði hún að losa sig sjálf en þurftum samt stundum að hjálpa henni. Erum búin að byrja nokkrum sinni á henni en eftir 3-4 vikna þjálfun byrjar hún að festast aftur í löppunum og fer svo bara versnandi þannig að hún hefur alltaf verið pásuð aftur. Ákváðum svo að gera lokatilraun á henni í sumar og var hún í mjög léttri þjálfun í fyrstu mánuðina og förum svo að auka kröfunar í haust.
Þó kella sé orðinn 6 vetra er hún ekki mikið gerð og vorum við bara að gangsetja hana núna í haust, eins og er gengur bara mjög vel með hana og er hún bara mjög spennandi. Maður verður svo bara að krossa fingur og vona að hún sé komin yfir þetta.

25.01.12

Myndir af Ábóta

Drifum í því taka myndir af Ábóta í vikunni, en hann lítur bara vel út og erum við bara mjög sátt að eiga nokkur afkvæmi undan honum. Tölt og brokk mjög gott og fótaburður fínn, erum eiginlega farin að hallast að því að hann verði alhliða svo hver veit kannski verður bara næsta mynd sem birtist af honum á fljúgandi skeiði ;0)

Meðan Dóri þeyttist upp og niður afleggjarinn á Ábóta mættu Einar og Astrit á fákunum sínum en þau voru búin að fara í góðan fjallatúr enda frábært færi núna fyrir þessa blessuðu sleða.

22.01.12

Reiðnámskeið með Sölva Sig næstu helgi!!

Viljum minna fólk á reiðnámskeiðið með Sölva sem vera á um næstu helgi, en eru laus plás svo við hvetjum fólk til að skrá sig. Kent verður í einkatímum þannig að námskeiðið hentar öllum.

22.01.12

Sýnikensla í Borgarnesi

Guðmar Þór Pétursson tamningamaður og reiðkennari verður með sýnikennslu í Faxaborg miðvikudaginn 25. janúar 2012 kl. 20:00.

Aðgangseyrir kr. 1.000 fyrir 16 ára og eldri. Frítt fyrir 15 ára og yngri.

08.01.12

Frestun á folaldasýningu

Vegna erfiðs tíðarfars og snjóalaga neyðumst við til að fresta okkar árlegu folaldasýningu, sem var fyrirhuguð þann 14. Janúar 2012. Reiknum með að geta haldið sýninguna snemma í febrúar en hún verður tilkynnt með góðum fyrirvara þegar þar að kemur.

02.01.12

Mokstur

Þá kom að því að við náðum að sannfæra ýtumeistarann að koma og laga afleggjarann hjá okkur, var þetta nokkra kl tíma verk að ýta þessu öllu út, en á hann bestu þakkir skilið fyrir þetta og fær pottþétt köku hjá okkur næst þegar hann kemur í kaffi ;0)

Í desember var stefnan að byrja aftur að vera með hest mánaðarins, en vegna veðurs varð ekki mikið um myndartökur. Áttum myndir af einni meri síðan í Nóv og fær hún því bara að vera hestur desembermánaðar og svo vonandi verður betra veður núna í Jan svo hægt verði að mynda eitthvað.

En gripurinn heitir Sólfluga frá Hömluholti undan Huga frá Hafsteinsstöðum og Skrúðu frá Hömluholti, eigandi Sólflugu er Guðný Linda Gísladóttir.

29.12.11

Allt á kafi

Meiri, meiri snjó meiri snjó,,,,,,,,,, er Katla búin að raula síðustu daga, en úff er ekki að verða komið nóg, held bara að sjaldan eða aldrei síðan tamningarstöðin opnaði hafi verið svona mikið af snjó allastaðar. Ekki þessir háu skaflar heldur bara þykkt lag af snjó yfir öllu, sérstaklega á reiðvegum og afleggjurum og er orðið bísna snúið að komast eitthvað út í góðann reiðtúr.

Það þarf ekkert minna heldur en jarðýtu til að mokstur gangi eitthvað, en ákváðum í morgun að prófa að þjappa frekar snjóinn á afleggjarnaum heldur en að gera snjógöng sem fyllast altaf jafn óðum aftur. Þetta virkaði allavegna í dag og spennandi verður að sjá hvort við komumst í fyrramálið, en gaman væri að hafa tölu yfir það hversu oft við erum búin að festa bílinn síðustu vikurnar. Jarðýtan fékk svo að fara nokkrara ferðir niður reiðveg og svo fékk hluti af hestunum að fara í smá rekstur . Annars erum við búin að liggja yfir stóðhestadisknum frá Landsmótinu og mikið búið að vera að spá og spekulera hvaða hesta á að nota í sumar, Arður frá Brautarholti er mjög ofarlega á blaði og svo bíður maður bara spenntur að sjá hvaða hestar verða hjá hrossvest.

25.12.11

Jólakveðja frá Hestamiðstöðinni

12.12.11

Reiðnámskeið

Ef næg þátttakan næst stefnum við á að hafa reiðnámskeið helgina 28-29 Jan. Kennari verður Sölvi Sigurðsson, en hann hefur m,a stundað reiðkennslu við Háskólann á Hólum.

Kennt verður í einkatímum 20 mín tvisvar á dag og mælt er með að fólk fylgist með hinum meðan á kennslu stendur. Helgin kostar 18.000 á mann og innfalið er geymsla fyrir hrossið, kaffi og kökur en viljum biðja fólk um að taka með sér nesti í hádegismat, einnig er hægt að fá nýta eldunaraðstöðuna sem er til staðar. Skráning og nánari upplýsingar í 8995625 eða sodulsholt@sodulsholt.is

Mynd: Sölvi Sigurðsson.

27.11.11

Allt hvítt

Jólasnjónum kyngir niður þessa daga og maður getur ekki annað en krossað fingur og vonað að hann hverfi ekki fyrir jól, hver veit kannski verður hægt að dusta rykið af snjósleðunum sem eru orðnir ansi rykfallnir, enda lítið verið hreyfðir undanfarin ár.

Fórum í dag og kíktum á folaldsmerarnar og trippi sem hafa það gott niður á eyrum, aðeins hefur borið á hrossin séu að hnjóskast og virðist sem þessi mikla rigning sem hefur verið að undanförnu leggist á lappirnar á þeim. Töluvert af hrossum sem við höfum verið að taka inn eru múkkuð á löppunum og með hnjóska upp eftir fótunum, svo hvetjum fólk til að fylgjast vel með hrossunum

Þessar fjórar merar eru allar á fæddar 2009, sú fremsta er undan Hóf frá Varmalæk, brúna merin er undan Bruna frá Skjólbrekku, þessi rauða sem er að grána í rólegheitunum er undan Klett frá Hvammi og sú blesótta er undan Kjarna frá Þjóðólfshaga. Spennandi hópur þar á ferðinni ;0)

17.11.11

Vor í lofti

Veðrið síðustu daga er búið að vera ótrúlegt, mætti frekar halda að það væri Maí en ekki Nóvember, eina sem er hægt að kvarta yfir er blessuð rigningin sem hellist yfir öðru hverju svo allt í kring er í drullu Værum alveg til að fá nokkra þurra daga, svona aðallega til þess að geta náð upp hálminum sem liggur ennþá á öllum ökrunum.

Hrossin eru sum hver að verða ansi góð og eiga nokkur hross eftir að bætast inn á sölusíðana núna á næstunni. Smelltum myndum af nokkrum hrossum í byrjun vikunnar. Fyrst koma myndir af tveim systrum undan Gloríu frá Snartartungu, sú brúna er 4 vetra undan Dyn frá Hvammi, Jarpblesótta merin er 3 vetra, undan Sólon frá Skáney.

Rauða hrossið sem Arnar er á er Spyrna frá Skáney 4 vetra undan Eið frá Oddholi, hitt rauða er Eldur frá Krossholti undan Glym frá Hítarnesi

Í síðust viku lentum við í þeim leiðinlega atburði að missa eina af ræktunarmerunum okkar,
Sunnu frá Akri, 1. Verðlauna klárhryssa undan Roða frá Múla. Tókum við eftir því að hana vantaði úr stóðinu og fórum að leita. Fundum hana lifandi á kafi oní skurði, var hún orðin mjög köld og þegar var búið að ná henni upp var hún sett beint upp í kerru brunað með hana niðri í hesthús þar sem dýralæknirinn beið. Allt var reynt til koma henni í gang, en því miður tókst það ekki og drapst hún um nóttina. Mjög sárt að sjá á eftir svona góðri meri en það er aðeins rúmt ár síðan við misstum aðra 1. Verðlauna meri. Sunna var 13 vetra og fylfull við Kapal frá Kommu, eigum við undan henni 4 trippi. Gígjarsdóttur, Álfsoninn Ábóta,hest undan Húmvar frá Hamrahóli og meri undan Sigur frá Hólabaki.

Mynd: Tvö elstu afkvæmi Sunnu, Nótt frá Kommu og Ábóti frá Söðulsholti.

10.11.11

Tvær efnilegar merar til Sölu.

Fluga frá Söðulsholti IS2007237859

Undan skeiðmerinni okkar Þyrlu frá Söðulsholti, 1. Verðlaun fyrir hæfileika, og Léttfeta frá Söðulsholti sem var undan Adam frá Ásmundarstöðum.

Fluga er mjög skemmtileg meri, viljug,traust og ganggóð. Efni í frábært reiðhross, stór og myndarleg.

Sóley frá Söðulsholti IS2008237388

Undan Sólon frá Skáney og Pyngju frá Syðra-Skörðugili, 1. Verðlaun fyrir hæfileika, 7.88 í aðaleinkunn. Sóley er mánaðartaminn og mjög efnileg, fer um á tölti og brokki, frábært geðslag.

Nánari upplýsingar um þær í síma 8995625 eða á sodulsholt@sodulsholt.is

24.10.11

Októberfrétt

Jæja Þá er allt komið á fullt aftur eftir að við fórum í frí í september, um 30 hross eru inni núna og ansi ólíkur hópur þar á ferð ,0) erum byrjuð á þriggja vetra trippunum okkar og líta þau bara mjög vel út. Kannski ekki rosa stór árgangur en í eigu Söðulsholts eru 3 hestar og 1 meri, Hágangsonur, Álfssonur, Roðasonur og svo ein aðkeypt meri frá Fáskrúðarbakka undan Guðfinn frá Innri-Skeljabrekku, Iðunn og Dóri eiga svo 2 merar undan Sólon frá Skáney. Líta þessi trippi bara öll vel út en Álfsonurinn og Roðasonurinn eiga trúlega vinninginn í augnablikinu.

Mynd: Roðasonurinn Sleipnir frá Söðulsholti og Álfsonurinn Ábóti eftir 3 vikna tamningu.

Arnar Ásbjörnsson er svo komin aftur til starfa hjá okkar og ætlar að vera ríða út með okkur í vetur, í Nóvember fara 3 vetra trippin út og fljótlega upp úr því förum við að taka inn sparihestana og held ég bara að aldrei hafi eins mikið af spennandi og góðum hrossum verið á leiðinni inn á járn.

Mynd: Röðull frá Söðulsholti

Á sunnudaginn var folaldasýning hjá Snæfelling og fórum við með 3 folöld þangað, gekk það bara vel og endaði Röðull frá Söðulsholti í öðru sæti, vorum mjög ánægð með það en Röðull er undan Lipurtá frá Söðulsholti og Ábóta frá Söðulsholti. Stefnum við svo að því að hafa folaldasýningu hérna í Söðulsholti um miðjan Janúar en það verður bara auglýst betur þegar nær dregur.

04.10.11

Frumtamninganámskeið

Tveggja helga námskeið í Söðulsholti:
Dagana 29.-30. Október og 12.-13. Nóvember

Kennari: Guðmundur M. Skúlason Tamningamaður og Þjálfari FT

Haustið er góður tími til að frumtemja gæðingsefnin.
Á námskeiðinu kemur hver nemandi með tvö trippi og vinnur með báðar helgarnar.
Allir þátttakendur fá heimaverkefni til að vinna með á milli helganna.
Það sem verður meðal annars farið yfir á námskeiðinu er:
Atferli hestsins (Hvernig hugsar hesturinn?)
Leiðtogahlutverk (hvað getur maður fengið hestinn til að gera?)
Undirbúningur fyrir frumtamningu (Við byrjum ekki að taka stúdentspróf í 1. Bekk!)
Frumtamning er grunnur að góðri tamningu á forsendum hestsins.

Tveir bóklegir tímar (sameiginlegir fyrir alla þátttakendur, Átta verklegir tímar á hvern nemanda. Samantekt í lok hvers dags þar sem farið er yfir verkefni dagsins og spurningum svarað.
Miðað er við að allir þátttakendur horfi á tímana hjá hinum og sjái mismunandi hestgerðir og hvernig þær bregðast við á mismunandi hátt. Þá geta allir fengið mikið út úr námskeiðinu. Námskeiðið kostar 19.000 kr á mann með hesthúsplássi frá föstudagskvöldi fram á sunnudag.

Skráning í síma:7702025 (Guðmundur) Eða á netfangið: mummi@hallkelsstadahlid.is

29.09.11

Myndir

Nokkrar myndir af Nösu frá Söðulsholti sem teknar voru uppi við námurnar við Syðri-Rauðamel um mánaðarmótin ágúst september.

20.09.11

2011 árgangurinn.

Þá eru öll folöldin sem fæddust í ár komin á blað hér á heimasíðunni og hægt að skoða lista með þeim í unghross, SMELLIÐ HÉR. Þar er einnig hægt að sjá hver þeirra eru til sölu.

09.09.11

Loksins skjótt meri :)

Jæja þá loksins eru síðustu folöldin komin í heiminn hérna í Söðulsholti. Rebekka og Gerpla komu báðar tómar frá graðhesti seint í september í fyrra en voru að byrja í látum svo við ákvaðum að prófa að skella þeim undir Ábóta sem fyljaði þær báðar. Við erum svo pínu búin að sjá eftir því núna í allt sumar að hafa verið að halda þeim svona seint og vorum nú að vonast til að þær myndu nú flýta köstuninni aðeins, sem þær gerðu að sjálfsögðu ekki. Erum samt hæstánægð með útkomuna. Gerpla kom með gullfallegan skjóttan hest sem hefur hlotið nafnið Barón, og svo loksins loksins fæddist skjótt meri í eigu Söðulsholts, en Rebekka frá Króki kom með æðislega skjótta meri, höttótt, blesótta og með smá blett í öðrum náranum. Gerplu verður ekki haldið aftur í sumar en þar sem við vorum svo ánægð með nýju skjónuna okkar ákváðum við að halda Rebekku undir Sólon frá Skáney og vonandi fær hún fljótlega, flýtir sér svo aðeins og kastar svo á næsta ári í byrjun ágúst ;0).

25.08.11

Myndir frá barnanámskeiði og Síðsumarssýningunni á Miðfossum

19.08.11

Síðsumarsýning á Miðfossum

Dóri sýndi 3 merar á Kynbótasýningunni á Miðfossum og gekk það bara mjög vel. Kolfreyja frá Snartartungu fór í 1.verðlaun. Kolfreyja er 7 vetra undan Parker Sólheimum og Gloríu frá Snartartungu. Gloría hefur verið að gefa okkur mjög góð hross og er þetta önnur merinn undan henni sem fer í fyrstu verðlaun. Gloría var felld í fyrra en eigum samt undan henni nokkur mjög spennandi hross. 5 vetra hest undan Borða frá Fellskoti, 4 vetra meri undan Dyn frá Hvammi, 3 vetra jarpblesótta meri undan Sólon frá Skáney og svo 2 vetra meri undan Hóf frá Varmalæk.

IS2004249701 Kolfreyja frá Snartartungu

Litur: 2500 Brúnn/milli- einlitt
Sköpulag: 7,5 - 8,5 - 7,5 - 8,5 - 8,0 - 7,5 - 8,0 - 8,0 = 8,11
Hæfileikar: 8,5 - 9,0 - 5,0 - 8,0 - 8,5 - 8,5 - 8,5 = 7,94

Hægt tölt: 8,5 Hægt stökk: 8,5

Aðaleinkunn: 8,01

Nasa frá Söðulsholti, 6 vetra undan Parker frá Sólheimum og Hildi frá Sauðárkróki. Nasa fór í 1.verðlaun fyrir hæfileika, 7.87 fyrir byggingu og 7.95 í aðaleinkunn. Nasa er fyrsta afkvæmi Hildar sem kemur í tamningju hjá okkur, en undan Hildi eigum við 2 vetra meri undan Kjarna frá Þjóðólfshaga, veturgamla meri undan Sólon frá Skáney sem var 3 sæti í folaldasýningu núna í vetur. Hildur átti núna í sumar jarpan hest undan Þrist frá Feti. Hildur er svo fylfull við Hákon frá Ragnheiðarstöðum.

IS2005237858 Nasa frá Söðulsholti

Litur: 1540 Rauður/milli- tvístjörnótt
Sköpulag: 8,0 - 8,0 - 8,5 - 8,0 - 7,5 - 8,0 - 7,5 - 7,5 = 7,87
Hæfileikar: 8,0 - 8,0 - 8,0 - 7,5 - 8,0 - 8,0 - 8,5 = 8,00

Hægt tölt: 8,5 Hægt stökk: 8,0

Aðaleinkunn: 7,95

Ösp frá Króki 9 vetra undan Þorra frá Þúfu og Skrítlu frá Skarði. Ösp náði að afreka það hálfum mánuði fyrir sýningu að rífa undan sér að framan og tæta af sér hófinn. Við ákvaðum samt að renna henni í geng og á hún á klárlega inni hálfan í tölti og skeiði og verður bara stefnd með hana aftur í dóm næsta vor.

IS2002286633 Ösp frá Króki

Litur: 2700 Brúnn/dökk/sv. einlitt
Sköpulag: 8,0 - 8,5 - 9,0 - 9,0 - 7,5 - 8,5 - 7,0 - 8,0 = 8,20
Hæfileikar: 7,5 - 8,0 - 7,0 - 8,0 - 8,0 - 8,0 - 8,0 = 7,71

Hægt tölt: 7,0 Hægt stökk: 7,5

Aðaleinkunn: 7,91

07.08.11

Faxagleði 2011

Fórum með 4 hross á Faxagleði sem er haldin árlega á Miðfossum. Fórum með Þyrlu í 150 m skeið og hún varð önnur þar. Dóri fór með Kolskegg frá Snartartungu í karlaflokkinn, þeir komust í úrslit og enduðu í 5 sæti, þetta var fyrsta keppnin hans Kolskeggs sem er 5 vetra undan Gloríu frá Snartartungu og Borða frá Fellskoti.

Og svo fór barnabörnin hans Einars í sínu fyrstu keppnin út á velli og gekk bara glymrandi vel. Inga Dís fór með hann Blika sinn og varð í 3 sæti og Róbert varð fjórði á Skjóna sínum. Katla keppti svo í polla flokki á Þyrlu og aldrei þessu vant var hún mjög ánægð með pabba gamla sem hljóp hringina á met tíma ;0)

25.07.11

Reiðnámskeið í Söðulsholti

Mándaginn og þriðjudaginn 8-9 ágúst ætlum við að hafa reiðnámskeið fyrir börn /unglinga í Söðulsholti. Kennari verður Randy Holaker frá Skáney. Námskeiðið kostar 10.000, hver hópur verður tekin 2x 45 á dag.

Skráning og nánari upplýsingar 8995625 / 8610175. Síðasti skráningardagur er á föstudaginn 5. ágúst.

25.07.11

Bændareið 2011

Árleg bændreið var haldin núna á laugardaginn, var hún í boði Einars í Söðulsholti, Auðuns Rauðkollsstöðum og Steins Loga í Hrútsholti. Byrjað var í Skógarnesi og riðinn góður hringur í Skógarnesfjörunni undir öruggri leiðsögn Trausta í Skógarnesi.

Vorum við ótrúlega heppinn með veður en búið var að spá rigningu alla vikuna. Rétt fyrir helgi breyttist spáin og fengum við sól og blíðu en í staðinn fyrir rigninguna fengum við smá öskumistur en á tímabili var það svo mikið að varla sást í fjöllin.

Eftir reiðtúrinn beið okkar dýrindisveisla sem Óli á Eldborg sá um og er nokkuð öruggt að enginn fór þyrstur eða svangur heim. Viljum þakka öllum fyrir frábæran dag og þá kannski sérstaklega Guðríði og Trausta í Skógarnesi.

Inn á facebook síðu söðulsholt er komið fullt af myndum frá deginum. Smellið hér.

Hér má svo sjá videobút af deginum

22.07.11

Myndir frá LM

Áttum tvær merar í B flokk á LM, þær Ösp frá Króki og Kolfreyju frá Snartartungu. Stóðu þær sig báðar vel og voru með um 8.30 í einkunn.

Ösp er 9 vetra undan Þorra frá Þúfu og Skrýtlu frá Skarði, þó hún sé orðin 9 vetra er þetta einungis 4 mótið sem hún hefur keppt á. Iðunn var aðeins byrjuð að keppa á henni í vor og unnu þær kvennflokkinn í firmakeppni Skugga, voru svo 3 sæti í úrtökunni hjá Skugga og helgina fyrir LM voru þær í A úrslitum í Búðardal.

Kolfreyja frá Snartartungu er 7 vetra undan Parker frá Sólheimum og Gloríu frá Snartartungu. En þetta var held ég í fimmta skiptið sem keppt er á henni út á velli, en í öll hin skiptin hefur hún verið í úrslitum. Stefnt er með þær báðar aftur í kynbótadóm núna í haust og verða þær svo báðar inni næsta vetur.

14.07.11

Fleiri folöld

Folöldin hafa týnst í heiminn síðustu vikurnar, aldrei þessu vant hefur bara allt gengið rosa vel, og erum bara mjög ánægð með það sem komið er. Eiga aðeins eftir tvær merar eftir að kasta, þær
Rebekka frá Króki og Gerpla frá Laugarsteini en þær eiga ekki að kasta fyrr en mánaðarmótin ágúst/sept.

Þann 10. Júni kastaði Píla frá Brún Jörpum hesti undan Fláka frá Blesastöðum. Píla fór svo undir Hákon frá Ragnheiðarsstöðum.

17.Júni kastaði Pyngja frá Syðra-Skörðugili rauðblesóttri undan Fláka frá Blesastöðum, pínu skemmtileg tilviljun en Pyngja kastaði líka 17. Júni í fyrra og kom þá einnig með rauðblesótta meri. Pyngja fór undir hann Hákon frá Ragnheiðarsstöðum.

24. Júni kastaði Fjóla frá Árbæ rauðblesóttum hesti, einnig undan honum Fláka, Fjóla fór svo undir hann Arð frá Brautarholti.

27. Júni kastaði Von frá Söðulsholti rauðri meri undan Arð frá Brautarholti.

28. Júni kastaði Kórína frá Akureyri Brúnskjóttri meri undan Ábóta frá Söðulsholti.

6. Júli kastaði Blæja frá Svignaskarði Bleikstjörnóttum/glaseygðum hesti undan Álf frá Selfossi. Blæja fór svo undir hann Fláka frá Blesastöðum.

13. Júli kastaði Kolbrún frá Kjarnholtum brúnum hesti undan honum Ábóta frá Söðulsholti.

Svo má ekki gleyma nýju merinni okkar henni Donnu frá Króki, en hún fór undir Krák frá Blesastöðum.

Þrjár merar, Lipurtá, Abbadís og Sunna frá Akri voru svo sóttar í Vestur Húnavatnssýsluna allar fylfullar við honum Kapal frá Kommu, en hann er 3 vetra brúnskjóttur álfssonur sammæðra Kappa frá Kommu.

10.07.11

Ábótaafkvæmi

Ritstífla aldarinnar búin að vera í gangi núna síðustu vikurnar, en tölvan og photoshop búin að vera í verkfalli. En allt að komast í lag og við munum hrúga inn fréttum á næstunni.

Skellum hérna með 3 myndum af fallegum merfolöldum undan honum Ábóta okkar frá Söðulsholti, en við erum bara mjög ánægð með þau folöld sem við erum búin að sjá undan honum, léttbyggð og mjúk á gangi. En ef þið farið inn á facebook síðuna okkar má sjá fleiri myndir af þeim.

Smellið hér til að komast á facbook síðu Söðulsholts

Ábóti er núna í hólfi í Hrossholti ásamt 10 merum og ef fók hefur áhuga má bæta inn á hann.
Kostar 40.000 með öllu.

05.06.11

Donna frá Króki hæsta dæmda merin á Kynbótasýningunni á Hellu í flokki 7.vetra og eldri.

IS2003286634 Donna frá Króki

Örmerki: 985120019312755
Litur: 3510 Jarpur/milli- skjótt
Ræktandi: Steinunn H Gunnarsdóttir
Eigandi: Steinunn H Gunnarsdóttir
F.: IS1995184455 Júpíter frá Stóru-Hildisey
Ff.: IS1989176289 Kjarkur frá Egilsstaðabæ
Fm.: IS1987284513 Hylling frá Stóru-Hildisey
M.: IS1998286630 Kastanía frá Króki
Mf.: IS1992186811 Kórall frá Austvaðsholti 1
Mm.: IS1986286008 Nería frá Sandhólaferju
Mál (cm): 142 - 138 - 65 - 146 - 27,5 - 17,5
Hófa mál: V.fr.: 9,1 - V.a.: 8,2
Sköpulag: 8,5 - 9,0 - 8,0 - 8,5 - 8,5 - 8,5 - 8,0 - 8,5 = 8,51
Hæfileikar: 8,5 - 8,5 - 5,0 - 9,0 - 8,5 - 8,5 - 8,0 = 7,92

Aðaleinkunn: 8,16

Hægt tölt: 8,0 Hægt stökk: 9,0
Sýnandi: Halldór Sigurkarlsson

24.05.11

Fyrstu Ábótaafkvæmin

Enn fjölgar í folaldahópnum en þann 20.Maí kom Jarpskjóttur, glaseygður hestur undan Báru frá Syðra-Skörðugili. Í gærkvöldi kom svo rauðstjörnóttur hestur undanLipurtá frá Söðulsholti. Bæði folöldin eru undan Álfssyninum okkar honum Ábóta frá Söðulsholti. Mikið rok og kuldi hefur verið hér síðustu vikuna og hafa bæði folöldin fengið að vera inni í reiðhöllinni fyrstu klukkustundirnar til að þorna og hlíja sér.

11.05.11

Fleiri folöld

Ekki varð það skjótt meri eins og vonast var eftir en Hildur frá Sauðárkróki kastaði snemma í morgun jörpum hesti undan Þrist frá Feti. Hildi er nú samt alveg fyrirgefið þetta, svona allavegna í þetta skiptið, en eins og sjá má á myndinni er hann mjög myndarlegur og átti ekki í miklum erfiðleikum með að stilla sér upp nokkra tíma gamall.. Hildur er svo trúlega á leiðinni undir Hákon frá Ragnheiðarstöðum og verður spennandi að sjá hvað kemur út úr því.

06.05.11

Knapar framtíðarinnar!

Fengum skemmtilega heimsókn í gær þegar krakkar úr leikskólanum í Laugargerði komu í Söðulsholt. Þau fengu öll að kemba og sjá þegar var verið að hreinsa úr hófum og leggja á og var svo farið á bak og teymt undir. Börnin tóku þessu nú misjafnlega, sum voru vön, önnur höfðu aldrey farið á bak og héldu bara fyrir nefið því lyktin var svo vond. En öll fóru þau nú samt á bak og stóðu sig frábærlega.

Fleiri myndir inn á facebook síðunni okkar.

02.05.11

Sumarið komið!!

Fyrsta folald sumarins er loksins komið, en hún Abbadís frá Söðulsholti kastaði í morgun merfolaldi undan Glym frá Innri-Skeljabrekku, erum ekki alveg viss með litinn, trúlega bleik en faxið er samt mjög silfrað, svo hver veit.

Erum nokkuð viss um að með fyrsta folaldinu sé sumarið komið, eða vonum það allavegna en veðrið síðustu daga eða já síðustu vikurnar er búið að vera frekar ógeðslegt og held bara að sjaldan hafi verið svona blaut hérna í kring. Fleiri myndir af folaldinu má sjá inn á facebook síðunni okkar og getið smellt hér til að komast inn á hana.

14.04.11

Fæðingardeildin

Nú styttist óðum að fyrsta folaldið komi í heiminn en fyrsta merin ætti að kasta núna í næstu viku og svo eru 3 merar í Maí. Það er svo spurning hvort þær eigi eftir að flýta eða seinka sér eitthvað en það er alltaf erfitt að spá fyrir um það. Erum búin að sækja 3 merar sem eiga að kasta fyrst, og eru þær hérna í hólfi við hesthúsið undir daglegu eftirliti.

Restin af merunum verða svo sóttar þegar nær dregur köstun en folöldin eru enn undir þó einhverjar séu farnar að venja undan sér. Við stefnum samt á að reyna taka folöldin undan eftir helgi og hafa þau þá inni í nokkrar og daga og kenna þeim að teymast og þessháttar.

Dömurnar á myndinni fyrir ofan eru þær Lipurtá frá Söðulsholti, fylfull við Álfssyninum
Ábóta Söðulsholti. Hildur frá Sauðárkróki, fylfull við Þrist frá Feti og svo er það hún Abbadís frá Söðulsholti en hún er fylfull við Glym frá Innri-Skeljabrekku.

11.04.11

Ábóti

Ábóti frá Söðulsholti IS2008137863

Undan Álf frá Selfossi og Sunnu frá Akri tekur á móti merum í Söðulsholti í sumar. Verð 40.000 með VSK og einni sónarskoðun.

Nánari upplýsingar hjá Einari í síma 8993314 eða senda tölvupóst á netfangið einar@sodulsholt.is

05.04.11

Námskeið

Þá er frábæru námskeiði með Benna Líndal lokið og koma hérna nokkrar myndir frá síðustu helginni.

Birna Tryggvadóttir hefur verið að kenna knapamerkin í vetur og hafa verið 8 nemendur núna eftir áramót. Það var verið að taka próf í knapmerki 3 um síðustu helgi og stóðustu allir það með glæsibrag.
Styttist síðan í að það verið reiðnámskeið fyrir börn og unglinga en við auglýsum það betur þegar verður búið að finna lausa helgi fyrir það.

31.03.11

Askur

Einn efnilegur og flottur á litinn, Askur frá Hríshóli 1. Fæddur 2007 undan Glym frá Innri-Skeljabrekku og Emblu frá Hæringsstöðum. Eigandi Asks er Vilberg Þráinsson stórbóndi á Hríshóli í Reykhólasveit.

23.03.11

Draumahöllin !!

Þá er nýja hesthúsið í Hafnafirði tilbúið og eins og sjá má á myndunum er það allt hið glæsilegasta. Byrjað var á byggingunni í Mai og var rólegur gangur alveg fram að áramótum en þá kom fjörkippur í vinnuna og allt sett á fullt. Er nú húsið að fyllast af hrossunum og verður klárlega gaman fyrir mannskapinn að hefja útreiðar á þessum nýja stað.

Grunnflötur hússins er um 700 fermetrar, 16 eins hesta stíur og 10 tveggja hesta. Tveggja hesta stíurnar eru 3x3 metrar og eins hesta stíurnar eru 1.85x3 metrar. Hlaða fyrir hey og hálm er í öðrum endanum en í hinum endanum er 107 fermetra inniaðstaða. Einnig er niðri stór og rúmgóð hnakkageymsla, geymsla fyrir útiföt og klósett. Uppi á lofti er svo 45 fermetra kaffistofa með verönd, stóru búningsherbergi og salerni. Notast er við safnstíur, 30 sm djúpar og eingöngu notaður hálmur sem undirlag. Mjög góð aðstaða til að járna og baða hrossin. Öll lóðin er 1800 fermetrar, bílastæðin öðrum megin við húsið og stór og rúmgóð gerðin hinu megin.

05.03.11

Nóg að gera

Nýjar myndir af Hákoni bárust í hús í gærkvöldi, og vá hvað hann lítur vel út, næstum of gott til að vera satt. En það styttist í aðalfund og verður spennandi að sjá hann með eigin augum.
Fleiri myndir af honum er inn á Facebook síðu Söðulsholt.

Raðnámskeiðið með Benna heldur áfram og var annað námskeiðið núna síðustu helgi. Kannski ótrúlegt en er þetta í fyrsta skipti sem það er haldið námskeið hér og farið er út úr reiðhöllinni. En nemendurnir fengu að skokka með hrossin nokkrar ferðir á afleggjurunum og komst upp um þá sem er ekki búnir að vera nógu duglegir að stunda ræktina í vetur. Vorum að vísu ekkert smá heppinn með veður en það hafa ekki verið margir dagar svona í vetur,sól, snjór og blanka logn.

Á föstudagskvöldinu var svo haldið töltmót hérna á vegum Snæfellings, tókst það bara vel og eiga eflaust eftir að verða fleiri svipuð mót hér í framtíðinni.
Hérna koma svo myndir af keppendum og áhorfendum.

06.03.11

Myndir frá námskeiðinu með Benna

04.03.11

Ræktunin

Það er ekki mörg hross á húsi í eigu Söðulsholt, bæði er að það er mikið að gera fyrir aðra og svo er ræktunin bara rétt að komast á skrið. Núna eru bara 3 merar inni frá Söðulsholti á aldrinum 4-6, allar á sitthvoru árinu, og allar mjög efnilegar. Tókum myndir af skvísunum í vikunni og má finna fleiri myndir af þeim inn á facebook síðu Söðulsholt.

Nótt frá Kommu, 4 vetra undan Sunnu frá Akri og Gígjar frá Auðsholtshjáleigu, Söðulsholt keypti Sunnu 2007 ásamt Nótt en þá var hún aðeins nokkra mánaða. Nótt er fyrsta afkvæmi Sunnu.

Tígla frá Söðulsholti, 5 vetra undan Fák frá Auðsholtshjáleigu og Kolbrúnu frá Kjarnholtum. Tígla er fyrsta afkvæmi Kolbrúnar sem er tamið hérna í Söðulsholti.

Svo er það hún Nasa frá Söðulsholti, 6 vetra undan Parker frá Sólheimum og Hildi frá Sauðárkróki, en Nasa er líka fyrsta afkvæmi Hildar.

27.02.11

Hákon og Sægaumur

Þeir halda áfram að vaxa í áliti ungfolarnir tveir sem Söðulsholt á hluti í og eru í tamningu hjá Ella og Viðju í Langholti.

Mynd: Viðja Hrund Hreggviðsdóttir og Sægaumur frá Eyjakoti

Það er nú örugglega ekki oft sem fjallað er um graðhesta í tímariti Mannlífs, en í nýjasta tölublaði blaðsins er grein um Sægaum og eigendur hans.

Mynd: Erlingur Erlingsson og Hákon frá Ragnheiðarstöðum

Svo styttist nú í aðalfund Hákonsfélagsins og verður spennandi að sjá hvernig hann verður. En meðan maður bíður eftir því verður maður bara að láta sér nægja þessa mynd af kappanum en er nokkuð vissum að það sé ekki til margar svona myndir af 4 vetra tripppi.

19.02.11

Myndir,myndir,,

Loksins drifum við í því að taka smá myndir,, og stefnum að því að taka fleiri fljótlega.

Þetta er hún Fjöður frá Ólafsvík, fædd 2007 og er undan Mars frá Ragnheiðarstöðum og Perlu frá Einifelli. Hérna fyrir neðan í eldri fréttum eru myndir af henni eftir 3 vikna tamningu núna í haust, hún kom svo aftur til okkar fyrir um mánuði síðan. Mjög efnileg og þroskuð hryssa miðað við aldur.

14.02.11

3 helga raðnámskeið með Benna Líndal

Helgarnar 4-6, 12-13 og 26-27 mars verður tamningarmeistarinn Benedikt Líndal með námskeið hérna í Söðulhsholti. Námskeiðið er ætlað meira vönum knöpum og aðaláherslur verða rétt samskipti. Hlustun, skilningur, samþykki. Að hesturinn sé sáttur og hafi áhuga á að vinna með manninum. Farið verður í allar gangtegundir og fjölbreytni í vinnubrögðum.

Hver helgi kostar 20.000 og innifalið í því er hádegismatur,kaffi, og geymsla fyrir hestinn meðan á námskeiðinu stendur.

03.02.11

Fleiri myndir af folaldasýningunni

01.02.11

Reiðnámskeið

Ertu í vandræðum með hestinn þinn????
Er hann stressaður, stífur, latur, leiðinlegur í beisli, vill ekki brokka eða vill ekki tölta, er hann bundinn á tölti, hoppandi upp á fótinn, viltu komast hraðar á tölti eða æfa hæga töltið, stökk, eða fimiæfingar???? Hvað sem vandamálið er þá er alveg pottþétt til lausn á vandanum ;0)
Svo heppilega vill til að hinn eini sanni Magnús Lárusson er að koma 12-13 febrúar og verður með reiðnámskeið hjá okkur. Námskeiðið hentar jafnt minna sem meira vönum, Byrjendum sem atvinnumönnum, og það er alveg öruggt að Maggi er með svör og ráð við öllum vandamálum sem tengjast hrossum.

Námskeiðið kostar 20.000 og er innifalið er geymsla fyrir hrossin,hádegismatur, kaffi og kökur. kennt er í 4 manna hópum og hver hópur er tekinn 4 sinnum yfir helgina og svo 2 bóklegir tímar líka.

29.01.11

Úrslit folaldasýningar

Hérna fyrir neðan koma efstu folöld sem voru á folaldasýningunni í dag. Um 40 folöld voru skráð til leiks og mikið um fallega gripi. Dómarar voru Þorvaldur Kristjánsson og Valberg Sigfússon og Þulur Eysteins Leifs. Um kaffiveitingar sá Áslaug á Þverá og er nokkuð öruggt að enginn hafi farið svangur heim. Áhorfendur kusu folald sýningarinnar og að þessu sinni var það Ófeigur frá Söðulsholti.

Hér koma svo vidoe af efsta merfolaldinu og efsta hestfolaldinu og svo honum Ófeigi sem vann áhorfendaverðlaunin, tókum myndir og vidoe af næstum öllum folöldunum sem við munum setja inn bráðlega.

Blómalund frá Borgarlandi

Spói frá Hjarðarfelli

Ófeigur frá Söðulsholti

í Fyrsta sæti í merarflokknum var hún Blómalund frá Borgarlandi undan Smára frá Skagaströnd og Vigdís frá Borgarlandi. Eigandi og ræktandi Ásta Sigurðardóttir.

2.Spurn frá Minni-Borg
M: Löpp frá Hofsstöðum
F: Spyrnir frá Þúfum
Eig/rækt. Katrín Gísladóttir

3.Silja frá Söðulsholti
M: Hildur frá Sauðárkróki
F: Sólon frá Skáney
Eig/rækt. Söðulsholt ehf

Í hestflokknum var efstur Spói frá Hjarðarfelli undan Frið frá Búlandi og Fjöður frá Hjarðarfelli, eig/rækt, Harpa Jónsdóttir.

2. Ófeigur frá Söðulsholti
M: Blæja frá Svignaskarði
F: Hákon frá Ragnheiðarstöðum
Eig/rækt. Söðulsholt ehf

3. Jaðrakan frá Hellnafelli
M: Hetta frá Útnyrðingsstöðum
F: Dynur frá Hvammi
Eig/rækt. Kolbrún Grétarsdóttir og Kristján Oddson

23.01.11

Folaldasýning 2011.

Laugardaginn 29. Janúar, kl. 13:00 ætlum við, í Söðulsholti, í samstarfi við Snæfelling að vera með folaldasýningu í Söðulsholti. Hver skráning kostar kr. 1.000 og hægt er að skrá hjá Einari í síma 899-3314 eða með tölvupósti til: einar@sodulsholt.is. Sýningin er öllum opin . Gefa þarf upp nafn og fæðingarnúmer folalds, lit, fæðingarstað, föður, móður, ræktanda og eiganda. Keppt verður í kynjaskiptum flokkum og svo velja gestir fallegasta folaldið.

Skráningargjald greiðist inn á reikning 0354-26-3970, kt. 271235-4539. Síðasti skráningardagur er fimmtudagur 27. Janúar.

Aðgangseyrir er kr. 1.000 á mann, sem greiðist við inngang í reiðufé, enginn posi. Innifalið í því eru kaffiveitingar- frítt fyrir börn 12 ára og yngri. Auðvitað vonumst við til að sjá sem flesta og góð hugmynd að gestir hafi með sér létta tjaldstóla til að geta hvílt lúin bein.

Ófeigur frá Söðulsholti

20.01.11

Stóðhestaeign

Söðulsholt á hlut í þremur vel ættuðum ungfolum, allir mjög efnilegir, svona allavegna þar til annað sannast ;0), en þessir gripir eru:
Kapall frá Kommu,

Kapall frá Kommu

Kapall er fæddur 2008 undan Álf frá Selfossi og Kjarnorku frá Kommu, hún er m.a móðir Kappa og Kaspars frá Kommu.
Hákon frá Ragnheiðarstöðum:

Hákon frá Ragnheiðarstöðum

Hákon er fæddur 2007 einnig undan Álf frá Selfossi og svo henni Hátíð frá Úlfsstöðum.
Svo er hann Sægaumur frá Eyjarkoti fæddur 2008 undan Gaum frá Auðsholsthjáleigu og Foldu frá Vogum.

Sægaumur frá Eyjarkoti

Sægaumur og Hákon eru báðir í tamningu hjá Ella og Viðju í langholti, og verður spennandi að sjá hvernig þeir verða í vor en Einar fór ásamt fleiri eigendum Sægaums að kíkja á gripinn núna á laugardaginn og voru þeir bara mjög sáttir með það sem fyrir augun bar. Svo spennandi verður að sjá hvað gerist í vor, en með þeim í för var ljósmyndari frá tímaritinu Mannlíf sem myndaði bæði menn og hesta og mun trúlega vera skrifað um þá í næsta blaði.

17.01.11

Fjárhundanámskeið

Það er greinilegt að það er hægt að nýta reiðskemmuna til ýmissa hluta en í gær voru þeir Gísli í Mýrdal og Svanur í Dalsmynni með fjárhundanámskeið fyrir sauðfjárbændur í Dölunum. Hafa nokkrum sinni áður verið fjárhundanámskeið hjá okkur og virðist aðstaða virka mjög vel í þetta.

Fleiri myndir af námskeiðinu er hægt að finna inn heimasíðu Dalsmynnis: http://dalsmynni.123.is/blog/

06.01.11

Folaldasýning 29 janúar

Erum að byrja að púsla saman smá dagskrá fyrir veturinn og á örugglega eitthvað meira eftir að bætast við. Knapamerkin halda áfram, folaldasýning verður laugardaginn 29 janúar, reiðnámskeið með Magga Lár verður trúlega í febrúar og svo vorum við svo heppinn að fá Benna líndal til að koma og vera með námskeið hjá okkur,en það verður þriggja helga raðnámskeið í Mars og verður auglýst betur þegar nær dregur.


conveyancing fees